Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 44
44 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013
„Jú, það er rétt. Það má segja að ég
sé að flytja afraksturinn af 17 ára
vinnu minni hjá Óperu til Íslands,“
segir Jón. Hann er núna búsettur
í Boston í Bandaríkjunum og er
orðinn fjárfestir í fullri vinnu.
Áhug inn beinist þó að Íslandi.
Boston varð fyrir valinu vegna
þess að þar er mjög frjótt tækni um
hverfi og einnig „að þaðan er styst
til Íslands ef menn ætla á annað
borð að búa í Bandaríkjunum“,
segir Jón. Þar vestra ganga börnin
í skóla og þar heldur fjölskyldan
heimili.
2,5 til 3 milljarðar
Jón hefur jafnframt þessum
flutn ingum vestur um haf verið
áberandi í nýsköpunarfréttum
á Íslandi, meðal annars vegna
þess að hann hefur lagt fé í nýja
nýsköpunarmiðstöð og áhugaverð
íslensk sprotafyrirtæki.
Nýsköpunarmiðstöðin er rekin
í samvinnu við Klak og Jón segir
að eftirspurnin eftir vinnuaðstöðu
þar sýni að áhuginn á nýsköpun sé
mikill og jarðvegurinn frjór.
Flutningar Jóns á fé til landsins
eru umtalsverðir á íslenskan
mæli kvarða; hátt í þrír milljarðar.
Jafnframt er hann hættur afskipt
um af Óperu, sem hann byggði
upp í Osló, og hefur hlutur hans í
fyrirtækinu minkað.
Leggur fé á botninn
Fjárfestingar Jóns á Íslandi vekja
líka athygli í ljósi þess að fáir
virðast veðja á íslenskan efnahag.
Í nýlegu mati World Economic
Forum er Ísland í fimmta neðsta
sæti meðal þjóða heims þegar
metinn er sá kostur að festa fé sitt
á Íslandi. Gjaldeyrishöftin ein sér
nægja til að hrapa um hundrað
sæti á þessum lista. Síðan bætist
að sögn við heldur bág borið
reglu verk og frumstæður fjármála
markaður.
Hvernig dettur reyndum manni eins og Jóni í hug að vaða á móti straumn
um, þegar allir vilja helst koma
fé úr landi, og flytja peninga sína
heim? Hann fæddist á Íslandi, er
alinn upp á Seltjarnarnesinu en
fór um tvítugt út til náms og er
norskur ríkisborgari.
Jón segir að fárfestingar á Íslandi
séu góður kostur þrátt fyrir að
stæður í efnahagslífinu.
„Það skiptir mig ekki miklu þótt
ég sé bundinn af að hafa þessa
fjármuni á Íslandi í minnst fimm
ár,“ segir Jón. „Það er einfaldlega
svo að ég hafði ekki hugsað mér
að vera á stöðugu flakki með eigur
mínar.“
Höftin hræða
En það er fleira en þessi binding
sem hræðir. Gjaldeyrishöft hræða
sem slík. Ókunnugir menn flytja
ekki fé sitt inn fyrir höft án þess
að hafa nokkra reynslu af gjald
eyrishöftum og ekki hug mynd um
hvenær þau verði leyst.
„Ég geri mér vonir um að þessi
mál verði leyst. Gjaldeyrishöftin
verða ekki að eilífu. Færir menn
munu finna lausn á þessu vanda
máli þótt ég viti núna ekki hver sú
lausn er,“ segir Jón. „Þetta er bara
áhætta sem ég tek vegna þess að
ég er þess fullviss að höftin verði
leyst fyrr en síðar.“
Jón óttast því ekki að þetta haft á
efnahagslífnu herðist stöðugt eins
og höftum er gjarnt að gera: Að
innan skamms verði að sækja um
innflutningsleyfi á bomsum eins
og einu sinni var.
„Það er vissulega margt ógert í
endurreisn eftir hrunið. Skulda
málin, bæði heimila og ríkis, eru
óleyst vandamál og svo að sjálf
sögðu gjaldeyrishöftin en ég hef
„Það skiptir mig
ekki miklu þótt ég sé
bund inn af að hafa
þessa fjármuni á
Íslandi í minnst
fimm ár.“
Í 17 ár var Jón Stefánsson von Tetzchner einn aðaleigandi Opera Soft-
ware í Noregi og forstjóri þar. Hann hefur komið með um 2,7 milljarða
króna til Íslands og fjárfest fyrir um 2 milljarða í fasteignum og atvinnu hús-
næði og sett um 300 milljónir í minni fyrirtæki, eins og nýsköpunar fyrirtæki.
Af fyrir tækj um sem hann hefur fjár fest í má t.d. nefna OZ.com, Spyr.is,
Hringdu.is, SmartMedia.is og Budin.is.
Jón von Tetzchner hræðist ekki
gjaldeyrishöft og krónu:
iNNFLÆði FRUmkVöðLa
Jón von Tetzchner
TexTi: Gísli KrisTjánsson / Myndir: Geir ólafsson