Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2006, Síða 131
DEILIGALDUR ELÍASAR
minningar ogsaga. Bókin fjallar um efnisþætti sjálfsævisagna en sjálfssögnr
er að sögn Sigurðar þýðing á enska hugtakinu metastories. Er því ætlað
að ná yfir „ólíkar sögur, oft frásagnarbrot eða einingar, sem birtast í sjálfs-
bókmenntum. Sjálfssögur eru þannig sögur um sjálfið“.45 Hér er augljós-
lega fengist við önnur fyrirbæri en Astráður Eysteinsson vill lýsa með
bókmenntahugtakinu sjálfsögur, enda þótt svo vilji til að sögusagnir og
sjálflýsandi bókmenntir fjalli í mörgum tilvikum um margbrotið sjálf aðal-
persónunnar. Tíminn mun væntanlega skera úr um það hvemig þessum
hugtökum gengur að ná varanlegri fótfestu í íslensku máli og í hvaða
merkingu.
Eins og fram kom í umræðunni um frásagnarspegla var Elías Mar ekki
fýrsti íslenski rithöfundurinn til að nýta sér þá í skáldskap sínum og hann
var fráleitt sá síðasti. I því sambandi nægir að minna á málverkið sem lýst
er í upphafskafla Hversdagshallarinnar eftdr Pétur Gunnarsson, brúðum-
ar sem önnur aðalpersóna Stúlkunnar í skóginum eftir Vigdísi Gríms-
dóttur fæst við að skapa og skilaboðaskjóðuna í samnefndri barnabók
Þorvaldar Þorsteinssonar. Ef grannt er skoðað má sjá frásagnarspeglum
bregða fýrir í æði mörgum íslenskum skáldverkum frá síðari áratugum,
ekki síður en eldri verkum.46 Hins vegar má telja líklegt að Eftir órstuttan
leik sé brautryðjendaverk sjálfgemu skáldsögunnar á Islandi. Verkið á sér
reyndar óbeinan forvera í sjálf(s)sögunni Bréfi til Láru eftir Þórberg Þórð-
arson, sem gKmir, líkt og Elías Mar, við hugmyndir um kynlíf og gemað
(þar verður sögumaðurinn sjálfur óléttur). Arftakarnir em þó ólíkt fleiri
og þeim fjölgar ört, hvort sem litið er til frumsaminna verka eða þýð-
inga. Frá síðusm ámm má nefna jafn ólíkar skáldsögur og Argóarflísina
eftir Sjón, Undir himninum eftir Eirík Guðmundsson og Brooklyn Follies
(Bresti í Brooklyn) eftir Paul Auster.
45 Sigurður Gylfi Magnússon, Sjálfssögur. Minni, minningar og saga, Sýnisbók íslenskrar
alþýðumenningar 11, Reykjavík: Háskólaútgáfan, 2005, bls. 346.
46 Þess má geta að Laurence de Looze hefur beitt hugtakinu mise en abyme með
skemmtilegum hætti við greiningu á tilteknum Islendingasögum: Laurence de
Looze, „Poem, Poet, and Poetic Process in Bjamarsaga Hítdaelakappa and Gunn-
laugssaga Ormstungu“, Joumal of English and Germanic Philology 85 (1986): 479-
493; Laurence de Looze, „Poet, Poem and Poetic Process in Egils Saga Skalla-
Grímssonar", Arkiv för nordisk filologi 104 (1989): 123-142; Laurence de Looze,
„The Poetic Outlaw: Self-consciousness and Poetic Process in Grettis Saga As-
mundarsonar“, Arkiv för nordiskfilologi 106 (1991); 85-103.
I29