Helgafell - 01.04.1944, Blaðsíða 181
UNDIR SKILNINGSTRÉNU
155
ÞARF EKKI AÐ VERA STÓR
Viljum kaupa lítinn peningaskáp. Sjálfstæðis-
flokkurinn. — Augl. í MBL 31/3.
SKYLDI ÞEIM EKKI BREGÐA VIÐ?
I héruðum þeim, sem innrásarher nazista
hefur verið hrakinn brott úr, vinnur sovétstjórn-
in að því að koma á lögleysi því og ofbeldi, sem
stjórnarstefnu hennar er samfara. — ALÞBL.
9/5, í þýddri grein úr New Leader.
LÍF, STARF OG HREYFING
Verkaðar rauðsprettur liggja á eldhúsbekkn-
um. Á borðinu í stofunni liggur hálfsaumuð
kápa, og í vagni á eldhúsgólfinu hjalar lítil
stúlka ... 16 ára drengur er að þvo sér við eld-
húsvaskinn og stúlka á svipuðum aldri er að
týgja sig til að fara út. Húsbóndinn situr inni
í stofu og les í blaði. Hér er líf, starf og hreyf-
ing. Það er eins og íbúðin sé að springa utan
af þessari kröftugu fjölskyldu. — ÞJÓÐV. 23/4.
NÝTT TUNGUMÁL
Þessi bók hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð
. . . og innan skamms mun hún koma út á
svissnesku. — ALÞBL. 16/5.
HVERNIG VAR ÞETTA
Á HREINNI DÖNSKU?
Reynsla Dana og íslendinga . . . ætti að hafa
kennt okkur, að bönd geta ekki hnýtt þjóðir
saman. Fyrst þegar búið er að skera böndin í
burtu, verða bönd gagnkvæms skilnings og sam-
starfs hnýtt. — MGBL 10/5, haft eftir Christmas
Möller.
ANDLÁTSORÐ BÓNDANS
Við höfum hoppað upp í loftið . . . En hver
og einn getur sannprófað það, að ef hann
stekkur t. d. einn metra upp í loftið, þá fer
hann nákvæmlega jafn langa leið niður aftur.
— BÓNDINN 14/4.
MÓÐURMÁLSLAUSIR FÖÐURLANDSVINIR
Það má um þessa ályktun segja, að áður fyr
heyrðist annar tónn frá íslenzkum stúdentum
í Höfn. Hitt er svo ljóst, að þeir Islendingar,
sem nú dvelja í Kaupmannahöfn, búa við þau
skilyrði, að þeir hafa enga getu til þess að afla
sér frjálsa yfirsýn mála, eða að minnsta kosti
alls kostar takmarkaða möguleika til þess að
tjá sig opinberlega um þau. — MGBL 22/5.
FRÓN tekur upp þessa klausu og segir um
hana m. a.:
Þá fer nú skörin að færast upp í bekkinn,
þegar snúa verður íslenzkum sjálfstæðisgrein-
um á dönsku svo að þær skiljist.
HONUM LÍZT VEL Á BLIKUNA
Það er íslenzku þjóðinni aukið gleðiefni, að
um svipað leyti sem endurstofnun lýðveldisins
á Íslandi er undirbúin og framkvæmd, er ný
morgunblika á lofti í veröldinni . . .— VIL-
HJÁLMUR ÞÓR, utanríkisráðherra, í ræðu fyr-
ir minni erlendra gesta í hófi ríkisstjórnarinn-
ar 18. júní (Tíminn 23/6).
HÖRGULL Á BANKASTJÓRUM ?
Selfossi, 20. júní 1944.
Dr. Helgi Péturss heldur því fram, að L.
Kaaber bankastjóri sé enn á lífi. Dr. Helgi ósk-
ar mjög eindregið, að um þetta fari fram rann-
sókn, og efast hann ekki um, að rannsóknin
leiði í ljós, að hann hafi haft rétt fyrir sér.
Dr. Helgi hefur fyrir afburða skarpskyggni
og nákvæmni hlotið, framar öðrum Islending-
um, alheims athygli og viðurkenningu fyrir
unnin afreksverk á sviði vísindanna. Fjölmargir
lslendingar hafa ennfremur tileinkað sér heim-
spekilegar skoðanir hans og kenningar, og mun
hann um þau efni eiga í þessari þjóð meiri
ítök en aðrir spekingar.
Vegna þessara staðreynda um dr. Helga sem
vísindamann og vitring, viljum við taka undir
ósk hans til yðar, herra sakadómari, um rann-
sókn á því, hvort L. Kaaber sé á lífi eða ekki.
Virðingarfyllst
Páll Hallgrímsson Egill Thorarensen
(sign) (sign)
Einar Pálsson
(sign)
Eiríkur Einarsson Bjarni Pálsson frá Hlíð
(sign) (sign)
Til hr. sakadómarans, Jónatans Hallvarðssonar,
Reykjavík
ATHS.:
Helgafell hefur, fyrir sérstaka tilviljun,
fengið vitneskju um, að bréf með þessari hljóð-
an hafi borizt sakadómaranum í Reykjavík
og verið sent dómsmálaráðuneytinu til umsagn-
ar. Meðal þeirra, sem undir það hafa ritað, eru
sýslumaður, bankastjóri, kaupfélagsstjóri og
annar alþingismaður Árnesinga.
.j'z.
■7V* TV'
Ef hér er leikið á hinn sanna hljómbotn ís-
lenzkrar þjóðarsálar, þá er hún illa komin. —
STÍGANDI, 1. h. 1943v