Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 58
58 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013
glöggt er gests augað
tilvitnanir í nokkra útlendinga sem tengjast íslandi
TexTi: eyþór ívar jónsson
Paul Bennett,
framkvæmdastjóri hjá hönn unar
ráð gjafar fyrirtækinu IDEO
Þjóðir verða að bregð
ast við hratt, sér stak
lega þegar hagkerfi eru
í frjálsu falli eins og Ís
lands var. Það er enginn
tími fyrir flækju stig,
akademíska fræðimennsku eða flókna ferla
sem miða ekki að því að ýta hlutum úr vör
strax. Stjórnar hættir, hvort sem er fyrirtækja
eða stjórnvalda, þurfa að vera algerlega
gagnsæir; ef fólk er að missa heimili sín og
vinnu er mikilvægt að segja því frá hvað
er verið að gera, hvetja til þátttöku þess
og skapa verðmæti fyrir fólk til skemmri
tíma. Þegar tíminn tifar er hraði og tilfinning
fyrir því að hlutirnir séu að þróast áfram
svarið. Og enn sem fyrr er það hræðslan
við mistök sem er stóra hindr unin í vegi
framkvæmda.
Roberto Verganti,
prófessor við Politecnico di Milano
Nýsköpun er mikilvæg
vegna þess að hún er
drifkraftur breytinga,
drifkraftur þess að gera
hluti öðruvísi. Á Vestur
löndum er þetta það
eina sem við getum keppt í nú á dögum.
Við getum ekki keppt á grunni kostnaðar
þannig að við verðum að keppa á grunni
nýsköpunar. Nýsköpun og hönnun eru
nátengd þar sem hönnun snýst um að
breyta þýðingu hluta, að gera eitthvað
verðmætt. Við þurfum líka nýsköpun þegar
kemur að viðskiptamódelum. Nýsköpun
viðskiptamódela er möguleg og mikilvæg
vegna breytinga á tækni. Við sjáum t.d.
breytingar vegna netsins. Nýsköpun snýst
ekki einungis um vörur og þjónustu; hún
er miklu víðtækara hugtak sem inniheldur
viðskiptamódel líka. Apple var ekki bara í
nýsköpun á vörum og þjónustu varðandi
t.d. iTunes og tónlist. Apple breytti því
hvernig við hlustum og spilum tónlist,
nýsköpunin fólst í viðskiptamódelinu sem
breytti jafnframt tónlistarbransanum.
ERLENdiR FRUmkVöðLaR
Viðskiptasmiðjunni Startup Reykjavík er nú lokið í annað sinn.
Tuttugu teymi með spennandi hugmyndir hafa farið í gegnum
ferlið og eru komin á fulla ferð með að koma hugmyndum
sínum í framkvæmd.
Startup Reykjavík er samstarfsverkefni Arion banka, Innovit
og Klak og hefur það markmið að efla nýsköpun í íslensku
atvinnulífi með sérfræðiaðstoð og hlutafé.
Á næsta ári bætast tíu ný sprotafyrirtæki í hópinn.
Framtíðin er björt.
„Ógleymanlegt sumar, bæði árangursríkt og skemmtilegt.“
Stefán Baxter, Flaumur ehf.
„Á tíu vikum náðum við að þróa fyrirtækið jafnlangt og við
annars hefðum gert á rúmu ári.“
Arnar Laufdal, Cloud Engineering
„Að fá inn sterkan hluhafa á upphafsstigum samhliða ráð-
gjöf og aðgang að tengslaneti frá ólíkum mentorum var
ómetanlegt.“
Ingunn Guðbrandsdóttir, EskiTech.
„Hver einasti jarðarbúi er með a.m.k. eina góða hugmynd.
Þess vegna er mikilvægt að til sé umhverfi þar sem þessar
hugmyndir fá að verða að veruleika. Startup Reykjavík
skapar slíkt umhverfi."
Birgir Þór Sigurðsson, Þoran Distillery
„Án efa besta
frumkvöðlaumhverfi
sem völ er á.“
Ýr Þrastardóttir, YZ Creation
Roberto Verganti, prófessor við politecnico di milano: Nýsköpun snýst ekki einungis um vörur og þjónustu; hún er miklu
víðtækara hugtak sem inniheldur viðskiptamódel líka.