Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 62
62 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013
Á 30 árum hefur Marel vaxið úr því að vera sprotafyrir tæki yfir í að
vera í hópi stærstu útflutnings
fyrirtækja Ís lands. Sigsteinn P.
Grétarsson, að stoðarforstjóri
Marels, segir þennan uppruna
ekki hafa gleymst og eins sé
nýsköpun undirstaða stöðugrar
vöruþróunar.
„Við erum með nýsköpun í
genun um og þaðan sækjum við
þann kraft sem hefur á undan
förnum 30 árum umbreytt Marel
úr sprota fyrirtæki í heimsleið toga
á sínu sviði. Árlega fjárfestir
Marel sem samsvarar 57% af
veltu fyrirtæki sins í rannsóknar
og þróunarstarfi, sem er hæsta
hlutfall sem fyrirfinnst í greininni.
Þessi stefna hefur leitt til bylt
ingarkenndra upp götvana sem
hafa margar hverjar gjörbreytt
matvælavinnslu á heimsvísu og
gert matvælafram leiðendum
kleift að hámarka nýt ingu, gæði
og afköst, auk þess að tryggja
rekjanleika og matvæla öryggi,“
segir Sigsteinn.
Marel er nú með yfir 200
einka leyfi á nýjum uppgötvun
um og á hverju ári bætast við
ný einkaleyfi. Hjá Marel eru
rúmlega 4.000 starfsmenn um
Með nýsköpun
í genunum
viðTöl: María ólafsdóTTir / Myndir: Geir ólafsson.
í rótgrónum fyrirtækum
Sigursteinn P. Grétarsson:
Það má aldrei sofna á verðinum í nýsköpun og vöruþróun. Sprottar spretta af göml
um meiði. Nýsköpun nær til allrar starfsemi fyrirtækisins. Nýjar framleiðsluaðferðir,
nýjar vörutegundir, bættar markaðsherferðir, nýjung ar í innheimtu, bætt aðstaða á
skrifstofu og áfram mætti telja. Nýjungar, sprotar og vöruþróun er langt í frá bundið
við nýstofnuð fyrirtæki heldur ekkert síður við gróin fyrirtæki sem verða að mæta
kröfum viðskipta vina með tækninýjungum og bættri þjónustu. Það verður að fylgj
ast með markaðnum og hvernig þeir bestu í greininni standa sig. Allt gengur út á
virðiskeðjuna og ná fram aukn um verðmætum frá hverjum hlekki; allt frá frumfram
leiðslunni til endanlegrar afhendingar vörunnar. Það er auðvelt að sofna á verðinum
og skilja eftir gat fyrir keppinautana til að fylla.
Árlega fjárfestir marel sem samsvarar 5-7% af veltu
fyrir tækisins í rannsóknar- og þróunarstarfi, sem er
hæsta hlutfall sem fyrirfinnst í greininni.
Sigsteinn p. grétarsson, aðstoðarforstjóri marels, segir nýsköpun spretta
úr samstarfi við viðskiptavini.
Nýsköpun
Marel