Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 84
84 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013
Marel og Hampiðjan eru sem fyrr stærstu tæknifyrirtæki sjávarklasans á Íslandi. Marel er
þekktasta dæmið um fyrir tæki sem sprottið
hefur upp í tengslum við sjávarútveginn
hér á landi og með tíman um vaxið mikið,
breikkað vöruúrval sitt veru lega og hafið
útflutning og vöxt á erlendri grundu.
Samanlögð hlutdeild í heildarveltu
Marels og Hampiðjunnar sem rekja má til
sjávarútvegs og fiskeldis hér á landi nam
alls um 58% af þeim 66 milljörðum sem
tæknigeiri sjávarklasans velti á árinu 2012.
Í töflu 1 má sjá lista yfir 20 stærstu tækni
fyrirtækin í sjávarklasanum á Íslandi
20 stæRstu
tæknifyRiRtækin
í sjÁvaRklasanum
Á íslandi:
1. Marel hf.
2. Hampiðjan hf.
3. Skaginn hf.
4. Ísfell ehf.
5. Héðinn hf.
6. Kælismiðjan Frost ehf.
7. Prentsmiðjan Oddi hf.
8. Promens Dalvík ehf.
9. Samhentir kassagerð ehf.
10. Wise ehf.
11. Trefjar ehf.
12. Naust Marine ehf.
13. Vaki Fiskeldiskerfi hf.
14. PromensTempra ehf.
15. 3X technology ehf.
16. Baader Ísland ehf.
17. Samey ehf.
18. Marorka ehf.
19. Valka ehf.
20. Sjóvélar ehf.
Í tæknigeira sjávarklasans eru einnig mörg
lítil og ung fyrirtæki. 13% veltuaukning
milli ára er athyglisverð og til marks um
talsverða grósku á þessu sviði hérlendis.
Tæknigeira sjávarklasans tekst þannig að
vaxa langt umfram sjávarútveginn sjálfan
hér á landi og er vöxtur þeirra í aðra rönd
ina knúinn af auknum útflutningi, einkum
til nærmarkaða.
Tækifæri til sóknar virðast mikil en smæð
fyrirtækjanna og takmörkuð þekking á
markaðs og sölumálum á erlendum mörk
uðum aftrar þeim talsvert auk þess sem svig
rúm til nýrra fjárfestinga og áhættusamra
þróunarverkefna hefur einnig staðið
nokkr um þeirra fyrir þrifum. Klasa sam
starf tæknifyrirtækja sjávarklasans getur
skapað grundvöll fyrir frekari vexti, stór
tækari þróunarverkefnum og samstarfi
í markaðssetningu erlendis, en öflugt
sam starf við útgerðir og fiskvinnslur er
einnig afar mikilvægt í þessu samhengi.
Sterk tengsl tæknifyrirtækja við einstaka
útgerðir og fiskvinnslur hafa oft á tíðum
reynst mörgum þeirra sérstaklega vel í
uppbyggingu sinni og vöruþróun.
Vísir að öflugu klasasamstarfi nokkurra
tæknifyrirtækja sjávarklasans er nú starf
ræktur undir nafninu Green Marine
Technology. Markmið verkefnisins er að
kynna umhverfisvænar, orkusparandi og
hagkvæmar nýjungar tæknifyrirtækjanna
og vinna sameiginlega að markaðssetningu
þeirra. Markmið verkefnisins er ennfrem
ur að fá útgerðir og vinnslur til að taka
meiri þátt í þróun og prófunum á um
hverfisvænum og orkusparandi tækninýj
ungum í veiðum og vinnslu.
Tæknifyrirtæki sjávarklasans í
líftækni og annarri fullvinnslu
Þar sem sjávarútvegurinn býr við náttúru
legar auðlindatakmarkanir felst eitt helsta
vaxtartækifæri sjávarklasans í bættri nýt
ingu hráefna og vinnslu aukaafurða. Með
aukaafurðum er átt við hausa, bein, slóg,
roð, klær, skel og annað hráefni sem fellur
til við hefðbundna framleiðslu og verkun
sjávarfangs, en úr umræddu hráefni er
oft á tíðum hægt að framleiða verðmætar
vörur. Sem dæmi um framleiðslumöguleika
aukaafurða má nefna lyf og lækningarvörur,
snyrtivörur, bragðefni, prótein og önnur
fæðubótarefni, dýrafóður og áburð. Fyrir
framtíð og þróun sjávarútvegs á Íslandi er
mikilvægt að auka framleiðslu verðmætra
vara úr aukaafurðum.
Líftækni og rannsóknir gegna lykilhlut verki
í bættri nýtingu aukaafurða og hámörkun
virðis veidds afla. Undanfarið hefur orðið
mikil vitundarvakning á þeim tækifærum
sem felast á þessum svið um og út frá þeim
hafa margs konar líftæknifyrirtæki orðið til.
Umrædd fyrir tæki nota sérþekkingu sína
til að einangra lífvirk efni úr sjávarlífverum
og framleiða úr þeim verðmætar afurðir.
Með líftæknirannsóknum má þannig skapa
fjölmörg tækifæri til vöruþróunar og verð
mæta sköpunar.
Í dag eru vel á annan tug líftæknifyrirtækja
í sjávarklasanum á Íslandi. Starfsemi þeirra
er fjölbreytt og má þar nefna framleiðslu
ýmissa lyfja og lækningavara, snyrtivara
og fæðubótarefna. Greining Íslenska sjávar
klasans sýndi að velta þessara fyrirtækja nam
rúmlega þremur milljörðum árið 2012, sem
samsvarar um 4% vexti frá árinu áður.
Taka skal fram að í tilfelli Lýsis hf er
eingöngu meðtekinn sá hluti veltu fyrir
tækisins sem viðkemur starfsemi sem
fellur undir líftækni samkvæmt fyrrnefndri
skilgreiningu, en hinn hluti veltu fyrirtæki
sins kemur til vegna starfsemi sem fellur
utan við líftæknisviðið. Í töflu 2 má sjá
lista yfir fimm stærstu líftæknifyrirtæki
sjávarklasans á Íslandi.
fimm stæRstu
líftæknifyRiRtæki
sjÁvaRklasans Á
íslandi:
1. Lýsi
2. Stofnfiskur
3. Primex
4. BioPol
5. Zymetech
Verð
Magn
LYF
HEILSuFæðI
SNYrTIVÖrur
FæðuBÓTAEFNI
MATVæLI
dýrAFÓður
HrÁEFNI
SJÁVaRkLaSiNN