Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 78
78 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013
fyrirtækinu því það var alltaf
opin skrifstofa einhvers staðar í
heiminum.
Sólin var þó ekki ætíð hátt á lofti
hjá félaginu en í kjölfar Geysis
slys sins í september 1950, þegar
flugvél þess fórst á Vatnajökli, var
útlitið sannarlega dökkt. Stjórn
félagsins íhugaði í fullri alvöru
að leggja starfsemi þess niður en
Loftleiðamenn ákváðu að leggja
ekki árar í bát heldur halda upp á
jökulinn til að sækja bandarísku
skíða flugvélina sem hafði átt að
bjarga áhöfn Geysis og lá þar und
ir þykku snjólagi.
Þetta einstaka afrek í flugsögunni
varð til þess að Jökli, líkt og Loft
leiða menn nefndu vélina, var
breytt í farþegaflugvél og hún seld
til Spánar fyrir 29 þús und pund.
Var sú upphæð hreinn hagnaður
því það sem bjargað var af Geysis
farminum borg aði allan kostnað af
leið angr inum og meira til. Skiptu
þessir peningar sköpum fyrir
framtíð félagsins. Það sem einnig
hélt fé laginu saman í þessum
örðug leikum sem öðrum var sá
einstaki andi, Loftleiðaandinn,
sem ein kenndi félagið og starfsfólk
þess frá fyrstu tíð. Þennan anda
talar fyrrverandi starfsfólk um enn
í dag.
ReyKTu PÍPu Í RóLeG-
HeITuM
Geirþrúður, sem starfar sem flug
stjóri hjá Icelandair, átti hug mynd
ina að 65 ára afmælis flug ferð inni
og fékk félagið í lið með sér.
Þau sem skipuðu áhöfnina ásamt Geir þrúði voru systir hennar, Katrín Guðný Al
freðsdóttir, fyrsta freyja; Stefanía
Ástrós Benónýs dóttir, flugfreyja
og dóttir Geirþrúðar; Jóhann Axel
Thorar ensen, barna barn Axels
Thorarensen siglinga fræðings,
flugmaður; Gunnhildur Mekkinós
son, bróðurdóttir Fríðu Mekkinós
dóttur flugfreyju, flug freyja; Ásdís
Sverrisdóttir, barna barn Sigurðar
Magnússonar, blaða fulltrúa
Loftleiða og farþega í fyrstu
ferðinni, flugfreyja; og Halldóra
Finnbjörnsdóttir, dóttir Finnbjörns
Þorvaldssonar, skrif stofustjóra
Loft leiða, flugfreyja.
Tækninni hefur fleygt fram á
þeim sextíu og fimm árum sem
liðin eru frá fyrstu ferðinni en þá
þurftu t.a.m. siglingafræðingur
og loftskeytamaður að sjá um þau
samskipti og útreikninga sem nú
fara fram í tölvu. Sátu flug menn
irnir frammi í og reyktu pípu í
rólegheitum á meðan siglinga fræð
ingur og loft skeyta maður sinntu
störfum sínum.
„Í afmælisferðinni spjölluðum
við Jóhann Axel mikið um þessa
fyrstu ferð og veltum t.d. fyrir
okkur í hvaða hæð þeir hefðu
flogið og hvort þeir hefðu verið í
skýjum eða ókyrrð. Í dag förum
við yfir þrjátíu þúsund fet, yfir
flest ský og getum hækkað okkur
ef við erum að komast í skýja
toppa. Vegna þess að flugvélar
þessa tíma flugu hægt og höfðu
ekki nægilegt flugþol til þess að
fljúga alla leið í einum áfanga
þurfti að taka eldsneyti á leiðinni
og þegar lent var daginn eftir í
New Yor var þar mikil hitabylgja.
Ég held að það hafi orðið til þess
að vekja enn meiri athygli ytra á
ferðinni enda skildi fólk ekki hvað
Íslendingar væru að þvælast þarna
í þessum hita. Þá er gaman að
hugsa til þess að áður voru fimm í
stjórnklefanum og tvær flugfreyjur
aftur í en nú hefur talan snúist
við,“ segir Geirþrúður.
Geirþrúður sinnir einnig í dag
formennsku í Rannsóknarnefnd
samgönguslysa og situr í stjórn
eftirlaunasjóðs Félags íslenskra
atvinnuflugmanna (FÍA) en Alfreð
var einmitt einn af stofnfélögum
sjóðsins.
„Enginn Íslending
ur hefur verið jafn
lengi á flugi og
Krist inn Olsen,
rúmlega 4 þúsund
klukkustundir. Nú
tekur hann lífinu létt,
reykir heljarmikla,
bogna pípu.“
FRUmkVöðLaR Í FLUgiNU
Samhentur hópur flugstjóra hjá Loftleiðum. Frá vinstri; magnús guðmundsson, dagfinnur Stefánsson,
Jóhannes markússon, kristinn olsen, alfreð Elíasson, olav olssen og invgar Þorgilsson.
hjónin kristjana milla thorsteinsson og alfreð Elíasson.
kristinn og alfreð í kaupmannahöfn.