Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 14
14 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013
Heimurinn verður æ samtvinnaðri efnahagslega,“ segir Ragnar Árnason.
„Því fylgir vaxandi samkeppni
þjóða á milli um fjármagn og
fjárfestingar. Samkeppnisstaða
þjóða á þessu sviði ræðst í
vaxandi mæli af menntunar
stigi þeirra, þ.e. gæðum þess
mann auðs sem þær búa yfir. Því
skiptir afar miklu að menntakerfi
þjóða sé sem skilvirkast, þ.e.
það skili eins vel menntuðu fólki
og unnt er án þess að eyða í
það óþarflega miklu fé.“
Fyrir liggur að sögn Ragnars
að Íslendingar reka dýrt skóla
kerfi. Samkvæmt alþjóðlegum
samanburðartölum m.a. frá
OECD verja Íslendingar miklu
meira fé í grunn og jafnvel fram
haldsskóla en flestar nágranna
þjóðirnar. Minna fé að tiltölu er
hins vegar lagt í háskólakerfið.
Í heildina verja Íslendingar þó
hvað mestu fé meðal OECDríkja
í sitt skólakerfi, bæði á hvern
nemanda og sem hlutfall af VLF.
Fé þetta er nálægt 8% af VLF á
hverju ári sem mun vera nálægt
130 mia kr. á verðlagi ársins 2013.
„Þessi fjárfesting í mannauði er
sú stærsta að jafnaði sem þjóðin
leggur í á hverju ári og það á
hún líka að vera. Hins vegar er
afar mikilvægt að hún skili sem
allra bestum árangri. Því miður
bregður svo við að alþjóðlegur
samanburður á getu grunnskóla
barna í undirstöðugreinum eins
og lestri og reikningi bendir til að
þetta tiltölulega dýra kerfi okkar
skili ekki næstum eins góðum
árangri og miklu ódýrari kerfi
erlendis. Þessar niðurstöður eru
auðvitað takmarkaðar og ekki
óyggjandi. Þær eru hins vegar í
samræmi við reynslu fjölmargra
foreldra sem á dvalartíma erlend
is hafa haft börn sín í erlendum
skólum. Ennfremur staðfesta
þær þá tilfinningu sem reyndir
skólamenn í framhaldsskólum og
háskólum hafa að menntunar
stigi nemenda hafi farið hrakandi
jafnvel þótt leiðrétt sé fyrir
stærra hlutfalli hvers árgangs
sem sækir slíka menntun. Frá
sjónarmiði þjóðarheildarinn ar
sem greiðir kostnaðinn af skóla
kerfinu er auðvitað óvið un andi ef
það er að skila litlum árangri fyrir
mikið fé. Miklu af drifaríkara er þó
ef slök mennt un er farin að grafa
undan getu íslensku þjóðarinnar
til að stand ast samkeppni við
nágrannaþjóð irnar á efnahags
sviðinu.“
Hversu skilvirkt er
menntakerfið?
Stærsta fjárfesting þjóðarinnar á hverju ári:
RagnaR ÁRnason
– prófessor í hagfræði við Háskóla íslands
EFNAHAGSMÁL
SkoðUN
TexTi: svava jónsdóTTir
ÁRelía eydís guðmundsdóttiR
– dósent við viðskiptafræðideild
Hí og ráðgjafi
STJÓRNUN
Árelía Eydís Guðmundsdóttir segir að stjórnend ur ættu að nýta haustið vel til
þess að fara í skoðun á því hvert
fyrirtækið stefn ir auk þess að
setja sér mark mið.
„Hver leiðtogi er ábyrgur fyrir
því að setja áætlun, gera skipulag
um hana og hafa forystu um að
koma áætluninni í framkvæmd.
Þá er nauðsynlegt að hafa eftirlit
með því að áætlunargerðin hafi
staðist. Haustið er góður tími til
að fara yfir þessa þætti forystu
vegna þess að það er langt liðið
á árið. Flestir setja áætlunargerð
sína upp í upphafi árs og því
er gott að endurskoða hvort
markmiðin hafi náðst eða hvort
þurfi að gefa í til að ná þeim á
haustmánuðum.“
Árelía segir að haustið sé líka
góður tími fyrir stjórnendur til að
setja sjálfum sér markmið.
„Ég hvet leiðtoga til að setja
sér markmið um að læra eitthvað
nýtt, auka auðmýktina og æfa sig
í að geta sagt hlutina eins og þeir
eru. Þessir þættir hafa allir sýnt
sig vera mjög mikilvægir hverjum
leiðtoga sem vill ná árangri.“
Setja sér og fyrirtækinu
markmið
Þessi fjárfesting í mannauði er sú
stærsta að jafnaði sem þjóðin leggur
í á hverju ári og það á hún líka að
vera. Hins vegar er afar mikilvægt að
hún skili sem allra bestum árangri.