Helgafell - 01.04.1944, Qupperneq 95
SKOÐANAKÖNNUN
77
datt ungum námsmanni við ríkishá-
skólann í Iowa, George Gallup að
nafni, þaS snjallræSi í hug, aS unnt
mundi aS færa út kvíar þessarar könn-
unaraSferSar og beita henni á nýjum
sviSum. Þannig væri t. d. hægt aS
afla útgefendum dagblaSa upplýs-
inga um þær tegundir frétta, sem les-
endur þeirra óskuSu helzt eftir. —
Gallup fluttist svo til New York laust
eftir 1930 og gerSist þar auglýsinga-
stjóri. Hann sá nú hilla undir enn
meiri og víStækari verkefni fyrir könn-
unaraSferS sína, og kom von bráSar á
fót stofnun, er hann nefndi, af ærnum
stórhug, American Institute of Public
Opinion. Hann réS sér því næst nokk-
ur hundruS manna út um öll Banda-
ríkin, til þess aukastarfs aS hringja
dyrabjöllum hús úr húsi og spyrja
almenning um allt, sem nöfnum tjá-
ir aS nefna, notkun tannsáputegunda
og viShorf til frambjóSenda viS for-
setakosningar. Um svipaS leyti hóf
annar auglýsingastjóri, Elmo Roper,
áþekkar kannanir fyrir tímaritiS For-
tune.
ViS forsetakjöriS 1936 unnu þeir
Gallup og Roper fyrsta stórsigur sinn.
Gamalt, íhaldssamt vikublaS, Literary
Digest, hafSi um langt skeiS staSiS aS
prófkjöri fyrir forsetakosningar og
gerSi þaS enn í þetta sinn. Þau próf-
kjör höfSu jafnan veriS framkvæmd
meS þeirri gömlu og velmetnu (en ó-
vísindalegu) aSferS aS senda nokkrar
milljónir af bréfspjöldum til manna,
sem fyrirfundust í símaskrám og öSr-
um slíkum leiSarvísum. Þessi aSferS
hafSi jafnan þótt gefast vel áSur. En
nú brá svo viS, í fyrsta sinn í sögu
Bandaríkjanna á síSari tímum, aS fá-
tækara fólkiS, eSa sá hluti þjóSarinn-
ar, sem sízt var líklegur til aS hafa
síma eSa svara bréfspjöldum, stóS
nær einhuga meS öSrum frambjóSand-
anum, — Roosevelt. Þegar Literary
Digest fékk svör á þá leiS, aS einung-
is 40,9% kjósenda hefSu greitt Roose-
velt atkvæSi, spáSi blaSiS hiklaust
sigri Landons, frambjóSanda Repú-
blikana. En skoSanakönnuSir Gall-
ups höfSu aftur á móti þá sögu aS
segja, aS 53,8% hefSu kosiS Roose-
velt, og Roper hafSi jafnvel fengiS þau
úrslit, aS 61,7% væru á Roosevelts
bandi. Vi'S sjálfar forsetakpsningarnar
fékk Roosevelt 60,7% atkvœða!
SkoSanakönnunin tók nú aS vekja
geysimikla athygli og umræSur. ,,Gall-
upskönnunin" var á allra vörum.
Hinar vikulegu greinar Gallups um
niSurstöSur skoSanaprófa fyrir vænt-
anlegar kosningar eSa um ýmis al-
menn mál, birtust nú samtímis í
mörgum blaSanna, og urSu eins
konar sér-amerískar hagskýrslur. —
Forsagnir um kosningar reyndust
venjulega furSu nákvæmar, og niS-
urstöSurnar um skoSanir almennings
í öSrum efnum ávallt leiSbeinandi og
athyglisverSar. 1 Englandi var komiS
á laggirnar stofnun til svipaSra kann-
ana, — og hafa niSurstöSur hennar
veriS birtar í NeWs Chronicle síSustu
fjögur árin. SíSan hafa áþekkar stofn-
anir risiS á legg í Kanada, Ástralíu
og SvíþjóS.
Mikill styrr hefur staSiS um þá
Gallup og Roper og aSferSir þeirra
frá upphafi. Annars vegar hafa staSiS
eldmóSugir áhangendur, sem hér hafa
þótzt sjá félagsmálanýjung, er gæti
haft ómetanlegt leiSbeiningargildi fyr-
ir löggjafa ríkisins. (Hvers vegna ættu
þingmenn aS vera aS leggja þaS á sig