Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 37
Fulltrúaráðsfundir
ríkið er að fá inn í formi vsk-greiðslna. Kostnaður
fyrir hönnun fæst ekki metinn inn í kostnað.
Kostnaður leggst misjafnlega á sveitarfélögin, en
getur numið allt að 130.000 kr. á íbúa sem er
mörgum þeirra ofviða.
Álit fjárhagsnefndar
I ijárhagsnefnd fundarins voru Bragi Michaels-
son, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, formaður,
Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri Fjarðabyggðar,
Herdís Á. Sæmundardóttir, bæjarfulltrúi í Sveitar-
félaginu Skagafirði, Jónas Jónsson, oddviti Ása-
hrepps, Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolung-
arvík, og Valgarður Hilmarsson, oddviti Engihlíð-
arhrepps.
Bragi Michaelsson kynnti álit nefndarinnar. Það
var síðan borið undir atkvæði og samþykkt sam-
hljóða, svofellt:
Fjárhagsnefnd hefur yfirfarið fjárhagsáætlun
Sambands íslenskra sveitarfélaga ásamt starfs-
áætlun fyrir árið 2002 og rammaáætlun áranna
2003, 2004 og 2005 og önnur fylgiskjöl.
Nú var í fyrsta skipti lögð fram greinargerð með
þessum áætlunum og lýsir ijárhagsnefnd sérstakri
ánægju með það.
Þar sem sífellt eru gerðar meiri kröfur um grein-
ingu á kostnaði við ýmis verkefni og rekstur sveit-
arfélaga vegna hagsmunagæslu fyrir þau og sveit-
arfélög hafa í auknum mæli falið Launanefnd
sveitarfélaga umboð til kjarasamningagerðar hafa
umsvif sambandsins og launanefndar aukist. I ijár-
hagsáætlun er gert ráð fyrir auknum verkefnum
hag- og upplýsingasviðs og lögfræði- og kjarasviðs
með ráðningu starfsmanna til að bæta þjónustu við
sveitarfélögin.
Þá er í áætluninni gert ráð fyrir að sambandið
leggi Staðardagskrá 2,1 til 2,4 milljónir króna á ár-
inu 2002. Fjárhagsnefnd leggur til að stjórn sam-
bandsins fari sérstaklega yfir framkvæmd þessa
verkefnis.
Fjárhagsnefnd telur rétt að huga að því að á
fyrsta fulltrúaráðsfúndi eftir hverjar sveitarstjórnar-
kosningar verði Ijárhagsnefnd kjörin og hafi hún
sama starfstíma og fulltrúaráðið, þ.e. ijögur ár.
Þannig gefst nefndinni tækifæri til að yfirfara
reikninga og fjárhagsáætlanir santbandsins og skila
áliti sínu þar um tímanlega fyrir fúlltrúaráðsfúndi.
Fjárhagsnefnd leggur til að fjárhagsáætlun ársins
2002 ásamt rammaáætlun fyrir árin 2003, 2004 og
2005 verði samþykkt.
Fundarslit
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ræddi að lokum mál-
efni fundarins, einkum byggðamál, og þakkaði for-
manni byggðanefndar, Sigurgeiri Sigurðssyni, góð
störf svo og öðrum nefndarmönnum. Hann ræddi
sameiningu sveitarfélaga sem þátt í æskilegri
byggðarþróun, kjarnasvæði og fleiri hugmyndir
sem nefndin hefði sett fram. Það verður nú hlut-
verk stjórnar sambandsins, sagði hann, að móta
þessar tillögur fyrir næsta fúnd fulltrúaráðsins,
vinna vel og vandlega úr tillögunum og freista þess
að ná breiðri samstöðu um málið.
Formaður þakkaði einnig öðrum framsögu-
mönnum á fundinum fyrir vönduð erindi. Hann
þakkaði ennfremur starfsfólki sambandsins góðan
undirbúning fundarins, fulltrúaráðsmönnum góða
fundarsetu og sagði fundinum slitið.
Framsöguerindin á fúndinum og fundargerðina
með ályktunum hans er að finna á heimasíðu sam-
bandsins www.samband.is.
Næsti fiindur fulltrúaráðsins
22. og 23. mars
Ákveðið hefur verið að næsti fundur fulltrúaráðs
sambandsins, hinn 62. í röðinni, verði haldinn á
Hótel Örk í Hveragerði miðvikudaginnn 22. og
fimmtudaginn 23. mars. Á dagskrá fundarins verða
m.a. tillögur byggðanefndar sambandsins og þær
athugasemdir sem fram komu á 61. fulltrúaráðs-
fundinum við þær.
Nýr fiilltrúaráðsmaður og að-
almaður í stjóm sambandsins
Sigurður R. Ólafsson, bæjarfulltrúi í ísa-
fjarðarbæ, afsalaði sér sæti sínu í stjórn sam-
bandsins á fundi hinn 22. nóvemer sl. Þá lét
hann einnig af störfum sem bæjarfulltrúi í ísa-
fjarðarbæ þar eð hann hafði flust úr sveitarfé-
laginu og misst við það kjörgengi sitt.
Lárus G. Valdimarsson, bæjarfulltrúi í ísa-
fjarðarbæ, var á fundi fulltrúaráðsins hinn 23.
nóvember kosinn sem aðalmaður i fulltrúa-
ráðið og í stjórn þess í staðinn fyrir Sigurð.