Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 72
72 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013
Okkur fannst athyglisvert hversu miklu af kísli er veitt aftur út í sjó án þess að
nokkuð sé gert við hann og
sá um fljótt að við vildum geta
þróað verkefnið okkar lengra
áfram,“ segir Fida en upphaflega
viðskiptahugmyndin var sú að
skapa verðmæti úr affallsvatni
jarð varmavirkjana og leggja
sérstaka áherslu á nýtingu
jarð hitakísilsins sem finnst í
jarð hitavökvanum. Síðar kom í
ljós að langhæsta kílóverð fyrir
kísil fæst ef hann er notaður sem
fæðubótarefni eða í heilsuvör ur.
Því var ákveðið að hefja vöru þróun
á fæðubótarefni í formi kísilsvif
vökva frekar en að fram leiða kísil til
iðnaðarnota, en Fida segir slíkan
markað vera ört stækk andi.
„Við vöruframleiðslu fyrirtækis
ins eru notuð steinefni í jarðhita
vökva og vökvinn sjálfur til að
búa til vörur til inntöku en ekki til
notkunar útvortis, sem er nýjung
í slíkri framleiðslu. Einnig höfum
við bætt við nýrri vöru sem
verð ur kísilríkt og steinefnaríkt
drykkjar vatn unnið úr affallsvatni
Hellisheiðarvirkjunar með því að
hreinsa arsen úr því og blanda
það með ferskvatni,“ segir Fida.
Stuðningur nýsköpunar
samfélags
Síðastliðið haust hlutu þau Fida
og Burkni verkefnisstyrk frá
Tækniþróunarsjóði sem mun
tryggja fyrirtækinu fjármagn
næstu þrjú árin og segir Fida miklu
muna að hljóta slíkan styrk til að
stíga fyrstu skrefin. Fyrirtækið er
til húsa í frumkvöðla setrinu Eldey,
sem er hluti nýsköpunarsamfé
lagsins í Ásbrú, og segir Fida
þau Burkna einnig hafa notið
mikil stuðnings þaðan.
„Í Eldey er ýmis þjónusta í boði
fyrir frumkvöðla. Þar fengum við
t.d. aðstoð við að sækja um aðra
styrki og sóttum fyrirlestur um
það að stofna fyrirtæki. Slíkur
stuðningur er nauðsynlegur í
frum kvöðlastarfi,“ segir Fida og
bætir við að í slíku starfi verði
fólk að taka áhættu til að byrja
með, trúa á hugmyndina og
að eitthvað verði úr henni. Hún
mælir með að fólk geri eitthvað
úr góðum hugmyndum því þann
ig megi í raun byggja upp betri
framtíð fyrir Ísland en skyldi hún
telja sprotaumhverfið hagkvæmt
á Íslandi í dag?
„Já, ég tel að umhverfið í dag
sé frekar hagstætt fyrir frum
kvöðla enda töluvert af nýsköp
unarstyrkjum í boði og má þar
sérstaklega nefna Tækniþróunar
sjóð, auk bankanna og Ný
sköpunarmiðstöðvar Íslands.
Sumt mætti þó bæta töluvert,
t.a.m. mætti ríkisstjórnin íhuga
að afnema tryggingargjaldið
fyrir sprotafyrirtæki sem eru að
mestu rekin með styrkjum,“ segir
Fida.
„síðastliðið haust
hlutu þau Fida og
Burkni verkefnisstyrk
frá tækniþróunar
sjóði sem mun
tryggja fyrirtækinu
fjár magn næstu þrjú
árin.“
Lokaverkefni
varð að sprotafyrirtæki
Fida abu libdeh og Burkni Pálsson stofnuðu ásamt Ögnum ehf. fyrirtækið geosilica iceland
ehf. í framhaldi af námi í orku og umhverfistæknifræði hjá keili.
G e o S i l i c a
stofnár: 2012.
stofnendur: Fida abu libdeh og Burkni Pálsson ásamt Ögnum ehf.
viðskiptahugmyndin: að nýta kísilríkt affallsvatn jarðvarmavirkj
ana til að framleiða hágæða kísilheilsuvörur úr 100% náttúrulegum
íslenskum jarðhitakísli án aukaefna.
markmið fyrirtækisins: að verða arðbært fyrirtæki með algjöra
sérstöðu á markaðnum með kísiltengdar heilsuvörur.
Texti: María Ólafsdóttir Mynd: Geir Ólafsson
Fida abu Libdeh stofnaði geoSilica ásamt burkna pálssyni og
ögnum ehf.