Uppeldi og menntun - 01.07.2014, Qupperneq 120

Uppeldi og menntun - 01.07.2014, Qupperneq 120
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(2) 2014120 Um fagmennsKU í sKólastarfi Höfundar átta kafla bókarinnar eru samstarfsmenn Trausta á Norðurlandi en fimm höfundar eru „að sunnan“ eins og gjarnan er sagt norðan heiða. Höfundarnir voru valdir út frá viðfangsefnum og rannsóknum sem tengjast helstu áherslum Trausta og áhugamálum sem snerta skólamál, einkum fagmennsku kennara og skólastjórnenda. Lærdómssamfélag og forysta Tveir fyrstu kaflarnir fjalla um hugtakið lærdómssamfélag sem er tiltölulega nýtt í um- ræðu um eflingu fagmennsku kennara og skólaþróun hér á landi. Í umfjöllun Önnu Kristínar Sigurðardóttur um hugtakið eru hagnýtar upplýsingar og tillögur um leiðir til að efla og styrkja lærdómssamfélag þar sem nám og árangur nemenda er megin- markmið. Áhersla er lögð á faglega þróun í starfi kennara með dyggri forystu skóla- stjóra, sem eru í forystu um þróun skólastarfsins. Þar er lögð rík áhersla á samstarf kennara og skólastjórnenda sem saman mynda lærdómssamfélag. Mikilvægur hluti kaflans er um „leiðir til að þróa og styrkja lærdómssamfélag“ (bls. 47). Þar er athyglis- verð lýsing á því hvernig vinna má að sameiginlegri framtíðarsýn samstarfsamanna skóla til að „stefna komist í framkvæmd og leiði til umbóta“ (bls. 47). Skýrt kemur fram í kaflanum að tilgangur með samvinnu í lærdómssamfélagi er að markmið og bættur árangur náist í skólastarfinu. Kemur það heim og saman við áherslu Trausta á nemandann og nám hans sem hann vill að sé ávallt í brennidepli. Í framhaldi af kafla Önnu Kristínar er kaflinn Einstaklingsmiðun sem markmið í lær- dómssamfélagi. Þar greina þau Birna Svanbergsdóttir, Allyson Macdonald og Guð- mundur Heiðar Frímannsson frá starfendarannsókn í grunnskóla hér á landi. Þar er mjög vel útskýrt hvernig hægt var að taka fyrir ákveðið efni og innleiða í lærdóms- samfélagi sem „stuðlaði að efldu og bættu námi“ (bls. 55). Sérstaka athygli vekur niðurstaða úr rýnihópaviðtölum við nemendur þar sem þeir lýsa námi sínu sem mjög „hefðbundnu“ (bls. 70–71). Þátttaka í lærdómssamfélagi er liður í breyttum áherslum á samvinnu og fagmennsku í skólastarfi og tengist því sem Trausti Þorsteinsson nefnir samvirka fagmennsku í fyrrnefndri bók frá 2003. Umfjöllun um rannsókn Birnu og félaga styður vel þá skilgreiningu á hugtakinu lærdómssamfélag sem fram kemur í kafla Önnu Kristínar. Í báðum köflunum tekst ágætlega að skilgreina þetta nýja hug- tak í umræðu um skólamál hér á landi. Nánari umfjöllun um gildi þátttöku kennara í lærdómssamfélagi og áhrif hennar á virkni nemenda í eigin námi og árangur hefði gjarnan mátt vera í báðum köflunum. Þriðji kafli ritsins er eftir Börk Hansen og fjallar um forystu og skólastarf. Hann tengist köflunum á undan prýðilega með umfjöllun um hlutverk skólastjóra og mik- ilvægi þeirra í skólaþróun. Einnig kemur skýrt fram að hlutverk þeirra breytist með aukinni þátttöku í lærdómssamfélagi og auknum tengslum við kennara og samvinnu við þá svo og dreifingu á forystu, en hvort tveggja stuðlar að framförum og bættum árangri í skólastarfi. Í skrifum Barkar kemur vel fram að hlutverk skólastjórnenda hefur á síðustu árum þróast frá því að þeir sinni að mestu ytri ramma skólastarfs eða kerfinu eins og það er kallað yfir í aukna þátttöku í innra starfi skóla, til dæmis með skipulagningu á faglegri ráðgjöf kennurum til handa (bls. 88–89). Segja má að sam- svörun sé á milli breytts hlutverks skólastjóra hvað varðar samvinnu við kennara og
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.