Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 51
FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 51
Skúli Mogensen
stjörnulíffræðinga!
Ennfremur sagði í viðtali Frjálsr
ar verslunar við Skúla: „Fjárfest
inga félagið Títan tók til starfa
hér á landi 1. október 2009. Sama
kvöld sat Skúli og hlustaði á
Kast ljósþátt þar sem Steingrímur
J. Sigfússon fjármálaráðherra
til kynnti að það ætti að hækka
skatta upp úr öllu valdi, ekki síst
fjár magnstekjuskatta. Tveimur
dögum seinna, þegar Skúli var
að keyra í vinnuna, var skollinn á
snjó stormur. Hann játaði á opnum
fyrirlestri, sem hann hélt skömmu
seinna, að þá hefði hann hugsað
með sér því í ósköpunum hann
væri að koma hingað á „klakann“,
eins óvistlegur og hann virtist
vera. En Skúli segist hafa litið svo
á að hér á landi leyndust marg
vísleg tækifæri. Við sama tilefni
benti hann á að Steve Jobs, stofn
andi Apple, hefði áður orðið að
þola útskúfun og fyrirlitningu en
væri nú dáður af öllum. Apple
hefði verið nálægt gjaldþroti og
hon um hefði verið hent út þaðan.
„Síðan snýr hann aftur og nær
frábærri endurkomu,“ sagði Skúli
við fundarmenn og bætti við á
ensku: „What doesn‘t kill you
makes you stronger,“ og brýnir
um leið fyrir fundarmönnum að
lands menn verði að fara úr þeirri
neikvæðu umræðu sem hér virtist
stýra öllu.“
Ennfremur var sagt frá því í við
talinu að Skúli Mogensen hefði
alltaf haft orð á sér fyrir að vera
góð ur sölumaður eigin hug mynda.
„Það vakti athygli á sínum tíma hve
auðvelt hann átti með að byggja upp
samskipti við stjórnendur Ericsson
og síðar átti það sama við um æðstu
stjórn endur Nokia. Í Ozsam starf
inu á sínum tíma var það hann
sem var diplómatinn og samn
inga maðurinn á meðan Guðjón
Már sá um sköpunarkraftinn,
jafn vel svo að undan sveið segja
sam starfsmenn. Skúli hefur sýnt
mikla þrautseigju í gegnum tíðina
og er að uppskera sem slíkur nú.
Hann er keppnismaður og líklega
sá fjárfestir á Íslandi sem er í hvað
bestu formi, hafi menn áhuga á að
vita það! Skúli æfir fyrir þríþraut
sem einnig er kölluð Járnkarlinn
(e. Ironman) og hentar þeim sem
telja maraþonhlaupið ekki næga
áskorun! Kunnir segja að þar sé
ekkert hálfkák á ferðinni heldur,
Skúli sé alvörukeppnismaður og
leggi sig allan fram og jafnvel svo
að hann sprengdi sig í síðustu
þraut.“
Þá sagði: „Það var djörf ákvörð
un að fara með félagið til Kanada
en þar fékk það hins vegar fyrir
greiðslu og stuðning frá þar lend
um yfirvöldum enda umhverfi
sprotafyrirtækja mun hagstæðara
en hér á landi. Til að skilja tækifæri
félagsins betur verður að skoða
það sem Oz starfaði við undir
það síðasta. Þá var félagið að
hanna viðmót milli netsins og far
síma og hafði góða samninga við
sænska farsímarisann Ericsson
um þróun á slíku. Var svo komið
að Oz hafði fengið tilkynningu
um að bandaríski fjarskiptarisinn
AT&T hygðist taka búnaðinn í
reynsluprófanir. Daginn eftir að
tilkynning um það barst kom
áfallið. Skelfilegt uppgjör hjá
Erics son hafði knúið stjórnendur
félagsins til að endurskoða starf
semi sína. Deildin sem hafði
verið í samstarfi við Oz var lögð
niður. Tekjur félagsins hurfu og
ástandið á fjárfestingamörkuðum,
í kjölfar þess að netbólan sprakk,
gerði það að verkum að nýir
fjárfestar fengust ekki að félaginu.
Ævintýrið um Oz virtist búið spil.
Tíminn í Kanada reyndist hins vegar gjöfull og að lokum tókst að leiða finnska
fjarskiptarisann Nokia að borðinu
og keypti hann félagið með húð og
hári. Ná kvæmar sölutölur hafa ekki
legið fyrir en þeir sem til þekkja
hafa áætlað að salan hafi verið
einhvers staðar á bilinu 130 til 180
milljónir dala (16 til 22 milljarðar kr.
M.v. gengi 120 kr. á dollara).“
Þess má geta að Skúli fékk
Þorstein Pálsson, fyrrverandi
forsætisráðherra, til að gegna
stjórnar formennsku í MP banka en
augljóst er að aðrir hlut hafar líta
svo á að Skúli leiði verkefnið. Áður
en Skúli fékk að kaupa kjölfestuhlut
í bank anum þurfti hann að fara í
gegn um harða rannsókn af hálfu
Fjár málaeftirlitsins. Það að standast
slíka skoðun þóttu sterk með mæli
fyrir manninn sem hagnaðist í
Kanada og kom eins og storm
sveipur inn í íslenskt atvinnulíf á
árinu 2009.
„Fram kom að hrein
eign Skúla og Mar
grétar næmi 7,5 mill
jörðum króna og voru
þau efst á lista yfir 170
íslenska auðmenn.”
Skúli mogensen kom eins og stormsveipur inn í íslenskt atvinnulíf og fjárfesti í sprotafyrirtækjum. Wow air
kemst á lista Eyþórs Ívars um áhugavert sprotafyrirtæki undir fyrirsögninni: „gleðiflug á fjólubláum klæðum.“