Uppeldi og menntun - 01.07.2014, Side 125

Uppeldi og menntun - 01.07.2014, Side 125
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(2) 2014 125 María HildiÞórSdóttir fraMkVæMdaStJóri SJónarHólS Uppeldi og menntun 23. árgangur 2. hefti 2014 Fötlun og menning: Íslandssagan í öðru ljósi Hanna Björg Sigurjónsdóttir, Ármann Jakobsson og Kristín Björnsdóttir (ritstjórar). (2013). Fötlun og menning: Íslandssagan í öðru ljósi. Reykjavík: Félagsvísinda- stofnun Háskóla Íslands og Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum. 331 bls. Fötlunarfræði er tiltölulega ung þverfagleg fræðigrein sem hefur rutt sér til rúms á síðustu áratugum á Íslandi. Bókin Fötlun og menning: Íslandssagan í öðru ljósi er gagn- rýnið rit, skrifað frá sjónarhorni fötlunarfræða. Í inngangi ritstjóra er fötlun skilgreind og gerð grein fyrir mismunandi sjónarhornum á fötlun. Inngangurinn hefur afgerandi og upplýsandi gildi fyrir bókina, sérstaklega fyrir þá lesendur sem ekki hafa innsýn í fötlunarfræði. Þar er pólitísku, menningarlegu og félagslegu samhengi fötlunarfræði lýst. Fötlunarfræði leggur áherslu á að fötlun sé ekki skoðuð út frá einstaklingnum og skerðingum hans heldur því hvernig samfélagið stuðlar að fötlun einstaklingsins með félagslegum hindrunum, neikvæðum viðhorfum og undirokun. Megininntaki bókarinnar er lýst í inngangi; að gera lesendum grein fyrir mikil- vægi þess að ekki sé horft á fötlun sem persónulegan harmleik, fatlað fólk sé fólk með margvíslega hæfileika eins og allir aðrir og það beri að virða í samfélaginu. Lögð er áhersla á að sýna hvernig samfélagið á hverjum tíma hefur með ýmsum hætti lýst fötluðu fólki sem hjálparþurfi, vanmáttugu og „öðruvísi“ og þannig ýtt því út á jaðar samfélagsins. Tilgangurinn er að sýna hvert hlutskipti fatlaðs fólks hefur verið á ólík- um tímum með það að leiðarljósi að við lítum það gagnrýnum augum hvernig fatlað fólk birtist í menningu og listum í víðum skilningi. Undirtitill bókarinnar, Íslandssagan í öðru ljósi, lýsir því ætlunarverki að hverfa langt aftur og horfa á stöðu fatlaðs fólks á hinum ýmsu tímum og rýna í þær heimildir sem til eru. Um bókina Bókin skiptist í þrettán sjálfstæða kafla. Þá rita ellefu fræðimenn auk ritstjóra. Fræði- mennirnir eru: Kolfinna Jónatansdóttir, Eva Þórdís Ebenezersdóttir, Eiríkur Smith, Sigurgeir Guðjónsson, Sigurjón Baldur Hafsteinsson, Guðrún Steinþórsdóttir, Eiríksína Kr. Ásgrímsdóttir, Rannveig Traustadóttir, Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.