Uppeldi og menntun - 01.07.2014, Page 47
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(2) 2014 47
linda BjörK ólafsdóttir, snæfríðUr þóra egilson og K jartan ólafsson
Tafla 2. Bakgrunnsupplýsingar frá foreldrum barna í rannsóknar- og samanburðarhópi
Rannsóknarhópur Samanburðarhópur
Fjöldi* (%) Fjöldi* (%)
Kyn barns
Drengir 112 (86,8) 237 (82,9)
Stúlkur 17 (13,2) 49 (17,1)
Aldur barns
8–11 ára 50 (38,8) 124 (43,4)
12–17 ára 79 (61,2) 162 (56,6)
Búseta
Á höfuðborgarsvæðinu 81 (62,8) 179 (62,6)
Annað þéttbýli (með yfir 4000 íbúa) 29 (22,5) 69 (24,1)
Dreifbýli 19 (14,7) 38 (13,3)
Skólakerfi
Nám í almennum bekk 115 (89,1) 278 (97,5)
Nám í sérdeild eða öðru sérúrræði 14 (10,9) 7 (2,5)
Foreldri sem svarar
Móðir 115 (89,1) 249 (87,1)
Faðir 12 (9,3) 35 (12,2)
Annað ættmenni 2 (1,6) 2 (0,7)
Aldur foreldris
28–37 ára 25 (19,7) 46 (16,4)
38–47 ára 72 (56,7) 175 (62,3)
48–57 ára 27 (21,3) 57 (20,3)
58–67 ára 3 (2,3) 3 (1,0)
Menntun foreldris
Háskólapróf 73 (56,6) 191 (66,8)
Lægra menntunarstig 56 (43,4) 95 (33,2)
* Samanlagður fjöldi þátttakenda getur verið mismunandi vegna ósvaraðra spurninga
Matstæki
Lífsgæði barna í rannsóknar- og samanburðarhópi voru könnuð með sjálfsmats- og
foreldraútgáfu KIDSCREEN-27. Með listanum eru lífsgæði barna metin á fimm vídd-
um sem lúta að hreyfiathöfnum og heilsu, almennri líðan og sjálfsmynd, fjölskyldu og
frjálsum tíma, vinatengslum og, skóla og námi (sjá töflu 3). Svör þátttakenda áttu að
endurspegla stöðu og viðhorf barnanna síðastliðna viku. Einnig var spurt um kyn og
aldur barns, fötlunargreiningu og hvort barnið stundaði nám í almennum bekk eða
sérdeild/sérskóla. Foreldrar voru beðnir að gefa upp aldur sinn og menntunarstig.
Útbúin var rafræn útgáfa af matslistanum. Þar birtist ein spurning á skjánum í einu
og gafst börnunum kostur á að hlusta á hljóðupptökur af hverri spurningu. Leitast var
við að hafa uppsetningu matslistanna skýra og allt netviðmót sem einfaldast.