Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 10
10 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013
1950 og lauk prófi með A+ í
einkunn. Hann var fullnuma
í öryggisvik mörkum. Á fyrri
námsstigum hafði komið í ljós
að Buffett var sterkur í stærð
fræði og hafði hug á að hagnýta
hana til að verða ríkur. Hann
þótti útsjónar samur í tekjuöflun
þegar á náms árunum og hefur
alltaf þótt einstaklega glúrinn í
að afla sér smátekna. Það er til
þess tekið að hann berst ekki á
í einkaneyslu. Hann býr alltaf í
sama gamla húsinu, reiknar sér
hófleg laun en notar peningana
til að verða enn ríkari. Þannig
sameinar hann tvennt: Hann er
sjálf hafinn, gamaldags auð
mað ur en líka vísindamaður.
Þetta hefur gert hann að þjóð
sagnapersónu í lifanda lífi.
Trúir ekki á skyndigróða
Að loknu námi einbeitti Buff ett
sér að verðbréfaviðskiptum
frekar en fræðistörfum. Árið
1962 var hann búinn að eignast
fyrstu milljónina. Hann fylgdi
regl um læriföður síns um ör yggis
vikmörk til að draga úr áhættu.
Hann keypti ekki eftirsótt, dýr
hlutabréf því reglan sagði að
þau væru ofmetin. Þess í stað
leitaði hann uppi fyrirtæki sem
voru vanmetin að hans mati,
fyrirtæki þar sem verðmæti
hluta fjár var minna en eignir og
tekjur gáfu tilefni til. Graham
lærifaðir hans vildi hafa öryggis
vikmörk upp á 50 prósent. Hann
vildi bara kaupa bréf á hálfvirði
enda brenndur af ljótu tapi í
kreppunni.
Þetta þótti Buffett of var færnis
legt svo hann slakaði á kröfun
um en hefur samt alltaf leitast
við að kaupa á undirverði. Vand
inn felst í að meta raunveru
legt verðmæti bréfanna, ekki
markaðsverðið. Hann hefur fylgt
þeirri einföldu reglu að verð er
það sem er borgað; verðmæti
er það sem fæst. Þetta er ekki
alltaf það sama. Þetta leiðir líka
af sér að Buff ett hefur sloppið við
hluta bréfa bólur. Hann hefur kvar
tað sáran í fjölmiðlum þegar mikil
eftirspurn hefur valdið al menn um
verðhækkunum á hlutabréf um.
Og hann hefur glaðst við verðfall í
kauphöll um. Hann vill helst kaupa
þegar allt er hrunið. Hann kann
best við sig á bruna útsölum.
Tilfinning fyrir vanmati
Í raun er þetta afar íhaldssamt
viðhorf og krefst þolinmæði.
Hann hefur forðast að kaupa
bréf í nýjum og vinsælum tækni
fyrirtækjum og oft þurft að bíða
lengi eftir að bréf í grónum fyrir
tækjum hækkuðu í verði. Hann
gerir alltaf öfugt við það sem
markaðurinn segir. En það er
ekki nóg að kaupa bara verðlítil
bréf, þau verða líka að fela í sér
möguleika á hækkun. Galdurinn
er að finna þessi bréf. Einu sinn
var til dæm is kortafyrirtækið
American Express í vanda og
bréf þess féllu í verði. Buffett
spurði sig hvort hann ætti þá að
kaupa en hikaði og fór út og fékk
sér að borða. Hann sá að fólk
notaði kort American Express sem
fyrr. Hann flýtti sér á skrifstofuna
og keypti. Bréfin tóku að hækka
skömmu síðar.
Véfréttastíll
Þetta er ein af mögum þjóð
sög um um Buffett. Hann
hef ur fengið viðurnefni eins og
„Véfréttin frá Omaha“. Omaha
í Nebraska er heimabær hans.
Á tímabili var það svo að ef
fréttist að Buffett hefði keypt
bréf jókst eftirspurn eftir sömu
bréfum. Hann var þannig orðinn
sjálfstæður áhrifavaldur í kaup
höllunum og gat ekki tapað!
Það voru svo margir sem trúðu
í blindni á að mat hans væri rétt.
Það má líka kalla Buffett
„véfrétt“ í þeim skilningi að
hann spáir reglulega hruni og
hörm ungum á mörkuðum. Slíkar
spár rætast með reglulegu
millibili. Og alveg frá árinu 2007
hefur hann verið svartsýnn og
hefur ekki síðustu ár skilað þeim
ofsa gróða sem var á gullaldar
árunum fyrir aldamótin – enda er
maðurinn tekinn að reskjast.
FRUmkVöðULL
„Vandinn felst í að
meta raunveru legt
verðmæti bréfanna,
ekki markaðs verðið.“
Warren buffett á fundi með barack obama bandaríkjaforseta árið 2010.
Warren Edward buffett er tíður álitsgjafi í sjónvarpi og á ráðstefnum.
WWW.NASDAQOMXNORDIC.COM/ICELANDETF
© COPYRIGHT 2013, THE NASDAQ OMX GROUP, INC. ALL RIGHTS RESERVED. Q13-1694.09-13
VILTU VITA HVERNIG KAUPHALLARSJÓÐUR VIRKAR?
Kauphallarsjóður er sjóður sem átt er viðskipti með í kauphöll.
Þú getur fjárfest á einu bretti í öllum fyrirtækjum í t.d. Úrvalsvísitölunni.
Með því að fjárfesta í kauphallarsjóði geturðu dreift áhættu og minnkað
kostnað viðskipta.
Q13-1694 ETF Iceland Ad_210 x 297.indd 1 9/10/13 10:23 AM