Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 27
Orkumál
345
Átak íjarðhitaleit
Fundurinn skoraði á iðnaðar-
og viðskiptaráðherra að beita sér
fyrir að fjármagn verði veitt til
áframhaldandi jarðhitaleitar á
köldum svæðum. Fundurinn
taldi að reynsla sem fengist hefði
af því átaksverkefni sem staðið
hefur síðan 1998 hafi leitt í ljós
að mikil nauðsyn sé á áfram-
haldandi frumrannsóknum við
leit og kortlagningu jarðvarma.
Það var álit fundarins að nauð-
synlegt væri að gera jarðhitaleit
að langtímaverkefni sem hafi
það markmið að skilgreina sem
best hvar á landinu megi finna
nýtanlegan jarðvarma. Fundur-
inn minnti á að jarðhiti er ein af
meginauðlindum landsins og á
nauðsyn þess að vitneskja um þá
auðlind sé sem best. Lögð var
áhersla á að þótt nýtanlegur jarð-
hiti hafi ekki fundist á nokkrum
þeim stöðum þar sem leit hefur
farið fram kemur vitneskja um
hvar hann er að finna og hvar
ekki að góðu gagni. í því sam-
bandi var bent á markvissa íjár-
festingu í raflínum á þeim
svæðum þar sem ekki er nýtan-
legur jarðvarmi. Minnt var á að
með rannsóknarborunum hafi
aukist þekking á jarðlögum,
vatnsflæði o.fl. sem varðar fleiri
þætti en orkumál.
Stuðningur við
orkusparnaðarátak
Fundurinn skoraði á iðnaðar-
og viðskiptaráðherra að beita sér
fyrir ljárframlögum til orku-
sparnaðarátaks sem hófst á sl.
ári til að ljúka megi þeirri kynn-
ingarherferð sem upphaflega var
áætluð. Fundurinn beindi því
jafnframt til ráðherra að hann
kæmi á fót verkefnisstjórn sem
ynni markvisst að kynningu á
leiðum til orkusparnaðar á heim-
ilum og í atvinnurekstri sem
notar raforku til húshitunar.
Verkefnið verði við það miðað
að árlega fari fram kynningar-
starf og fræðilegar úttektir á
orkusparnaði við hitun húsa.
Stjórn samtakanna
Stjórn samtakanna var kjörin
til eins árs. Flana skipa Magnús
B. Jónsson, sveitarstjóri á Skaga-
strönd, Björg Ágústsdóttir, sveit-
arstjóri í Grundarfirði, og Ólafur
Sigurðsson, bæjarstjóri á Seyðis-
firði.
Leiðandi fyrirtæki!
ft-lm /nitf nn hnctn /r<■ r*tmL■ IdiiflcincS
Hvert er besta fyrirtæki landsins?
Þegar stórt er spurt veróur fátt um svör
og eflaust vildu margir Lilju kveðið hafa.
Hitt er víst aó þegar spurt er
um ieiðandi fyrirtæki í iandinu
er RARIK efst á blaði!
Jr
M
y w
V
Við leiðum rafmagn um landið þvert og endilangt og alls cru línurnar okkar
8.000 kílómetrar að lengd! Það býður enginn betur í þeim efnum.
A
RARIK