Helgafell - 01.04.1944, Page 160

Helgafell - 01.04.1944, Page 160
134 HELGAFELL Oddborgari og snillingur. ÞRETTÁNDA BINDI af Safni Fræðafélags- ins er nú komið út og hefur að geyma fyrri hluta bréfa Bjarna Thorarensens, í útgáfu Jóns prófessors Helgasonar. Bréfunum er raðað eftir móttakendum, og eru í þessu bindi bréf til Gríms amtmanns Jónssonar og Finns prófessors Magnússonar. Bréfunum fylgja athugasemdir sem eru til fyrirmyndar, stuttar og gagnorðar en þó ýtarlegar. í þessum bréfum sínum kemur Bjarni til dyra í hversdagsklæðum; þau eru hvorki vönduð að máli né stíl, enda hefur hinn umsvifamikli dóm- ari og amtmaður þótzt hafa öðru þarfara að sinna en að snurfusa bréf sín til vina og kunn- ingja. Auk þess kvartar Bjarni um að óbundið mál leiki sér ekki vel í penna, ,,mér er ecki sú lyst lént að skrifa fallega**, ritar hann Finni Magnússyni, og kann það satt að vera. En gildi þessara bréfa liggur í því að þau sýna afstöðu Bjarna til daglegra viðburða og vandamála og hug hans til þeirra manna sem hann hafði sam- an við að sælda, auk þess sem þau geyma margvíslegan fróðleik um samtíð sína og sögu íslands á fyrri hluta 19. aldar. Verður fæst af þessu tínt til hér. Bjarni settist að í Reykjavík 1811 eftir Hafn- arvist sína. Ári síðar skrifar hann Grími fyrsta bréf sitt, og skrifuðust þeir síðan á meðan báð- ir lifðu. Kemur það strax fram í fyrsta bréfi Bjarna, að honum fellur vistin í Reykjavík ekki vel: ,,Uppihald hér í þessari Tíd, helst í Reikia- vík er óþægilegt hvörium Manni sem elskar Födurland sitt“. Óbeit sinni á Reykjavík hélt Bjarni alla ævi. Spratt hún af því, að honum fannst lausung mikil í bæjarlífinu: ,,á Sudur- landi eitrar Reikiavík og Gullbringu sýsla allt, þángad flyckiast Letíngiar Lausamenn og Fant- ar, allt giptist sem giptast vill &c.“, en ekki stafaði hún þó síður af hinu, að Reykjavík var aðsetur danskra kaupmanna og embættismanna, en hvorug þeirra stétta var Bjarna að skapi. Fannst honum það ..Daarekiste Idé“ að embætt- ismenn á Islandi væru danskir og leiðir að því ýms rök. Ekki er trú hans á íslendingum þó meiri en svo, að honum finnst stiftamtmaður eiga að vera danskur, ,,því í þeirri Stödu mun traudlega nockrum Islending vært“. Enda þótt Bjarni beri hag íslands mjög fyrir brjósti og vilji ekki láta Dani ganga á hlut landa sinna, vakir sjálfstæði landsins ekki fyrir honum frekar en öðrum samtíðarmönnum hans, og ást hans á Danakóngi, Friðrik 6., er furðuleg. Tal- ar hann mjög blíðlega um kóng, kallar hann ,,Vor kiære gamle Papa“ og sver og sárt við leggur oftar en einu sinni að hann elski hann af hjarta! Það var því næsta hlálegt að einmitt Bjarni skyldi verða fyrir þeirri ákomu, að sá orðrómur barst út um hann, að hann hefði fyllt Friðrik prins (síðar Friðrik 7.) og komið honum til að þúa sig! Eru það býsna brosleg bréf, sem Bjarni skrifar út af þessum orðrómi. I bréfum Bjarna til Gríms Jónssonar ber mest á hinum stranga og áhugasama embættismanni, enda voru þeir starfsfélagar. Kemur þar víða fram, að Bjarni vill hafa harða stjórn og þving- anir til að halda alþýðunni í skefjum. Alger undirgefni „maa finde Sted í Tyendi Klassen og blandt de mindre dannede Mennesker som Bolværk for den nödvendige og rettferdige Lyd- ighed“. Þó getur hann ekki hugsað sjálfum sér að búa við slíkt og kveðst geta fundið til með almúganum: ,Jeg har tit blevet lidt blöd om Hiertet naar jeg haar seet en talentfuld Almuesmand böje sig for mig, thi jeg har fölt at jeg havde kun Lykken at takke for min Overvægt**. Samt verður það að teljast meir en vafasamt að Bjarna hafi hætt til að verða ,,lidt blöd om Hiertet** þegar hjú eða einkum lausa- fólk átti í hlut, því að þann hluta þjóðarinnar lagði hann mikla fæð á. Hann ofsótti lausa- menn látlaust og hældist af: ,,Lausamenn hefi eg uppgrafid 50 í þeirra Fylsnum og komið mörgum af þeiní í Klær Justitiæ'*. Virðist Bjarni hafa haft þá skoðun, að ekkert gæti haldið mannfólkinu í skefjum annað en þving- anir, strangar refsingar og illæri. Um vinnu- hjúin segir hann: ,,i Husstanden er der et slemt Anarkie som kun Uaar kunne raade Bod paa“, og þegar Friðrik og Agnes eru dæmd til dauða fyrir morðið á Natani Ketilssyni kveðst hann óska þess að þau verði ekki náðuð, því að ,,det var ekki af Vejen om Folk í Hune- vands Syssel engang saae Justitien i sin ræd« some Skikkelse“. Eins og vænta má finna skír- lífisbrot ekki náð fyrir augum Bjarna og hann fyllist mikilli og heilagri reiði þegar Magnús Stephensen lýsir yfir því að tala hórsekra árið 1827 sé 14, í stað þess að hún hafi réttilega verið 51 ! Bjarni telur fjarstæðu að leyfa eigna- lausu fólki að gifta sig. Um það segir hann: ,,Nú er komid fallegt uppúr Kafi . . . ad hvör má í Islandi giptast sem vill þó eckért Jardnædi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.