Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 71
FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 71
Hugmyndafræði fyrir tækisins er sú að setja fram lausnir til að einfalda starfsemi
fyrirtækja og stofnana með því
að upplýsingastjórnun þeirra sé
gerð einföld. Þetta næst fram
með þríþættri þjónustu; vörslu,
hugbúnaði og ráðgjöf. Margvís
leg vöruþróun hefur orðið innan
fyrirtækisins frá stofnun þess en
árið 2008 var hugbúnaðurinn
CoreData t.a.m. þróaður þannig
að hann mætti nota á snjallsím
um og spjaldtölvum án þess
að vera með snjallforrit. Einnig
þróaði fyrirtækið CoreData Claim
fyrir slitastjórnir, sem er gífurlega
öflugur hugbúnaður fyrir þrotabú
af öllum stærðum
Hver var viðskiptahugmynd
fyrir tækisins í upphafi og
hvernig hefur hún þróast?
„Upphaflega hugmyndin var
sú að vera með hugbúnaðar,
ráð gjafar og vörslusvið og
veita með því heildarlausn á
sviði upplýsingastjórnunar innan
fyrirtækja. Við vinnum enn eftir
þessu í dag en þróun hug búnaðar
okkar og skönnnar þjónusta er
þó komin mun lengra á veg
en ég hafði leyft mér að vona.
Strax í upphafi var lögð áhersla
á einfaldleika viðmóts CoreData
kerfi sins, þannig að það styddi
við vinnu fólks en væri ekki enn
ein hindrunin. Við þróunina er
notuð nýjasta tækni sem gerir
notendum kleift að vinna með
upplýsingar á mjög einfaldan og
skilvirkan hátt og finna gögn hratt
aftur,“ segir Brynja Guðmunds
dóttir, forstjóri Azazo. CoreData
hugbúnaðurinn er í boði fyrir
viðskiptavini sem þjónusta (e.
software as a service). Með hon
um er hægt að lækka kostnað
við rekstur og utanumhald á
tölvu búnaði og hugbúnaði veru
lega og allur hausverkur við upp
færslur hverfur. Einnig má með
útfærslu fyrirtækisins á „Social
Network for Organisation“ draga
verulega úr tölvupósti og tryggja
rekjanleika í samskiptum.
„Azazo hefur nýtt íslenskt hugvit
til að þróa lausnir frá grunni sem
eiga fullt erindi á erl endan markað.
Móttökurnar á Íslandi hafa verið
framar björt ustu vonum og við
munum sinna heimamarkaði vel,
en auk þess erum við þegar
farin að taka þátt í útboðum á
evrópska efnahagssvæðinu enda
með hugbúnað og þjónustu án
landamæra,“ segir Brynja.
Telur þú sprotaumhverfið hag-
stætt fyrir frumkvöðla í dag?
„Jákvætt viðhorf ríkir á margan
hátt en þó finnst mér að margt
megi betur fara, t.a.m. finnst mér
vanta skilning í þjóðfélaginu á
því hvað þurfi til að byggja upp
nýtt og öflugt fyrirtæki. Þá finnst
mér stjórnmálamenn oft tala um
nýsköpun af mikilli vanþekkingu
og hafa í raun ekki mikinn áhuga
á henni. Þeir virðast frekar sjá
stóriðju sem eins konar töfra
lausn en í raun gæti það gefið
Íslandi miklu meira að byggja
hér upp fleiri þekkingarfyrirtæki
af öllum gerðum. Yfirleitt skila
minni og meðalstóru fyrirtækin
mestu þegar allt er tekið saman
enda líklegra að stór fyrirtæki
éti upp fyrri ávinning ef syrtir í
álinn. Einn ig tel ég vanta betri
fjármögn unarleiðir fyrir fólk til að
stofna fyrirtæki af stærðargráðu
á borð við okkar. Aðgengi að
fjármagni í bönkum er t.d. ekki
auðvelt, jafnvel fyrir fyrirtæki eins
og okkar sem hefur vaxið hratt
og er með mjög bjarta framtíð.
Vonandi verður vitundarvakn
ing til þess að löggjöfin verði
fyrirtækjum líkt og okkar hag
stæðari og mikilvægi nýsköpunar
enn sýnilegra bönkum og stjórn
völdum,“ segir Brynja.
„Yfirleitt skila minni
og meðalstóru fyrir
tækin mestu þegar
allt er tekið saman
enda líklegra að stór
fyrirtæki éti upp fyrri
ávinning ef syrtir í
álinn.“
Hugbúnaður
og þjónusta án landamæra
azazo (gagnavarslan) er íslenskt þekkingarfyrirtæki og eru starfsmenn um fimmtíu.
lausnir azazo eru þróaðar hérlendis og eru viðskiptavinir innlend og erlend fyrirtæki og
stofnanir af öllum stærðum. í stórum og flóknum verkefnum hafa hugvit, þekking og
reynsla skipt sköpum.
A z a z o ( G a g n a v a r s l a n )
stofnár: 2007.
stofnendur: Brynja guðmundsdóttir.
viðskiptahugmyndin: að hagræða í rekstri fyrirtækja og útrýma
sóun. að þróa hugbúnað sem leysir af hólmi mörg kerfi hjá
fyrirtækjum og bæta upplýsingastjórnun með heildarlausn.
markmið fyrirtækisins: að auka hagræðingu og skilvirkni í rekstri
viðskiptavina, með því að einfalda ferla og beita virkri upplýsinga
stjórnun.
Texti: María Ólafsdóttir Mynd: Geir Ólafsson
Sölu- og markaðsteymi fyrirtækisins: Símon Þorleifsson, brynja guð-
mundsdóttir, henning Freyr henningsson og Laufey Ása bjarnadóttir.