Helgafell - 01.04.1944, Side 40

Helgafell - 01.04.1944, Side 40
22 HELGAFELL og skylt að láta nú í ljós, það sem ég veit um afskipti hans af fánamálinu. Það var kona mín, sem trúði mér fyrir því, — en hún var systurdóttir Hannesar og fósturdóttir Ragnheiðar og Hannesar Hafstein frá því hún fermdist og þar til við giftumst, — að móðurbróðir sinn hefði, þegar hann var bæjarfógeti á Isafirði, varið mörgum tómstundum sínum til þess að kynna sér fánamál þjóða og til þess að gera uppdrætti að íslenzkum fána, og hafi hann haft sérstakar mætur á uppdrætti, sem hann hafði dregið upp af blá- um fána með rauðum krossi hvítjöðruðum, og borið þá gerð sérstaklega undir álit konu sinnar, sem hafði þótt flaggið einkar fallegt. Við Hannes Hafstein ræddi ég ekki fánamálið fyrr en fánanefndin hafði lokið störfum sínum, og staðfesti hann þá frásögn konu minnar, og sagði mér, að hann hefði sérstaklega hugsað um fána fyrir Island, er hann var sýslumaður á lsafirði. Hefði sér þótt rétt, að íslenzki fáninn væri krossfáni, eins og Norðurlandafánarnir hinir, og þá þrílitur eins og fáni Norðmanna, því í íslenzkum fána ætti fyrst og fremst að vera þjóðliturinn blái og svo litir íss og elds, þ. e. hvítur litur og rauður, en rauði liturinn væri og litur kærleik- ans. Tók Hannes Hafstein fram, að frá fánauppdrætti sínum hefði hann engum sagt nema konu sinni og máske dætrum, enda mættu persónulegar tilfinningar engu ráða í þessu mikla velferðarmáli, og framar öllu væri sér umhugað að leiða fánamálið farsællega til lykta, og mundi hann í öllu hlíta vilja Alþingis og leggja þá fánagerð fyrir konung til staðfestingar, sem Alþingi kysi. Spurði ég að því, hvort konungur hefði viljað ráða nokkru um lit og gerð íslenzka fánans, og svaraði Hafstein því eindregið neitandi, en vísaði um synjun konungs á því að staðfesta fyrir Island þjóðfána, blá- an með hvítum krossi, til þess er konungur hafði sagt í ríkisráði 22. nóv. 1913 um gerð hinna grísku fána. 1 því sambandi sagði Hafstein mér frá því, að konungur hefði í gamni sagt á þá leið við sig persónulega, en ekki sem ráðherra, ,,að þó sér væri vel við frænda sinn Grikkjakonung og vildi, að fáni hans blaktaði yfir eyjum í Grikklandshafi, þá gæti hann ekki unnt hon- um þess að láta fána hans og blakta yfir eyjunni í Atlantshafi". Fáninn þríliti hefur nú í tæp 30 ár blaktað yfir okkur íslendingum sem innsigli þjóðernis og sjálfstæðis. Á þessum árum hafa orðið stórfelldari fram- farir hér á.landi en á nokkrum öðrum mannsaldri, síðan land þetta var byggt, að landnáminu sjálfu undanteknu. Undir íslenzka fánanum hafa sjó- menn okkar siglt og munu sigla. Undir honum hafa þeir fallið og úthellt blóði sínu, sem rauði liturinn mætti yel minna okkur á, svo að fáninn verði okkur enn kærari og enn helgari en hann þegar er orðinn. Þótt bili hendur, er bættur galli, ef merkið stendur, þótt maðurinn falli. Júl. Havsteen.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.