Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Side 47
Orkumál
365
Sigurður Ingvarsson, formaður stjórnar HS hf:
Hitaveita Suðumesja hf.
Stofnfundur Hitaveitu Suðurnesja hf. var haldinn
hinn 30. mars 2001, þannig að þróun verkefnisins
hefur tekið töluvert á þriðja ár en stofnaðilar HS
hf. eru Reykjanesbær, ríkissjóður, Hafnarfjarðar-
bær, Grindavíkurbær, Gerðahreppur og Vatnsleysu-
strandarhreppur.
Stofnaðilar hafa gert með sér samkomulag um
samruna Hitaveitu Suðurnesja og Rafveitu Hafnar-
ijarðar.
Markmið sveitarfélaganna
Markmið sveitarfélaganna með stofnun HS hf.
eru:
- að ná fram lægra raforkuverði fyrir einstakl-
inga og fyrirtæki í sveitarfélögunum,
- að nýta jarðhitaauðlindir innan sveitarfélag-
anna og eftir atvikum víðar á landinu,
- að öðlast aukna hlutdeild í eigin orkumálum,
- að gerast eignaraðilar að öflugu orkufyrirtæki
með víðtæka reynslu í vinnslu, sölu og dreifingu á
jarðhita og raforku,
- að athuga möguleika á því að sveitarfélögin
gerist þátttakendur í rekstri orkuveitu, m.a. til að
stuðla að lækkun orkuverðs og að koma í veg fyrir
að íbúar og fyrirtæki í sveitarfélögunum séu með
beinum hætti skattlögð til að standa undir rekstri
annarra sveitarfélaga,
- að vinna að iðnþróun og uppbyggingu atvinnu-
lífs með því að laða að iðnað sem nýtir auðlindir
jarðhitasvæðanna og
Sigurðw Ingvarsson er
fieddur 4. nóvember 1941 í
Garði. Hann hefur starfað
sem verktaki sl. 35 ár í fyrir-
tæki undir eigin nafni, hefur
setið í hreppsnefhd Gerða-
hrepps frá árinu 1974 og
hefur verið oddviti sl. tvö
kjörtímabil. Hann hefur gegnt
ýmsum trúnaöarstörfum á
vegum sveitarfélagsins og er nú stjórnarformaður
Hitaveitu Suðurnesja hf.
- að tryggja, m.a. með stofnun orkugarða, aukna
nýtingu áðurgreindra auðlinda og stuðla þannig að
aukinni atvinnustarfsemi og auknum tekjum sveit-
arfélaganna.
Skipting eignarhlutar í HS
Eignarhlutur í Hitaveitu Suðurnesja hf. skiptist á
eftirfarandi hátt:
Reykjanesbær 43,5%
Rikissjóður íslands 16,667%
Hafnarfjarðarbær 16,667%
Grindavíkurbær 9,308%
Sandgerðisbær 5,825%
Gerðahreppur 5,058%
Vatnleysustrandarhreppur 2,975%
Með stofnun Hitaveitu Suðurnesja hf. er að mínu
viti verið að stíga enn eitt framfarasporið fyrir
okkur íbúana. Með stækkun fyrirtækisins skapast
enn meiri möguleikar til að sækja fram á veginn til
frekari uppbyggingar.
Stofnun Hitaveitu Suðurnesja hf.
Hitaveita Suðurnesja hefur ávallt verið fyrirtæki
sem hefur gætt sín vel á því að staðna ekki, heldur
horft fram á veginn og verið framsækið fyrirtæki.
Stofnun HS hf. var talin nauðsynleg í ljósi þess
að ný orkulög voru í undirbúningi, þar sem reiknað
var með að fyrirtækið yrði að stækka til að verða
samkeppnisfært á raforkumarkaðnum. Menn hafa
gert sér grein fyrir að stöðnun þýðir hrörnun.
Nýjar leiðir og nýjar víddir koma jafnt og þétt inn i
sjóndeildarhringinn.
í október 1998 komu saman til fundar í Eldborg
sveitarstjórnarmenn og stjórnarmenn HS og voru
viðstaddir undirritun samkomulags milli Hitaveitu
Suðurnesja, Hafnarfjarðarbæjar, Garðabæjar og
Bessastaðahrepps um samstarf og samvinnu varð-
andi nýtingu jarðhita og aðra alhliða samvinnu á
sviði orkumála. Nú hefur þetta leitt af sér að Raf-
veita HafnarQarðar og Hitaveita Suðurnesja hafa
sameinast.
Hinn 17. október sl. var nýrri borholu hleypt upp á