Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 36
36 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013
og frumkvöðlar
„Ég hef verið í sambandi við sjúkrahúspresta. Þar hefur þessi hugmynd hlotið góðar við
tökur og aðferðin við að koma skilaboðunum til skila er unnin í samráði við þá.“
Geta tölvur skapað framhaldslíf? Varla, en þær geta hjálpað til við að ná sambandi
við fólk eftir dauðann. Allir geta núna skilið eftir sín „ævispor“ á netinu og komið þeim
til skila eftir dauðann. Þetta er hugmyndin að baki sprotanum Ævisporum (e. When-
Gone) sem gerir fólki nú kleift að teygja sig út fyrir eigin ævi.
Sveinn Kristjánsson var við dauðans dyr árið 2009. Hann var með góðkynja æxli í höfði en það óx og
læknar voru óvissir um árangur
af uppskurði. Þetta var á vond
um stað. En við sjúkrabeðinn
sátu eiginkona, lítill sonur og
annað barn á leiðinni.
Svona áfall setur mark sitt á
menn en getur líka orðið upphaf
nýrra hluta. Sveinn segist hafa
hugsað til þess hvernig börnin
tvö gætu kynnst honum ef allt
færi á versta veg. Hann langaði
að senda skilaboð til þeirra inn
í framtíðina. Á netinu er nær
ótakmakað geymslupláss – og
fer vaxandi. Af hverju ekki að
geyma boðin þar?
Sveinn náði heilsu og ákvað
að gera þessa hugmynd að
veruleika. Hann stofnaði sprota
fyrirtækið WhenGone eða Ævi
spor og nú er Stefanía Sigurðar
dóttir, eiginkonan sem sat við
sjúkrabeð dauðvona manns
síns, einnig komin í fulla vinnu
við að koma sprotanum á legg.
„Stefanía sér um allt sem lýtur
að rekstri og utanumhaldi, bæði
á heimilinu og í fyrirtækinu,“
segir Sveinn. Þarna eru fleiri
starfs menn og von á enn meiri
starfskrafti sunnan frá Spáni.
Mikið af vinnunni snýst um
tölvufor ritun og að búa til að
gengilegt og öruggt viðmót á
net inu fyrir notendur. Viðmótið á
skján um og öryggið skipta öllu.
„Við verðum að gera ráð fyrir
að þeir sem hyggjast skilja eftir
sín ævispor hjá okkur hafi ekki
allir mikla tölvuþekkingu. Allt
verður að vera einfalt og umfram
allt öruggt,“ segir Sveinn.
Fer varlega fram
Tekjurnar koma af áskrift. Sá
sem skilur eftir sín ævispor
borg ar fyrir geymsluna. Eftir
andlát, sem tilkynnt er Þjóðskrá,
er mánuður látinn líða áður en
haft er samband við ætlaðan
við takanda með tölvupósti.
Við takendur geta afþakkað eða
sam þykkt að taka við upplýsing
unum. Ef ekkert svar kemur er
haft samband með bréfi í pósti
tveimur vikum síðar og ef ekki
er heldur áhugi fellur málið niður.
„Ég hef verið í sambandi við
sjúkrahúspresta. Þar hefur
þessi hugmynd hlotið góðar
við tökur og aðferðin við að koma
skilaboðunum til skila er unnin í
samráði við þá. Krabbameinsfé
lagið á Íslandi hefur einnig verið
okkur öflugur bakhjarl,“ segir
Sveinn.
Núna er verkefnið á lokastigi
hönnunar og markaðssetning
og dreifing næsta skref eftir
það. Fjármagn hefur komið frá
fjölskyldu og vinum og einnig
var WhenGone valið eitt af
tíu fyrirtækjum af rúmlega tvö
hundruð til að komast í Startup
Reykjavík (www.startupreykja
vik.com) og fá litla fjárfestingu
frá Arionbanka. Síðasta haust
lagði Tækniþróunarsjóður fram
fjármagn í verkefnið og nú hefur
Arion banki ákveðið að fylgja
eftir fyrri fjárfestingu og leggja
aukið hlutafé í verkefnið.
Ætlunin er að fara á erlendan
markað, og er fyrst og fremst
horft til Bandaríkjanna og
Norður landanna.
„Við hjón höfum alltaf verið
spennt fyrir nýsköpun. Stefanía
var ein þremenninganna sem
stofnuðu Innovit og er málum
kunnug. Ég var meistaranemi í
matvælafræði og hafði skrifað
átján síðna ritgerð um frosið
grænmeti skömmu áður en
hugmyndin að verkefninu kom
upp. Mér þótti það ekki mjög
áhugavert og því ekki erfitt að
snúa sér að öðru,“ segir Sveinn
Kristjánsson.
Sveinn Kristjánsson,
frumkvöðull hjá Ævispor.is: eigin æviteyGja siG út fyrir
hjónin Stefanía Sigurðardóttir og Sveinn kristjánsson, frumkvöðlar hjá Ævisporum, ásamt forritaranum
Simon tamman.