Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2006, Side 121

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2006, Side 121
DEILIGALDUR ELIASAR honum „umhverfið viðbjóðslegt, þrátt fyrir hvíta dúka á borðum, gul- máluð þil og þjónustufólk í svörtu og hvítu“ (bls. 56). Svipaðar tilfinn- ingar láta á sér kræla þegar Lovísa, vinnukona á heimili föður hans, reynir að fá Bubba til við sig eitt kvöldið. Hún er í sjálfu sér ekki ólagleg en útgrátin, illa greidd og óhrein í framan „því að tárin höfðu flætt niður um litaðar og púðraðar kinnar“, og þegar hún eltir Bubba upp í her- bergið hans finnur hann af henni áfengisþef. „Þykkar varir hennar voru blautar, og mér bauð við henni allri,“ segir hann og bætir við: „Eg ætlaði að grípa í hana og fá hana út fyrir dyrnar, en mér bauð svo við henni, að ég veigraði mér við að snerta hana“ (bls. 43^44). Steininn tekur síðan úr þegar sögumaður fer á fyllirí með íslenskum vinum sínum og amerískum hermönnum, sem vilja „ólmir fá girls. Þeir föðmuðu hvor annan og sögðu sweetheart og eitthvað fleira yndislegt, en ég fékk klígju og lá við uppsölu“ (bls. 77). Skömmu síðar er ógleðin orðin slík að Bubbi getur „ekki varizt spýju“ (bls. 80). Það má vel ímynda sér að með þessum lýs- ingum sé Elías að kinka kolli til La Nausée. Raunar tengir fleira þessar tvær skáldsögur saman. Til að mynda hefur forleikurinn sem Bubbi hlust- ar á í upphafi og enda frásagnar sinnar líkt hlutverk og bandaríska djasslagið „Some of These Days“ í skáldsögu Sartres.32 Og skyldi það vera tilviljun að Anny, unnusta Roquentins, er nafha Onnu í sögu Elíasar? Að ffamansögðu ætti að vera ljóst að hugtakið sjálfgetin skáldsaga hefur bæði fagurfræðilega og bókmenntasögulega skírskotun en þar fyrir utan tekur það beinlínis til merkingarsköpunar viðkomandi verka. Steven Kellman bendir á að sögumennirnir í sjálfgetnum skáldsögum eigi oftar en ekki í innri baráttu sem tengist hugmyndum um kynlíf, getnað og fæðingu. Kellman hefur bók sína á því að vitna til þeirrar skoð- unar austurríska sálgreinandans Ottos Rank að Odipusargoðsögnin fjalli ekki fyrst og fremst um afbrýðisama löngun sonarins til að drepa föður- inn og koma fram vilja sínum við móðurina, líkt og Sigmund Freud hélt fram, heldur sé „blóðskömm tákn um sjálfsköpunaráráttu mannsins“.33 Karlmaðurinn óttist kynlífið því að fyrir tilstilli þess þurfi hann að 32 Kellman bendir á að lagið „Some of These Days“ sé hliðstætt sónötunni eftir Vin- teuil sem Proust notar sem frásagnarspegil í A la recherche du tempsperdu. Sjá Steven G. Kellman, The Self-Begetting Novel, bls. 5. 33 Sama rit, bls. 19.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.