Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 54
54 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013
iNNFLÆði FRUmkVöðLa
KC Tran, forstjóri Carbon Recycling International,
segir að áætlað sé að byggja fleiri
verksmiðjur bæði hér á landi og
erlendis. Kanadíska fyrir tækið
Methanex lagði í sumar fimm mill
jónir bandaríkjadala í fyrir tækið,
um 600 milljónir króna, og er með
því orðið einn af stærri hlut höfum.
Hann heitir KimChinh Tran, en
er oftast nefndur KC. Hann flutti
ásamt fjölskyldu sinni frá Víetnam
til Bandaríkjanna snemma á tán
ingsaldri. Öðlaðist fjölskyldan
bandarískan ríkisborgararétt en
þau komu þangað sem flóttamenn
í kjölfar Víetnamstríðsins. Þau
bjuggu í New York en KC stundaði
síðan nám við Dartmouth
háskóla og lauk meistaraprófi í
tæknistjórnun frá MIT í Boston
árið 1986.
„Lokaritgerðin fjallaði um
árangursþætti í tæknifyrirtækjum.
Þá þarf að hafa markmiðin á
hreinu og skilja hvaða leiðir geta
skilað manni að settu marki.
Mikil vægast er að skilja þarfir
fólks og markaðarins, byggja upp
og skipuleggja fyrirtæki og fá
nauðsynlegan stuðning frá fjár
festum,“ segir KC.
Hann starfaði síðan um ára
bil sem verkfræðingur á sviði
kjarnorkueldsneytis hjá Westing
house Electric og síðar sem for
stjóri Thermo Gamma Metrics í
San Diego í Kaliforníu.
Tækifærð beið
Systir KC Trans flutti til Íslands
fyrir fjörutíu árum. Fyrsta heim
sókn hans til Íslands var hins
vegar árið 1995. „Þetta var í
nóvem ber, það var dimmt og jörð
in var svört,“ segir hann og hugsar
til baka til hraunbreiðunnar á
Reykja nesi í sortanum; þar sem
verk smiðja hans stendur nú.
„Ég sá fyrir mér ýmsa möguleika
hér á landi; mér fannst Íslendingar
einstakir og þeir eru sérfræðingar í
að nota auðlindir landsins.“
Það var svo tíu árum síðar, eða
árið 2005, sem KC Tran kynntist
Frið riki Jónssyni sem ásamt honum
er einn af stofnendum Carbon
Recycling International. Þeir
ákváðu síðan ásamt Oddi Ingólfs
syni prófessor og Art Shulen
berger frumkvöðli að byggja upp
fyrirtæki í framleiðslu á grænu
eldsneyti. Síðan eru liðin átta ár
og mikið vatn runnið til sjávar.
Efnahagskreppa lagðist yfir
landið og mun víðar, en nú hefur
rofað til og KC og félagar horfa
björtum augum til framtíðar.
Upphafsmennirnir eiga hlut í
fyrirtækinu en KC er sá eini sem
enn starfar við það.
Í hópi um 60 hluthafa eru meðal
annars Titan, fjárfestingafyrirtæki
Skúla Mogensen, Guðmundur
Jónsson í Sjóla, Sindri Sindrason,
Auður Capital og Methanex.
Metanól og bensín
„Það togaði mikið í mig að nota
hreina orku til að búa til eitthvað
sem kæmi víða til góða því ég
gat séð möguleika á að hafa áhrif
í heiminum; ég er heillaður af
þessu. Þetta er ástæðan fyrir því að
ég flutti til Íslands: Möguleikinn
á að framleiða eitthvað sem gæti
breytt heiminum og haft áhrif á
hann.“
Gróðurhúsalofttegundir og loft
slagshlýnun hafa víða áhrif og
vildu KC Tran og félagar vinna
að því að draga úr losun gróður
húsa lofttegunda sem og að nýta
endurnýjanlega orkugjafa.
„Það varð brýnt viðfangsefni
í huga okkar að draga úr losun
koltvísýrings. Við félagarnir höfð
um allir trú á að geta gert eitt hvað
sem gæti haft áhrif á andrúms
loftið og heiminn í viss um skiln
ingi. Hugmyndin var að nýta kol
tvísýring til að búa til eitthvað sem
kæmi heiminum til góða. Þegar
við höfðum spurt okkur þessarar
spurningar fórum við að velta því
fyrir okkur hvernig við ættum
að fara að því, hvaða efnaferlum
við ættum að beita og hvaða
efnaverkfræði þyrfti til að búa til
vöruna. Þegar við vorum komnir
að niðurstöðu í því máli þurftum
við að sýna fram á að þetta gæti
gengið til að fá fjármagn.“
KC Tran flutti síðan til Íslands
ásamt fjölskyldu sinni árið 2006
og hefur búið hér síðan. Á síðasta
ári öðlaðist hann íslenskan
ríkisborgararétt. KC byggði upp
sterkt teymi sérfræðinga og
lagði þannig grunninn að vax
andi fyrirtæki sem er einstakt í
heiminum. Á árunum 20072010
fóru fram rannsóknir og þróun
á framleiðslu á endurnýjanlegu
eldsneyti en á árinu 2011 hófst
smíði eldsneytisverksmiðju
í Svartsengi sem fjármögnuð
var með hlutafé frá íslenskum
fjárfestum. Verksmiðjan var
vígð vorið 2012. Sala til lífdísil
framleiðslu hófst það ár og
starfs menn fyrirtækisins unnu í
samstarfi við innlend olíufélög að
prófunum á blöndu metanóls og
bensíns.
TexTi: svava jónsdóTTir Mynd: Geir ólafsson
KC Tran flutti til Íslands árið 2006 og er einn af upphafsmönnum Carbon
Recycling International. Fyrrirtækið er fyrsta sinnar tegundar en það framleiðir
endurnýjanlegt metanól úr útblæstri, vatni og raforku í verksmiðju sinni í Svarts-
engi. Tilgangurinn er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
metHanex
stóR
HlutHafi
Kanadíska fyrirtækið Methanex
lagði í sumar fimm milljónir
bandaríkjadala í Carbon Recycl
ing International eða um 600
milljónir króna, og er með því
orðið einn af stærri hluthöfum.
KC Tran, forstjóri fyrirtækisins,
segir að áætlað sé að byggja
fleiri verksmiðjur bæði hér á
landi og erlendis.
tilnefnt
til nÁtÚRu-
veRðlauna
Carbon Recycling International
er í hópi tíu aðila á Norðurlönd
um sem tilnefndir hafa verið til
náttúru og umhverfisverðlauna
Norðurlandaráðs.
Verðlaunin verða veitt fyrir
tæki, samtökum eða einstakl
ingi sem hefur þróað vöru,
uppfinningu eða með öðrum
hætti aukið skilvirka nýtingu
auðlinda og þar með stuðlað
að minni neikvæðum áhrifum
mannsins á náttúruna.
Kunngert verður hver hlýtur
verðlaunin við sérstaka athöfn
á þingi Norðurlandaráðs sem
haldin verður í óperunni í Ósló
hinn 30. október.
KC Tran