Uppeldi og menntun - 01.07.2014, Blaðsíða 119
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(2) 2014 119
JóHanna karlSdóttir
MenntaVíSindaSViði HáSkóla íSlandS
Uppeldi og menntun
23. árgangur 2. hefti 2014
Um fagmennsku í skólastarfi
Rúnar Sigþórsson, Rósa Eggertsdóttir og Guðmundur Heiðar Frímannsson (ritstjórar).
(2013). Fagmennska í skólastarfi: Skrifað til heiðurs Trausta Þorsteinssyni. Reykjavík:
Háskólinn á Akureyri og Háskólaútgáfan. 296 bls.
Ritið Fagmennska í skólastarfi er skrifað til heiðurs Trausta Þorsteinssyni. Trausti hefur
helgað ævistarf sitt skólamálum; var kennari, skólastjóri og fræðslustjóri um árabil,
síðan forstöðumaður Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og er nú
dósent við framhaldsbraut kennaradeildar sama skóla. Trausti hefur því komið víða
við í þróun skólamála hérlendis og hefur fagmennska, bæði kennara og skólastjórn-
enda, verið eitt helsta hugðarefni hans. Kafli Trausta um Fagmennsku kennara sem
birtist í bókinni Fagmennska og forysta: Þættir í skólastjórnun var tímamótaumfjöllun
um það efni þegar bókin kom út árið 2003. Þess vegna var vel við hæfi að gefa út rit
Trausta til heiðurs tíu árum síðar þar sem fagmennska kennara og skólastjórnenda er
skoðuð frá ýmsum sjónarhornum fræðimanna og rannsakenda hér á landi.
Um bókina
Ritið skiptist í tólf kafla, sem þrettán höfundar skrifa, auk Formála eftir Jónas Pálsson,
fyrrverandi rektor Kennaraskóla Íslands, og Inngangs ritstjóranna. Fyrir framan kafl-
ana er viðtal við Trausta Þorsteinsson sem ritstjórarnir tóku; þar koma helstu hugðar-
efni hans og áherslur í skólamálum vel fram.
Í viðtalinu er lagður grunnur að efni bókarinnar. „Leiðarstef hennar er velferð og
menntandi námsreynsla barna og ungmenna í skólum“ segir í lýsingu á bókarkápu.
Þar setur Trausti fram hugmyndir og tillögur til úrbóta í skólamálum af hreinskilni og
heiðarleika og eru tillögur hans mjög athyglisverðar að mínu mati. Nefna má sérstak-
lega umfjöllun um ólík snið á fagmennsku kennara (bls. 22), kennaramenntunina (bls.
28–30) og skóla fyrir alla (bls. 23–25). Áhersla Trausta á fagmannleg vinnubrögð þeirra
sem koma að menntun og uppeldi í skólum landsins er ekki síst með fjölbreyttan
nemendahóp, þar sem komið er til móts við ólíkar þarfir og áhuga barna og ung-
menna, í huga.