Helgafell - 01.04.1944, Qupperneq 94
FREDERICK LEWIS ALLEN:
Vísmdaleg skoðanakönnun
(Úr nýlegri grein, ejtir einn hinn
áhrifamesta og mœtasta blaSamann og
rithöjund Bandaríkjanna, FREDERICK
LEWIS ALLEN, aöalritstjóra tíma-
ritsins HARPER’S MAGAZINE).
Skoðanakannanirnar svonefndu í
Bandaríkjunum eru án efa meðal
markverðustu og umdeildustu nýjunga
á sviði stjórnmála og félagsfræða síð-
asta áratuginn, með því sniði, sem
þær hafa tekið á sig í meðförum
þeirra dr. Gallups, Ropers og fleiri.
Þetta er al-amerísk uppfinning,
sem á rætur að rekja til auglýsinga-
starfsemi, þar sem tekin höfðu verið
upp nýjustu vinnubrögð hagfræðinga.
í markaðskönnunar og sölumennsku.
Prófkosningar eru vitanlega mjög
gamalt fyrirbrigði, en vísindaleg skoð-
anakönnun er tiltölulega ný. Fyrir
rúmum tuttugu árum hófu amerískar
auglýsingastofur svokallaðar ,,mark-
aðskannanir'". í stað þess að láta ser
nægja auglýsingar einar til þess að
hvetja fólk til að kaupa ákveðnar sápu-
tegundir, sendu þær menn heim til
húsmæðranna til að hafa tal af þeim
og spyrja þær, hvaða sáputegund þær
notuðu og hvers vegna. Þannig gátu
auglýsendur reist fortölur sínar á stað-
reyndum, en ekki ágizkunum einum,
og stundum leiðbeint framleiðendum
um breytingar á gerð sáputegundanna
sjálfra. En heim til hverra átti að
fara, til þess að fá rétta mynd af
skoðunum sápukaupenda ? Nú var
leitað til hagfræðinga, sem leiknir voru
í prófkönnun (sampling), og þeir vís-
uðu brátt leiðina.
Skoðanakönnun er, í stuttu máli
sagt, aðferð til þess að komast að því,
hvernig almenningsálitið skiptist hlut-
fallslega um eitthvert mál, á þann
hátt, að sendir eru trúnaðarmenn til
að spyrja tiltölulega fámennan hóp
(úrtak), sem er valinn þannig, að sem
allra réttust mynd fáist af heildinni.
Ef nægilega er vandað til valsins á
einstaklingunum, sem spurðir eru, —
karlar og konur valin í réttum hlutföll-
um, borgarbúar, þorpsbúar, sveitafólk,
fólk á vissum aldursstigum og í ýms-
um tekjuflokkum, fólk með mismun
andi stjórnmálaskoðanir o. s. frv. —
á að vera nægilegt að spyrja 2500 :—
toö þúsund og jimm hundruð menn og
konur til að segja fyrir um, hvernig
jimmtíu milljónir kjósenda greiða at-
kvæði, og það með slíkri nákvæmni
að ekki skeikar til eða frá nema um
tvo til þrjá af hundraði, í mesta lagi.
Ef urtak skoðanakönnunar kýs fram-
bjóðandann Smith með 58% atkvæð-
um, má telja fullvíst, að Smith verði
kosinn. Og meira til: það er nokkurn
veginn víst, að hann fái á milli
55—61 % allra greiddra atkvæða.
Einhvern tíma á árunum 1920—30