Þjóðlíf - 01.07.1990, Page 8

Þjóðlíf - 01.07.1990, Page 8
INNLENT STERKIR SÉRFRÆÐINGAR - VANMÁTTUGT RÍKISVALD Sérfrœðilœknar eru ríkisrekið einkaframtak. Með óvœginni kjarabaráttu og óbilgjarnri hagsmunagœslu hafa sérfrœðingar komið ár sinni svo vel fyrir borð í kerfinu að þeir geta skammtað sér tekjur og kœft ífœðingu tilraunir heilbrigðisyfirvalda til að skipuleggja heilbrigðisþjónustuna. — Kerfið er galopið, segir Finnur Ingólfsson aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra. Finnur hefur íþrjú ár reynt að hemja peningastreymið til sérfrœðilœkna og koma á fastri skipan um hlutverk þeirra. PÁLL VILHJÁLMSSON í mörg ár hefur staðið yfir stríð milli sérfræðilækna annarsvegar og heilbrigð- isyfirvalda og heimilislækna hinsvegar. Stríðið stendur um tilvísanir og hvort sjúklingar eigi fyrst að ráðfæra sig við heimilislækni og síðan fara til sérfræð- ings ef þurfa þykir. Eða hvort sjúklingar skuli eiga óhindraðan aðgang að sér- fræðilæknum. I stríðinu vegast á fagleg rök og fjárhagsleg. Sumir segja stríðinu í raun lokið með fullum sigri sérfræðinga á meðan aðrir telja sérfræðinga hafa unnið orustu en að úrslitalotan sé eftir. amskipti sérfræðilækna og sjúklinga voru framan af með þeim hætti að heimilislæknir vísaði sjúklingi til sérfræð- ings ef ástæða þótti til. Þessi háttur var staðfestur með lögum um almannatrygg- ingar frá árinu 1971. Lagagreinin sem kveður á um tilvísanir er nr. 43, b-liður og um hana stendur styrinn. Þau rök liggja fyrir tilvísunum að nauðsynlegt sé að einn læknir, heimilislæknir, hafi yfirsýn yfir sjúkdómsferilinn til að tryggja samfellu í meðferð sjúklingsins. Einnig þykir tilvís- anakerfið til þess fallið að draga úr óhóf- legum heimsóknum til sérfræðinga, stundum kallað „oflækningar“, sem kosta mun meira en heimilis- og heilsugæslu- læknar. Að langmestu leyti er það ríkis- kassinn sem greiðir reikninga heilbrigðis- kerfisins og tilvísanir hafa áhrif til lækk- unar á þeim útgjöldum. Þegar fáir sérfræðingar voru starfandi hér á landi var friður um tilvísanir enda tryggði fyrirkomulagið góð boðskipti milli heimilislækna og sérfræðinga. Þegar sér- fræðingum fjölgaði á áttunda og níunda áratugnum fór að bera á óánægju með til- vísanir. Sérfræðilæknar töldu það óþarfa að sjúklingar leituðu til heimilislæknis og sögðu það oft á tíðum tvíverknað. Enn- fremur lögðu sérfræðingar áherslu á að sjúklingum yrði leyft að velja sér lækni milliliðalaust. Sverrir Bergmann, sem er sérfræðingur í vefrænum taugasjúkdóm- um, bendir einnig á það að í fámenninu á íslandi þekki almenningur til lækna og Starfsmenn í tryggingakerfinu eru sammála um að tilvísanir sérfræðinga til sérfræðinga voru misnotaðar í þeim tilgangi að sérfræðingar útveguðu hver öðrum verkefni. fólki sé sjálfu best treystandi til að velja sér lækni, hvort sem um er að ræða sérfræðing eða heimilislækni. Sverrir er sannfærður um að tilvísanakerfið sé dýrara fyrir hið opinbera og verra fyrir sjúklinga en sér- fræðingaþjónusta án tilvísana. Sverrir er í 75% stöðu hjá Landspítalanum, rekur eig- in læknastofu í Domus Medica, er dósent við Háskóla íslands, formaður kennslu- nefndar læknadeildar og varaformaður Læknafélags fslands. rátt fyrir kröfur sérfræðinga voru til- vísanir ekki lagðar af. Barátta sér- fræðinga bar þó þann árangur að heil- brigðisyfirvöld tóku að veita undanþágur frá tilvísunum. Ekki þurfti tilvísun til augnlæknis, sjúklingar utan höfuðborgar- svæðisins þurftu ekki tilvísun né þeir íbúar í Reykjavík og nágrenni sem ekki höfðu aðgang að heimilislækni eða heilsu- gæslustöð. Þá var sú breyting gerð að sér- fræðingar máttu vísa til sérfræðinga. Síðasta breytingin var umdeildust og „til þess að kóróna vitleysuna“, segir Kristján Guðjónsson, deildarstjóri hjá Tryggingastofnun ríkisins, en hann hefur í meira en áratug sinnt þessum málum. Starfsmenn í tryggingakerfmu eru sam- mála um að tilvísanir sérfræðinga til sér- fræðinga voru misnotaðar í þeim tilgangi að sérfræðingar útveguðu hver öðrum verkefni. Ákveðin læknamiðstöð var um- töluð fyrir það að sjúklingar sem þangað komu voru gjarnan sendir á milli nokk- urra sérfræðinga þannig að öruggt væri að sjúklingurinn yrði stálsleginn þegar hann 8 ÞJÓÐLÍF
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.