Sagnir


Sagnir - 01.05.1982, Side 50

Sagnir - 01.05.1982, Side 50
róttæka baráttu. Þegar Chartistar voru upp á sitt besta um 1840 voru þeir Marx og Eng- els smám saman að smíða kenningar sínar um sögulegt hlutverk verkalýðsstéttarinnar. Þeim komu hugmyndir og vitneskja m.a. frá Chartistum, sem áttu við að etja mesta iðn- veldi heims og þróaðasta kapitalisma Ev- rópu. Það er því ekki að ósekju að þessi merka hreyfing færi mikla athygli sagnfræð- inga, ekki síst þeirra sem vilja leggja róttækri þjóðfélagsbaráttu lið, með því að skrá sögu alþýðunnar og efla þar með sjálfsvitund hennar. Og hefst nú endursögnin. Áhrif kvenna og pólitísk barátta í Chartistahreyfingunni um miðja 19. öld Það er ríkjandi skoðun meðal margra sagnfræðinga að réttindabarátta kvenna hafi legið beint á brattan, hún hafi verið samfelld sókn. Þetta viðhorf felur í sér að fyrir daga kvenréttindabaráttunnar á síðari hluta 19. aldar hafi konur ekki tekið þátt í pólitisku starfi og að þær hafi ekki haft nein áhrif i pólitík. Barátta þeirra fyrir bættum kjörum hafi ekki hafist fyrr en borgaraleg réttindi voru fengin og eftir að konur fóru að skipu- leggja sig í verkalýðsfélögum. Við hljótum að spyrja hvernig alþýðufólk hagaði lífi sínu á fyrri hluta 19. aldar, allt þetta fólk, konur og karlar, sem ekki naut pólitískra og borgaralegra réttinda? Fyrir hverju barðist fólkið í alþýðuhreyfingunum, sem er að svo litlu getið í sögubókunum? Hvað gerðu konurnar? Það sem varð til þess að ég gerði sögu al- þýðuhreyfinga að viðfangsefni var forvitni mín um hugmyndir, skoðanir og hegðun þess fólks sem að jafnaði er ekki talið til gerenda sögunnar. Slík forvitni hefur leitt sagnfræð- inga út í félagssögu (social history), söguna séða „neðan frá“ þar sem alls konar heim- ildir eru notaðar. Annað sem beindi mér inná braut alþýðunnar var áhugi á réttinda- baráttu kvenna, menntunarmöguleikum þeirra, kostum á embættum konum til handa og einnig konum sem kjósendum; en mér hætti til að líta á sögu kvenréttindabar- áttunnar sem skeið mömmu minnar og ömmu. Þegar ég fór svo að rannsaka sögu Chartistahreyfingarinnar nóteraði ég hjá mér allt sem viðkom konum, einkum það sem snerti vitund þeirra, óskir um atkvæðis- rétt og kröfur um jafnrétti. Ég fann fá dæmi um slíkar kröfur meðal Chartista og þó að ég skrifaði þetta allt hjá mér gegnum árin, þá beindist athyglin aðallega að því fólki sem var virkast í hreyfingunni, því sem var hand- tekið, skrifaði í blöð eða gaf út bæklinga, sem sagt þeim sem gáfu vitneskju um hreyf- inguna. Ég held að undirniðri hafi ég alltaf vitað að þarna i fjöldanum voru konur, en það sem fékk mig til að venda minu kvæði í kross og fara sérstaklega að kanna hlut kvenna, var erindi eins kollega míns um Chartista. Þar sagði hann frá því að þegar kom fram á miðja öldina tók að draga úr herskáum har- áttuaðferðum; fundum og teboðum var meira beitt en áður: ,,þar sem karlmennirnir gátu mætt, með konur sínar sér við hlið“. Það hringdi bjalla í höfðinu á mér, þetta var algjörlega rangt hjá manninum! Þó að ég vissi ekki nákvæmlega hvað konurnar hefðu gert, þá vissi ég vel af nærveru þeirra á fyrstu árum Chartistahreyfingarinnar. Þær voru þar af sjálfsdáðum og það var ekki vafi á því að þær nutu vaxandi virðingar, þær beittu sér fyrir aðgerðum sem konur sáu sér fært að taka þátt í. Ég hafði á tilfinningunni að eftir því sem á leið hefði dregið úr þátttöku þeirra, þar til þær hurfu gjörsamlega úr hreyfingunni. Kvennabaráttan lá ekki öll á brattan með stórsóknum, hún lá líka niður á við. Ég snéri mér að Chartistahreyfingunni á nýjan leik í leit að konunum og komst að þeirri niðurstöðu að fyrstu árin fjölgaði þeim ört í öllum héruðum, en skömmu eftir miðja öldina hurfu þær með öllu, einhverra hluta vegna. Konurnar í Chartistahreyfingunni háðu ekki baráttu gegn karlmönnum eða börðust sérstaklega fyrir kvenréttindum sem einhverju aðskildu frá baráttu karla, en hvað voru þær að gera? í hvers konar stríði stóðu þær? Hverju vildu þær koma til leiðar? Hvert eldhús er orðið að fundarstað Nærvera kvenna á fundum og í mótmæla- aðgerðum Chartista er vel staðfest í heimild- um frá fyrstu árum hreyfingarinnar. Þær héldu við lýði eldri venjum frá því að konur tóku þátt í hunguruppreisnum og ýmsum öðrum fjöldaaðgerðum, sem tiðkuðust allt 48
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.