Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 97
FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 97
Kauphöllin sýnir mátt sinn:
Reginn leggur
fram yfirtökutilboð
Segja má að nú fyrstu daga september hafi Kauphöllin sýnt mátt sinn og megin og
markaðurinn fengið að sjá að það
skiptir máli að vera með skráð
félag. Fasteignafélagið Reginn
hf. lagði þá fram tilboð í 100%
hlutafjár í Eik fasteignafélagi hf.
Tilboðið nær til allra hlut hafa, þó
þarf að lágmarki samþykki 68%
eigenda hlutafjár í félaginu.
Kauptilboðið miðast við að
greitt verði fyrir allt hlutafé í fé
laginu með nýju hlutafé í Regin
hf., að nafnverði 603 milljónir
króna. Gangi viðskiptin eftir og
allt hlutafé í Eik fasteignafélagi hf.
verði keypt mun það þýða að nýir
eignarhlutir í Regin hf. sem gefnir
verða út vegna kaupanna munu
nema u.þ.b. 32% af heildar hluta
fé félagsins.
Eftir bankahrun hafa öll fast
eignafélög landsins verið í
endur skipulagningu sem að
mestu gekk út á að sníða skuldir
að rekstrarhæfi þeirra. Um leið
var ljóst að samþjöppun var
væntanleg því hvergi á hagræði
stærðarinnar betur við en í
fasteignafélögum. Og nú sjáum
við Regin nýta kosti þess að vera
fyrst fasteignafélaga til að ná
skráningu í Kauphöllina. Grein
ingardeild Íslandsbanka benti á
að það hefur verið „vandamál“
Regins hversu lítið það er og
hlutfallslegur rekstrarkostnaður
verið hærri en stjórnendur hafa
sætt sig við. Með kaupum á
hlutafé Eikar, sem og betri nýt
ingu fasts kostnaðar, mun stærð
félagsins ná þeim viðmiðum sem
stjórnendur þess hafa sett fram,
sem er um 300 þúsund fermetrar.
Þegar þetta er skrifað er ekki
ljóst hvernig hluthafar Eikar
bregðast við en það hlýtur að
móta hug þeirra að þeir fá til
þess að gera seljanleg verðmæti
með því að taka við skráðum
hlutabréfum sem greiðslueyri.
Nú sjáum við Regin
nýta kosti þess að
vera fyrst fasteigna
félaga til að ná
skráningu í Kaup
höllina.
Eimskip:
Uppgjör það sem Eimskip sýndi á fyrri helmingi ársins hefur farið illa í
fjárfesta og bréf félagsins hafa
lækkað hratt. Þau eru farin að
nálgast ískyggilega mikið skrán
ingargengi félagsins en Eimskip
var skráð á markað á genginu
208 síðasta haust. Margt bendir
þó til þess að rekstur félagsins
sé í lagi. Fjármagnsuppbygging
þess er að stórum hluta byggð
á eigin fé, sem þýðir að félagið
er betur í stakk búið til að takast
á við verulegar efnahagsþreng
ingar. Það eru einfaldlega
gríðarlegar væntingar um gengi
hlutabréfa félagsins.
Um uppgjörið er það að segja
að þó að Eimskip næði að auka
veltu samanborið við síðasta ár,
þrátt fyrir almennan samdrátt,
dróst framlegð saman, eða um
20%. Hagnaður var ekki nema
um það bil fjórðungur af hagn
aði annars ársfjórðungs ársins
2012. Hagnaður fyrir afskriftir
og fjármagnsgjöld dregst þó
ekki jafnmikið saman, eða um
fjórðung. Af því leiða menn rök
að því að grunnrekstur félagsins
sé í lagi. Það vantar bara meira
að gera á Íslandi en þaðan
fær félagið um 50% af sínum
tekjum.
Már Wolfgang Mixa, fjármála
fræðingur og doktorsnemi,
hefur lengi rýnt í rekstur
Eim skipafélagsins. Már segir
skoðun sína ekki hafa breyst
varðandi gengi á hlutabréfum
Eimskips. „Þau eru að mínu
mati enn hátt metin. Ef ytri
aðstæður lagast gæti mat mitt
breyst en fram að því held ég
mig við fyrra mat. Það er því
ekki rekstur Eimskips sem er í
ólagi, ef ólag mætti kalla, heldur
einfaldlega það að of miklar
væntingar eru innbyggðar í
gengi hlutabréfa þess.“
„Of miklar væntingar eru innbyggðar í
gengi hlutabréfa Eimskips.“
– Már Wolfang Mixa.
Óskabarn í ólgusjó