Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 60
60 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013
Jeffrey Wieland,
þróunarstjóri hjá Facebook
Íslendingar eru óhrædd
ir. Að trúa að þú getir
gert eitthvað og hætta
ekki fyrr en þú gerir það
er viðhorf sem getur
komið manni langt.
Mesti kostur og ókostur Íslands er hversu
fámenn þjóðin er. Þjóðin veður að vinna
hörðum höndum til þess að draga að fólk
með hæfileika og verkfræðireynslu vegna
þess að það er ekki hægt að búa til alla
hæfni innan frá. En Ísland er einstætt hvað
varðar möguleika frumkvöðla á að deila
þekkingu. Mín von er að landið búi til netverk
aðila í nýsköpun sem geta hjálpað hver
öðrum. Ef allir eru eyland mun það taka lang an
tíma fyrir Ísland að rækta tæknigeirann.
Mikkel Draebye,
forstöðumaður MBAnáms við
Bocconiháskólann í Mílanó
Stór fyrirtæki þurfa að
hugsa um nýsköpun og
nýmarkaði vegna þess
að þar eru pen ingarnir.
Ef fyrirtæki hafa ekki
sterk einkaleyfi, eins
og lyfjafyrirtæki, er álagning á núverandi
vörulínur alltaf undir mikilli pressu. Ef fyrir
tæki vilja komast upp úr „rauða sjónum“
yfir í þann „bláa“ verða þau að hugsa
eins og frumkvöðlar. Það þarf að hlusta
á markaðinn og bregðast hratt við. … Í
grundvallaratriðum er verðmætasköpun
frumkvöðulsins hugarfar – það felst í menn
ingu fyrirtækisins. Það byggist á hvatn ingu,
ábyrgð, frjálsræði og þolinmæði gagnvart
mistökum. Þetta eru ekki þættir sem eru
byggðir upp á einni nóttu.
Brad Feld,
fjárfestir og hluthafi í framtaksfjár
festingarsjóðnum Foundry Group
Það eru fjögur grundvall
aratriði sem árangursríkt
frumkvöðlaumhverfi
verður að hafa: 1. Leið
togarnir verða að vera
frumkvöðlar. 2. Leiðtog
arnir verða að horfa til tuttugu ára og vera
hluti af samfélaginu yfir þann tíma. 3. Allir
í frumkvöðlasamfélaginu verða að hleypa
öll um þeim að sem vilja vera með. Og 4.
Það verða að vera atburðir eins og viðskipta
smiðjur, frumkvöðlahelgar og fundir sem leiða
fólk í frumkvöðlaumhverfinu til aðgerða. …
Orkan í kringum sprotafyrirtæki á Íslandi er
ótrúleg og það er raunverulegur áhugi á að
búa til sjálfbært frumkvöðlaumhverfi. Núna
er tíminn til þess að gera það að veruleika.
Brad Burnham,
hluthafi í framtaksfjárfestingar
sjóðnum Union Square Ventures
Ég er mjög upprifinn af
frumkvöðlum á Íslandi.
Ísland er eyja og Ís
lendingar hafa marga
eiginleika sem tengjast
því að búa afskekkt.
Íslendingar eru sjálfstæðir og sjálfum sér
nægir og ég held að fólki finnist ekkert
óþægilegt að taka áhættu. Þeir hafa einnig,
allavega þeir sem ég hef hitt, alþjóðlega
sýn, sem er sennilega vegna þess að þeir
ferðast mikið og fara utan í nám en koma
svo aftur til baka. Ný tækni og netið hafa
opnað gríðarmikla möguleika fyrir Íslend
inga og gert það mögulegt að komast
inn á hinn alþjóðlega markað. … Ég er í
raun mjög bjartsýnn á möguleika íslenskra
sprota fyrirtækja.
Dr. Norris Krueger,
prófessor við Northwestháskólann
í Bandaríkjunum
Ég var á Íslandi þegar
fjármálabólan blés út
– af hverju voru svona
margir nemendur að
taka fjármálaverkfræði?
