Helgafell - 01.04.1944, Page 142

Helgafell - 01.04.1944, Page 142
116 HELGAFELL þess fallnar að gæða þær lifandi anda á leiksviði. Þá er eitthvað meira lífs- mót á blessuninni henni Ásu gömlu, með allar sínar hversdagslegu búsá- hyggjur, eða þá Anitru, þessari ást- gjörnu og ósviknu evudóttur. Jafnvel Sú grænklædda er við fyrstu sýn — þrátt fyrir allan fordæðuskapinn — skemmtilega mennsk. 1 fyrri hluta Péturs Gauts, sem nær yfir þrjá fyrstu þættina, kynnumst við unglingnum á heimaslóðum hans. Björkin glitrar í geislum sumarsólar- innar, lækirnir niða og fiðlutónarnir laða. Því næst er dulræna fjallasalar- ins, öræfaflákar og snævi þaktir tind- ar, haustkuldi undir uggvænlegu fargi skógarins. Og að síðustu dánarstund Ásu í fátæklegu stofunni hennar, eins og lokastef í nornakviðu alls, sem norskt er. Þegar við kynnumst hinum virðulega Sir Peter í upphafi annars hluta, eig- um við í fyrstu dálítið erfitt með að átta okkur á því, að þetta sé strákur- inn, sem við þekktum í fyrri hlutan- um. Hin kaldranalega lífsskoðun hans kemur okkur ókunnuglega fyrir, og þótt sagan um feril hans og frama sé glæsileg, er hún engu að síður bitur og nöturleg. Við könnumst ekki fylli- lega við Pétur, fyrr en hann er aftur kominn á norskt land jafn blásnauður og í öndverðu. Við fyllumst samúð og meðaumkvun, þegar við sjáum hugar- stríð hans og skelfingu yfir glataðri ævi. 1 öðrum hluta leiksins bregður skáldið sjálft á leik. Bráðsnjallar, al- þjóðlegar mannlýsingar, persónulegar hnútur og sneiðar og svo, í miðjum klíðum: Ræða prestsins, sem víkur sögunni aftur til fyrri hlutans, þar sem unglingspiltur heggur af sér vísifingur hægri handar til að komast hjá her- þjónustu. En þrátt fyrir allt er það fyrri hlutinn, sem okkur þykir mest um vert. Þar eru hinir föstu, skýru drættir, hin mikla útsýn, hinn hress- andi gustur — hluti af Noregi í spá- mannlegri skáldsýn. Það er eftirtektarvert, að oft hafa ekki verið sýndir nema þrír fyrstu þætt- irnir af Pétri Gaut. Björn Björnson hef- ur til dæmis aldrei leikið annað en unga Pétur. Leikritið er, jafnvel með þessum venjulegu úrfellingum, mjög langt til sýningar og erfitt á sviði. Stöku sinnum hefur því verið skipt á tvö kvöld og þá mjög fáu sleppt. Hlut- verki Péturs hefur jafnvel verið skipt milli tveggja leikenda, annar farið með það í fyrri hlutanum, en hinn í þeim síðari. Það hefur alltaf . verið einhver mesti óskadraumur ljóðrænna leik- ara á Norðurlöndum að fá að leika Pétur Gaut, enda er nafnaskráin yfir þá, sem með hlutverkið hafa farið, frá því er leikritið var fyrst sýnt, 1876, hin glæsilegasta. Hinrik. Klausen lék Pétur Gaut fyrstur manna, síðan hafa leikið hann í Noregi Björn Björnson, Halfdan Kris- tensen, David Knudsen, Harald Schwenzen, Karl Holter, Maurstad og Hans Jakob Nilsen, svo að einungis séu nefndir þeir kunnustu. I Konung- lega leikhúsinu í Höfn hafa þeir Adam Poulsen og Poul Reumert leikið Pétur, og í Svíþjóð Anders de Wahl, í Drama- tiska Teatern í Stokkhólmi. Þegar tekið er tillit til þeirrar arf- helgi, sem komin er á leiksýningar Péturs Gauts, verður að játa, að mikið var í ráðizt með því að taka leikinn til sýningar á gamla sviðinu í Iðnó. Ekki er ætlunin að setjast í leikdóm- arasess; það eitt skal sagt, að sýningin fór fram úr björtustu vonum. Það mun vera gamall draumur, sem nú hefur rætzt, og vissulega er það okkur Norð- mönnum gleðiefni, að það skyldi vera frú Gerd Grieg, sem leikstjórn var falin. Hún gekk að þessu feikimikla vanda-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.