Helgafell - 01.04.1944, Side 128

Helgafell - 01.04.1944, Side 128
110 HELGAFELL súlu, svo að jafnvægi er í myndinni milli þeirra og Bakkusar utan við dans- endurna á miðsviðinu. Þetta er því list, sem á rætur sínar í fornlist Rómverja og Grikkja, og legg- ur rækt við formið, — hrein-klassisk list, sem fyrst og fremst ástundar mannamyndir, en skipar þeim saman á áhrifamikinn hátt í mikilli fjarvídd. Þótt litir væru ekki aðalatriði hjá Poussin, eru þeir samt sem áður not- aðir með miklum árangri, til þess að styðja myndarsamstæðuna. Pouss- in var ekki akademiskur að því leyti, að hann væri vitandi vits að skapa kennisetningar um list á grundvelli listastefnu fyrri alda. Hann var klass- iskur að því leyti, að hann hugsaði og fann til á svipaðan hátt og hinir fornu listamenn. En á grundvallaratriðunum í list Poussins voru reistar kenningar frönsku listaskólanna á síðari hluta 17. aldar, á stjórnarárum Lúðvígs fjórt- ánda. Poussin varð átrúnaðargoð, — andlegur leiðtogi frönsku akademík- aranna. Markmið þeirra var sem ná- kvæmust stæling fornlistarinnar, en þeir gerðu engan greinarmun á list Poussins og fornlist Grikkja og Róm- verja. Á ríkisárum Lúðvígs 14. tók Frakk- land þá forustu í list, sem það hefur haft lengi síðan. Listin, sem skapaðist undir verndarvæng Lúðvígs 14. varaka- demisk í þeirri merkingu, að hún leit- aðist við að fylgja fyrirframákveðn- um reglum. I rauninni voru áhrif Ru- bens á málara þessa tíma miklu meiri en margir þeirra hefðu viljað kannast við. Byggingarlistin — og má þar til dæmis taka Versalahöllina, — var barokkættar, mikilfengleg, en form- föst, og engum hugmyndaauði sóað til hennar. Um aldamótin 1 700 var Frakkland enn miðstöð listasköpunar í Evrópu, en í Frakklandi sjálfu var bylting á ferðum, uppreisn gegn íburðinum og hátíðleikanum í stíl Lúðvígs 14. Með Lúðvíg 15. örlar á þeirri listastefnu, sem við köllum roJ^o\ó-stíl. Þar er stefnt að innileik og smáfelldni í byggingarlist, en í skrautlist að glæsi- leika. Málarar fara nú miklu fínlegar en áður með liti og efnisniðurröðun myndanna. Myndin af Júpiter og Kalistó eftir Boucher, frægan málara á dögum Lúð- vígs 15., er ágætt dæmi um hugsjónir og viðhorf hirðmálaranna um miðbik 18. aldar. Við sjáum strax, að hér er fyrst og fremst um skrautstíl að ræða. Lítið er um fjarvídd í landslaginu. Augað lætur ekki leiðast fjær og fjær í rúmið, heldur dvelur við framsvið- ið, fylgir boglínum mannamyndanna. Litirnir eru ljósir og renna mjúklega hver í annan. Persónurnar eru smá- gervar og gæddar yndisþokka. Lista- maðurinn hefur engan hug á að tjá neina djúphugsaða speki, hann er blátt áfram að segja okkur smásögu með skrautlegum hætti. Sagan er eitt af ástarævintýrum Júpiters. Þarna er um að ræða goðsögnina af því, er Júpi- ter birtist dfsinni Kalistó í gervi Díönu. Þessi tegund listaverka var einkum gerð fyrir listunnendur af aðalsættum í Frakklandi og víðast hvar um heim lengst af 18. aldarinnar. I sérstökum skilningi mætti segja að rokokó-stíll- inn væri síðasti þáttur eða skrautlist- arþáttur hins mikla barokk-stíls frá 17. öldinni. Það má rekja hann óslitið frá Watteau og Paters til Bouchers, og hann lifði meira að segja frönsku stjórnarbyltinguna af, hjá Fragonard. ENGILSAXNESK LIST Átjánda öldin var blómaskeið enskr- ar myndlistar. Þótt ensk list væri lítt frábrugðin franskri í grundvallaratrið- um, greindi margt á milli um efnis- val, og andrúmsloftið, ef svo mætti að orði kveða, var allt annað. Á átj-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.