Ég vildi óska þess að
ég gæti tekið tímavél og fengið bankana til
að láta mig hafa eitthvað af peningunum
til þess að fjárfesta í viðskiptaenglum og
framtakssjóðum (og jafnvel byggja upp
íslenska frumkvöðlaumhverfið). Skandi
na vísku löndin geta kennt okkur margt
– fjárfesting hins opinbera í Svíþjóð myndi
líta vel út í Bandaríkjunum, Danir eru að
setja frumkvöðlakennslu í alla skóla, í stuttu
máli; frumkvöðlaandinn er að springa út
á Norðurlöndunum. Kannski segir landið
ykkar allt sem segja þarf eða ICEparturinn
í nafninu. ICE => nýsköpun (innovation) =
frumleiki (creativity) + frumkvæði (entre
preneurship). Það er málið, til þess að fá
nýsköpun (I) þarf hugmynd (C) og frum
kvæði (E). Hver er hin takmarkaða auðlind?
Frumkvæði! Meira að segja í Kísildalnum
eru fleiri góðar hugmyndir en fólk til þess
að framkvæma þær.
Andrew Zolli,
framkvæmdastjóri PopTech
ráðstefnunnar
Hönnuðir gera tækni að
gengilega að einhverju
leyti og magna og efla
mannkynið. Hönnuðir
eru færir um að taka
okkur út úr ákveðnu
sam hengi. Hönnun spyr spurninga um eðli
þeirra kerfa sem hún er í. … Reykjavík gæti
verið alþjóðlegur höfuðstaður frumleikans.
Það sem við höfum gert er að koma með
fólk frá ölllum heimshornum til þess að
velta fyrir sér mikilvægum spurningum um
þolgæði. Það er mikilvægt og tímabært
umræðuefni. Það sem við teljum mikil
vægt er að Ísland getur orðið að miðstöð
al þjóðlegrar nýsköpunar. Ísland er staður
fyrir fólk til þess að skilja hvaða nýsköpun
verður mikilvæg fyrir framtíðina.
Brian Singerman,
– hluthafi í framtaksfjárfestingar
sjóðnum Founders Fund
Spurningin um af hverju
fjárfestar ættu að fjár
festa í sprotafyrirtækjum
er réttlát og ég fæ hana
oft. Fjárfestar ættu að
fjárfesta í teymi og
framtíðarsýn sem þeir trúa á. Ef þeir gera
það getur þeim ekki mistekist. Ef þú fjár
festir í sprotafyrirtæki einungis til þess að
verða ríkur á einni nóttu mun þér mistakast.
Ef fjárfestingin leiðir hins vegar til einhvers
sem skiptir þig virkilega miklu máli, eins og
að lækna krabbamein, mun þér ekki mis
takast. Að gera hluti sem þú virkilega trúir
á er meginástæðan fyrir árangri í þessum
geira. Fjárfesting í sprotafyrirtækjum er allt
of áhættusöm ef þú trúir ekki á teymið og
framtíðarsýnina og þú ert einungis að fjár
festa til þess að fjárfesta. Ég vona að þetta
sé skýrt, þetta er meginástæðan fyrir því
að ég geri það sem ég geri. … Það er svo
mikilvægt fyrir frumkvöðla að trúa á sjálfa
sig og teymið þegar enginn annar gerir
það. Það getur verið einmanalegt að vera
frumkvöðull. En bestu fyrirtækin eru alltaf
þau sem aðrir segja um „það er engin leið
að þú getir gert þetta!“ og svo sýna þau að
gagnrýnendurnir hafa rangt fyrir sér.
ERLENdiR FRUmkVöðLaR
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins Kringlunni 7, 3. hæð 103 Reykjavík
www.nsa.is nsa@nsa.is
Nýsköpunarsjóður tekur virkan þátt í þróun
og vexti atvinnulífsins með því að fjárfesta
í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum.