Helgafell - 01.04.1944, Page 171

Helgafell - 01.04.1944, Page 171
ERLENDAR BOKAFREGNIR Túlkun íslenzkrar ljóðlistar. Ruth Dzulko: STUDIEN ZUR IS- LÁNDISCHEN LYRIK DER GE- GENWART. Breslau 1941. Nútímabókmenntir vorar verða erlendum fræðimönnum svo sjaldan viðfangsefni, að við- burður má heita, ef bók kemur út um þau mál. En hér er um að ræða doktorsritgerð þýzkrar stúlku, sem m. a. hefur stundað nám tvö miss- eri við Háskóla Islands. Mun mörgum leika hugur á að vita, hvernig yngstu ljóðskáld vor eru túlkuð fyrir erlendri þjóð. Á sinn hátt er ritgerð þessi athyglisverð. Fyrsti hluti bókarinnar gefur yfirlit yfir ís- lenzka ljóðlist á 19. og 20. öld. Hér á ,,að sýna einkenni hinnar íslenzku þjóðsálar og hefðina í ljóðagerð Islendinga“ (bls. 3). Yfirlit þetta fer mjög fljótt yfir sögu, og með því að höf. lætur sér umhugað um að telja upp hvert skáld frá Bjarna Thorarensen til Stephans G. Stephans- sonar og Guðmundar Friðjónssonar, verður lít- ið rúm eftir til að gera grein fyrir sálrænum einkennum Islendinga og þróun skáldskaparins. Ekki er samt alþýðuskáldskaparins getið, en Guðmundur Friðjónsson sýndur með því að bera hann saman við Einar Benediktsson. Það er ís- lendingum kunnara en frá þurfi að segja, að fátt er sambærilegt með þessum tveim skáldum. Guðmundur er sjálfmenntaður bóndi og hefur lengstum búið við mikið strit og þröngan kost. Einar aftur á móti er eitt hið víðförulasta og há- menntaðasta ljóðskáld, sem vér eigum. Að sama skapi er skáldskapur þeirra gagnólíkur. Það virðist því ekki nærtækt um samanburðinn. Ekki gerir höf. samt grein fyrir tilgangi hans. Hefði hún aftur á móti litið á Guðmund Friðjónsson sem alþýðuskáld og merkilegan fulltrúa íslenzkr- ar alþýðumenningar, myndi mat hennar á hon- um hafa orðið réttmætara og frjórra. Einmitt í alþýðukveðskapnum birtist mikilvæg einkenni íslenzks sálarlífs. í stað þess að bora í slíkar mergholur lætur höf. sér stundum nægja mög- ur slagorð. Þannig á ,,Grundzug islándischer HELGAFELL 1944 Wesenheit“ að vera hið ,,eigentíimlich Natio- nale“, eins og fagurfræðin einkenni Dani, sið- fræðin Svía og heilabrotin (Problematik) Norð- menn (bls. 9). Slík slagorð ná aldrei til kjarn- ans. En þess ber þó hér að gæta, að yfirlit þetta er mjög stutt. Tilgangur þess er fyrst og fremst sá, að opna skilningi lesandans leið til yngstu skáldanna. Gildi hans er undir því kom- ið, hvernig þetta tekst. Davíð Stefánsson, Tómas Guðmundsson, Guðmundur Böðvarsson og Stefán frá Hvítadal eru skáldin, sem höf. tekur til meðferðar. En Davíð situr þó í öndvegi, aðalefni bókarinnar eru ljóð hans. Eftir honum eru hin skáldin dæmd, en verða að öðru leyti að sitja á hakan- um. Ljóð Davíðs greinast [ 6 flokka, eftir því hvort náttúran, ástin, heimsskoðunin, félags- málin, stjórnmálin eða þjóðtrúin verða honum að yrkisefni. Ut frá þessu sjónarmiði á höf. auðvelt með að rekja ýmsa þætti í skáldskap Davíðs, en sums staðar virðist þessi skipting þó ekki laus við þvingun, t. d. þegar skáldið er lofað sem hinn ákveðni umbótamaður í stjórn- málum og sem boðberi nýrrar trúar og nýs sið- gæðis með íslendingum. Höf. hefur óljóst hug- boð um, að ekki muni allir íslendingar gjalda þessari skoðun samþykki sitt, en það haggar ekki þeirri sannfæringu hennar, að Davíð berj- ist hinni góðu baráttu gegn stjórnarvöldum, ,,sem ekki eiga lengur rætur sínar í íslenzku þjóð- erni“ (bls. 80). Hrifni hennar af Davíð er tak- markalaus og léttir henni skilning á ljóðum hans, en villir henni jafnframt sýn, þegar um miður heppnuð kvæði er að ræða. T. d. telur hún ,,Vorboðann“, þar sem konan minnir skáld- ið á ,,stygga fjallafola og feita sauðahjörð“, og ,,Dalakofann“ til beztu afreka Davíðs (,,ein leuchtendes Band von Liebe und Natur“, ..prachtvolle Strophen seiner Liebeslyrik“ (bls. 54—55). íslendingar vita, að Davíð hefur oft tekizt betur. Ungfrú Dzulko skoðar hvert verk hans aðeins í ljósi hrifni sinnar. í skáldskap hans ,,hljóma í senn dansandi léttleiki, skugga- legt þunglyndi, bitur hæðnishlátur og sönn auð- mýkt, barnslegt traust og innileiki, en í þennan 10
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.