Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 65
FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 65
Sjávarútvegur er alþjóðleg grein sem kepp
ir við matvælaframleiðslu um allan heim
og alþjóðlegar stórmarkaðskeðjur leita
sífellt að einhverju nýju til að bjóða sínum
viðskiptavinum.
gestur geirsson, framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja, segir öllum
fyrirtækjum nauðsynlegt að sinna nýsköpun og þróun.
þetta lífsnauðsynlegt. Sjávarút
vegur er alþjóðleg grein sem
keppir við matvælaframleiðslu
um allan heim. Viðskiptavinir
okkar eru alþjóðlegar stórmark
aðs keðjur sem sífellt eru að
leita að einhverju nýju til að
bjóða viðskiptavinum. Til þess
að geta uppfyllt þeirra þarfir
þurfa framleiðslufyrirtækin að
vera í stakk búin að bregðast
við með nýjungum á öllum
sviðum. Þetta geta verið kröfur
eða óskir um breyttar afurðir,
breyttar pakkningar, stærðir,
auknar gæðakröfur o.s.frv.
Matvælafram leiðsla á alþjóða
markaði er undir sífelldri pressu
um verð í samanburði við aðrar
matvörur. Til að mæta því er
nauðsynlegt að auka framleiðni
og þeir sem ekki gera það
verða undir á endanum,“ segir
Gestur.
Þá bætir hann við að aukin
umhverfisvitund hafi lagt
nýjar kröfur á fyrirtækin sem
nauðsynlegt sé að bregðast við
og kalli á nýjar lausnir í fram
leiðslunni. Þetta hafi aftur leitt
af sér nýjar afurðir og aukna
nýtingu á því hráefni sem notað
er.
Svavar Svavarsson, deildarstjóri viðskipta þróunar HB Granda hf., segir
fyrirtæki í íslenskum sjávarút
vegi almennt fljót að tileinka
sér tækninýjungar til sjós og
lands og vöruþróun hafi gjarnan
komið til samhliða tækninýj
ung um. HB Grandi hf. er eitt
stærsta sjávarútvegsfyrirtæki á
Íslandi og starfa hjá fyrirtækinu
um 700 manns til sjós og lands.
„Þó má fullyrða að sú óvissa
sem ríkt hefur undanfarin ár um
framtíð fiskveiðistjórnunarkerfis
ins hafi tafið fyrir ákvörðunum,
sérstaklega varðandi kaup á
nýjum og fullkomnari skipum.
Nýjustu gerðir skipa eru hins
vegar færari um að skila meiri
gæðum, eru afkastameiri og
nýta betur eldsneytið,“ segir
Svavar.
Svavar segir það einkenna
vörurnar sem Íslendingar vinni
úr sjávaraflanum að sumar
þeirra breytist ekkert ár eftir ár
eða jafnvel áratugum saman á
meðan öðrum er breytt örar eftir
þörfum markaðanna. Stundum
sé slíkt þó ekki mögulegt fyrr en
með nýrri tækni.
„Breytingar á útliti og gerð
sjávarafurða eru því frekar
hæg fara og kemur það mörgum
undarlega fyrir sjónir í heimi
þar sem sífellt er verið að
bjóða nýjar vörur og skipta út
sam skonar vörum sem maður
áleit nýkomnar á markað.
Skýr inguna má rekja til þess
að það eru ríkar hefðir í helstu
fiskneyslulöndunum og ekki
krafa um tíðar breytingar á útliti
afurðanna. Ástæðan er sú að
á best borgandi mörkuðunum
sækjast fiskkaupendur eftir vöru
sem þeir þekkja og geta treyst
gæðunum. Hún er eftirsótt af
neytendum af sömu ástæðum
í því landi eða á því landsvæði
sem þeir þjóna.
Helstu breytingar hjá okkur
felast því helst í að laga vöruna,
t.d. að stærð og útliti umbúða,
hentugri flakaskurður eða slíkt.
Fiskvinnslan hefur notið góðs
af íslenskum hugvitsfyrirtækjum
sem eru í fararbroddi við að
þróa og framleiða hentugan vél
og hugbúnað til að auka afköst,
bæta nýtingu og gæði og síðast
en ekki síst að gera henni
mögulega þessa vöruaðlögun,“
segir Svavar og bætir við að
hvort tveggja standi ágætlega
undir nafni sem nýsköpun og
vöruþróun. Styrkur fyrirtækisins
muni þó ávallt liggja í upprun
anum; gæðum fisksins og
náttúrulegu útliti afurðanna.
bætt nýting og aukin gæði
Svavar Svavarsson:
nýjungarnar felast í bættri nýtingu, auknum gæðum og nýjum stærðum umbúða.
Í helstu fiskneyslu
löndunum er ekki
gerð krafa um tíðar
breytingar á útliti
afurðanna þar sem
að á best borg andi
mörkuðunum sækj
ast fiskkaup endur
eftir vöru sem þeir
þekkja og geta
treyst.
Svavar Svavarsson, deildarstjóri
viðskiptaþróunar hb granda hf.,
segir nýjungar í fiskvinnslu helst
ráðast af tækninýjungum.
HB Grandi