Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 41
FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 41
út fyrir höftin
Rakel Sölvadóttir er flutt með áhugaverðan sprota til Seattle í Bandaríkjunum. Ástæðan er
að það er erfitt að láta sprota vaxa úr grasi í lokuðu efnahagsumhverfi á Íslandi. Það eru ekki margir
tilbúnir að flytja vaxtarfé inn fyrir gjaldeyrishöft.
flutti
Rakel vill rekja upp haf þessa sprota til þess að for eldrar hennar gáfu henni Sinclair Spectr um
tölvu níu ára gamalli. Merkilegt
tæki það og hún þakkar tölvunni
það að hún yfirleitt komst áfram
í formlegu og stöðnuðu skóla
kerfi. Það var þarna sem hún
byrjaði að forrita, forrita sína
eigin tölvuleiki.
Tölvunarfræði varð hennar
grein og núna hefur hún komið
upp fyrirtæki sem stuðlar að
uppbyggingu á menntun í takt
við tækniþróun. Fyrirtækið býður
meðal annars upp á námskeið
fyrir nemendur og kennara í for
ritun og nýtingu á spjaldtölvum í
skólastarfi.
„Þetta er vanræktur þáttur í
menntun okkar. Þegar borðtölvur
komu fyrst fram var lögð áhersla
á að kenna börnum undirstöðu
atriði forritunar en svo úreltust
kennsluaðferðir í hinni hröðu
þróun og ekkert tók við. Þarna
viljum við byrja að nýju,“ segir
Rakel.
Hún segir að skilningur á
for ritun eigi að vera hluti af
al mennri menntun. Þetta snýst
ekki síst um að fólk viti hvaða
mögu leika tölvur bjóða upp á.
Forritun á ekki að vera svið fárra
sérfræðinga: Börnin eiga að vita
hvernig tölvuleikir eru búnir til.
Skema býður upp á námskeið
frá fyrsta bekk grunnskóla.
Vöxtur út fyrir land
steinana
Fyrirtækið er þegar komið á legg
á Íslandi og er á www.skema.is.
Starfsmenn eru sjö ásamt verk
tökum og aðstoðarkennurum
á aldrinum átta til sextán ára.
Rakel segir að vöxtur fyrirtæki
sins byggist á sókn á erlendan
markað. Það er að hennar mati
ekki hægt með höfuðstöðvar á
Íslandi eins og staðan er núna.
Það er lítið vaxtarfé að fá og
jafnvel minniháttar yfirfærslur á
fé þurfa heimild úr Seðlabanka.
Þetta hefur leitt til þess að nýtt
fyrirtæki er orðið til í Seattle í
Bandaríkjunum. Það heitir re
Kode Education (www.reKode.
com) og ætlunin er að opna
fyrsta reKodesetrið þar vestra
í febrúar á næsta ári. Einnig er
unnið að uppsetningu í Slóveníu,
Svíþjóð, Danmörku og á Spáni.
„Bara það að fá gjaldeyrisyfir
færslu fyrir 75,6 Bandaríkja
dölum hefur kostað mikið fé og
fyrirhöfn. Það var peningurinn
sem fór í að skrá nýja fyrirtækið
vestra. Síðan er lítið vaxtarfé
að fá á Íslandi og innkoma
ís lenskra fjárfesta hefur gert
næstu vaxtarskref erfiðari fyrir
marga sprotana,“ segir Rakel.
Hún segir að mikill munur sé
á tækniumhverfi og skilningi
fjárfesta á Íslandi og í Bandaríkj
unum. Seattle varð fyrir valinu
vegna þess að þar er öflugt
tækniumhverfi og fjölskyldu
vænt svæði. Svæðið hentaði
því fjölskyldunni og fyrirtækinu
mjög vel.
„Fyrsti stuðningur við nýsköpun
er góður á Íslandi og virðist enn
vera að eflast. Tækniþróunar
sjóður Rannís er stór stoð í þeim
efnum og merkilegt að það sé
verið að íhuga að draga úr þeim
stuðningi. En til að sprotakraft
urinn sem leystist úr læðingi í
kjölfar kreppu flytjist ekki allur
úr landi þarf að taka til í kerfinu.
Þótt það hafi ekki gerst í tæka
tíð fyrir okkur hef ég fulla trú á
að Ragnheiður Elín Árnadóttir,
iðnaðar og viðskiptaráðherra,
sé tilbúin að taka jákvæð skref
í þessum málum,“ segir Rakel
Sölvadóttir.
Rakel Sölvadóttir hjá
kennslusprotanum Skema:
Rakel Sölvadóttir.
„Síðan er lítið vaxtarfé að fá á Íslandi og innkoma ís lenskra fjárfesta hefur gert næstu
vaxtarskref erfiðari fyrir marga sprotana.“