Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 105
FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 105
reynsluheimi markþjálfans sem
er ekki endilega sá sami og
viðskiptavinarins.
Af hverju ættu stjórn
endur að velta mark
þjálfun fyrir sér?
Markþjálfun getur í mörgum
kringumstæðum nýst stjórnend
um mjög vel í áskorunum
þeirra, eins og kom fram hér að
framan.
Stjórnendur búa við það að
fá oft ekki nægjanlega eða
hrein skiptna endurgjöf, sem
getur leitt til kulnunar í starfi,
og þá getur markþjálfi nýst til
að fara hlutlaust yfir málin með.
Stjórn endur eru oft, eins og
áður sagði, nokkuð einir í sínu
starfi og nýta sér þá gjarnan
markþjálfa til að hafa banda
mann og stuðningsaðila sem
hjálpar þeim að skoða sig, sínar
áskoranir og þróun í starfi sem
stjórnandi.
Markþjálfun sem
hjálpar tæki stjórnenda
Stjórnendur ættu þó ekki síður
að velta markþjálfun fyrir sér
sem hjálpartæki fyrir sig við
stjórnun sinna eininga eða fyrir
tækja.
Læri stjórnendur grunnatriði
markþjálfunar, annaðhvort með
því að vera í markþjálfun sjálfir
eða á námskeiði, getur það
stórbætt stjórnun þeirra og
stjórnunarstíl.
Markþjálfun sem hjálpartæki
við stjórnun getur bætt árangur
eininga, þróað og eflt starfs
fólk til bættrar frammistöðu,
aukinn ar lausnahugsunar, betri
og sjálfstæðari ákvarðanatöku,
bætt samskipti og samvinnu
og margt fleira og á sama tíma
gert starf stjórnandans gjöfulla,
auðveldara og skemmtilegra.
Hvar og hvernig fer
þetta fram?
Markþjálfi og viðskiptavinur hitt
ast ýmist augliti til auglitis eða
tala saman í gegnum síma eða
Skype. Oftast er um langtíma
samband að ræða þar sem
stjórnandi nýtir sér markþjálfun
þegar hann finnur hjá sér þörf
til þes. Sambönd þessi geta því
varað frá þremur mánuðum upp
í áralöng sambönd.
Markþjálfar vinna einnig með
hópum sem vinna að sameigin
legu markmiði eða eru að glíma
við sambærilegar áskoranir.
Mælingar á árangri
og ávinningi mark
þjálfunar
ICF hefur verið að gera rann
sóknir á meðal viðskiptavina
markþjálfa og leggja í þeim
rannsóknum mat á hvern
viðskiptavinirnir telja ávinn
inginn af markþjálfun vera.
Hér má sjá nokkrar
niðurstöður þeirra
rannsókna:
80% þeirra sem hafa nýtt
sér markþjálfun segjast hafa
meira sjálfstraust.
72% segjast hafa aukið sam
skiptahæfni sína.
70% segjast hafa bætt eigin
frammistöðu í vinnu.
67% segjast upplifa meira
jafnvægi vinnu og einkalífs.
57% segjast hafa bætt eigin
tímastjórnun.
Í niðurstöðum könnunar sem
ICF gerði árið 2009 segja for
svarsmenn fyrirtækja sem nýtt
hafa sér markþjálfa, til að styrkja
starfsemina og starfsfólkið, að
arðsemi þeirrar fjárfestingar sé
sjöföld.
Mat einstaklinga, sem keypt höfðu sér markþjálfun, var að arðsemin
væri rúmlega þreföld.
Þeir nefndu einnig ávinning eins
og ný sjónarhorn á persónuleg
ar áskoranir og tækifæri, aukna
hæfni til ákvarðanatöku, aukna
lífsgleði og starfsánægju, aukna
getu til að setja sér og ná mark
miðum og aukið sjálfstraust.
Ekki er þekkt hlutfall þeirra
stjórnenda eða fyrirtækja hér
lendis sem nýta sér markþjálf
un en samkvæmt rannsókn
sem gerð var í Bretlandi árið
2010 nýta 82% þarlendra
fyrirtækja markþjálfun sem hluta
stjórnendaþjálfunar. Reyndar
þykir það víða bera vott um
metnað stjórnenda að þeir hafi
markþjálfa, að þeir ætli sér eitt
hvað meira en þeir eru þegar
að gera.
Í niðurstöðum rannsókna
Sherpa í Bandaríkjunum, sem
gerðar hafa verið reglulega frá
árinu 2006, kemur í ljós að nokk
ur breyting er að verða á því
hvernig markþjálfun er nýtt, frá
því að vera notuð til að leysa úr
sértækum vandamálum yfir í að
vera notuð við breytingastjórn
un og almenna leiðtogaþróun.
Í rannsóknum sama fyrirtækis
á árunum 20092012 sést
einnig að þeir sem nýta sér
markþjálfun verða sannfærðari
um virði markþjálfunar og að
markþjálfun sem aðferðafræði
sé þegar búin að sanna sig og
komin til að vera.
Hver er markþjálfinn þinn?
„Markþjálfar
vinna einnig með
hópum sem vinna
að sameiginlegu
markmiði eða eru að
glíma við sambæri
legar áskoranir.“