Sagnir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Sagnir - 01.05.1982, Qupperneq 55

Sagnir - 01.05.1982, Qupperneq 55
konur námuverkamanna í Wigan matvæla- verkfall sem einkum beindist gegn kjötkaup- mönnum héraðsins. Gömlu baráttuhefðirnar voru nú orðnar vopn í höndum hinna ófag- lærðu. En hvers vegna hurfu konur iðnaðar- mannanna og hvar beittu þær áhrifum sín- um? Við höfum afar litla vitneskju sem bendir til þess að þessar konur hafi barist fyrir kosningarétti kvenna. Slíkar kröfur dúkkuðu upp öðru hverju á blómaskeiði Chartistahreyfingarinnar, en ekkert bar á slíku þegar kosningalöggjöfin var endur- skoðuð 1867, en þá fengu margir iðnaðar- menn atkvæðisrétt. Það finnast fáar heim- ildir um konur í verkalýðsfélögum, samvinnufélögum, klúbbum, lestrarfélögum eða meðal alþýðuarmsins i Frjálslynda flokknum á milli 1850 og 1870. Óneitanlega vekur þetta furðu, því ætla mætti að flutningur framleiðslunnar út af heimilunum í verksmiðjurnar hefði létt af konunum endalausu striti við að halda heimilinu gangandi. Það hefði mátt búast við að þær hefðu meiri tíma til annara hluta. Maður freistast til að halda að þær hefðu að minnsta kosti getað tekið þátt í uppbyggingu neytendasamtaka. En ég hef ekki fundið neitt dæmi um að kona hafi verið í forystu þeirra félaga sem störfuðu meðal iðnverkafólks, hvað þá setið í stjórnum sam- vinnufélaga. Nei takk, það voru miklu fleiri kvenfélög starfandi á síðari hluta 18. aldar og fyrri hluta þeirrar 19. en síðar á öldinni, þrátt fyrir batnandi kjör. Ég hef engar endanlegar skýringar á þess- ari þróun, en ég held að orsakanna sé að leita til þess að breytingar á stöðu eiginkvenna iðnaðarmanna hafi verið mun meiri en á stöðu iðnaðarmannanna sjálfra. Konan sat eftir heima bundin við heimilisstörfin ein, meðan eiginmaðurinn fór daglega til vinnu sinnar í verksmiðjunni. Hennar hlutverk var að þrífa, elda og passa litlu börnin, hún missti alveg tengslin við starf mannsins, sem áður hafði verið hluti af hennar veruleika. Aður þekkti hún allt sem laut að iðninni, en nú var heimur verksmiðjunnar henni ókunn- ur, hjónin gátu ekki einu sinni talað saman um vinnuna. Hún gat ekki farið í verk- smiðjuna og tekið við starfi hans eins og konurnar gerðu áður, tal karlmannanna varð henni framandi, hún þekkti ekki lengur hin daglegu vandamál vinnunnar. Heimar karlsins og konunnar skildust að, eins og álitið var æskilegt meðal millistéttanna, gildismat borgarstéttarinnar var að halda innreið sína í heim verkafólksins. Verkalýðsfélögin voru nátengd vinnu- staðnum, einnig klúbbarnir og allt pólitískt starf, þar var ekkert pláss lengur fyrir konur, nema við hátíðleg tækifæri og enn má nefna dæmi um versnandi stöðu kvenna. Sam- kvæmt venjum áttu konur iðnverkamanna ekki að þurfa að vinna sjálfar fyrir pen- ingum, en staðreyndin var sú að margar þeirra þurftu að drýgja tekjur heimilisins. Laun karlmanna voru mun hærri en laun kvenna, en tekjur þeirra gátu verið óvissar, ef atvinnuleysið stakk upp kollinum eða veikindi lögðu fjölskylduföðurinn í rúmið. Þá réði stærð fjölskyldunnar einnig miklu um afkomuna. Það hljóta að hafa verið margar konur giftar iðnverkamönnum sem unnu utan heimilis. Tækifærin sem buðust voru fá, því fæstar iðngreinar voru konum opnar. Og þó svo væri gátu konur ekki nýtt sér það vegna heimilisstarfanna sem alltaf höfðu forgang. Það var því um að ræða íhlaupavinnu, þess konar störf sem ekki eru nefnd í skýrslum, svo sem líkþvott, almenna þvotta, ræstingu, saumaskap alls konar o.fl., allt unnið fyrir smánarlaun. Konurnar urðu að fara þessa leið, en það þýddi að þær fóru þrep niður á við í stéttastiganum. Þær gátu ekki verið stoltar af launum sínum, hvað þá að þær væru að „vinna sig upp“ eða að efla sjálfsvitundina. Hlutverk kvenna sem kennara barna varð minna og minna. Skólunum sem störfuðu frá 1860—1890 var sérstaklega ætlað að ,,ala upp“ börn verkalýðsstéttarinnar, kenna þeim kristin fræði og „almennilega hegðun“, sumt af því sem kennt var beindist beinlínis gegn því sem börnin lærðu heima. Skólinn reyndi að draga úr valdi foreldr- anna, það átti að ala upp hlýðinn verkalýð, og eyða áhrifum þessara hræðilegu mæðra sem spilltu börnunum og ólu upp byltingar- lýð.6) Konur áttu að vera heima En hvað gerðu konur iðnverkamanna? Þetta voru þeir timar er menntaðar konur reyndu að opna konum leiðir til atvinnu, einkum konum úr millistétt. Þar var um að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.