Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 50
50 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013
iNNFLÆði FRUmkVöðLa
Skúli hagnaðist verulega þegar hann seldi fyrirtæki sitt í Kanada til Nokia og eftir það hefur hann
komið með nokkra milljarða
inn til landsins til fjárfestinga.
Hann kemur við sögu í mörgum
félögum en er líklegast þekktastur
fyrir fjárfestingar sínar í Wow air
og MP banka. Sagt var frá því í
fjölmiðlum í fyrrasumar eftir að
skattskráin kom út að hrein eigna
Skúla og Margrétar næmi 7,5
milljörðum króna og voru þau
efst á lista Viðskiptablaðsins yfir
170 íslenska auðmenn. Fram hefur
komið í fjölmiðlum að undanförnu
að eftir að þau skildu hafi Margrét
eignast hlut þeirra í Securitas.
Skúli hefur ekki ráðist í neinar
nýjar fjárfestingar síðustu misseri
og segist aðspurður ekki hyggja á
slíkt að svo stöddu. Öll hans orka
fari þessa stundina í að byggja upp
rekstur Wow air sem var stofnað í
lok árs 2011. Félagið yfirtók rekstur
Iceland Express í lok október í
fyrra og hefur aukið starfsemi sína
umtalsvert. Wow air skilaði 184
milljóna króna rekstrarhagnaði
fyrstu sjö mánuði ársins og
námu rekstrartekjur félagsins
5,5 milljörðum samkvæmt
upplýsingum sem fengust frá
félaginu.
Markmið Títans var kynnt
þannig í upphafi að það væri að
fjárfesta og taka þátt í endurreisn
atvinnulífsins á Íslandi. Títan
hefur fjárfest fyrir um tvo milljarða
á Íslandi, aðallega í þekkingar
og nýsköpunarfélögum og MP
banka. Einnig keypti félagið 5%
hlut í Advania 2012 í byrjun ársins
2012. Á meðal annarra fyrirtækja
sem Títan hefur fjárfest í eru
Carbon Recycling International,
Securitas, Thor DataCenter,
tölvumyndafyrirtækið CAOZ,
Tindar Verðbréf og Datamarket.
Títan er virkur langtímafjárfestir
sem telur að langtímavelgengni
byggist á því að tryggja að
hagsmunir hluthafa, starfsfólks,
viðskiptavina og samfélagsins
fari saman. Skúli og Margrét voru
búsett í Kanada á árunum 2002
2010 þar sem hann stýrði OZ þar
til það var selt til Nokia 2008.
Skúli hefur tekið þátt í að stofna
og fjárfesta í fjölda fyrirtækja, bæði
hérlendis og erlendis, svo sem OZ
hf., Íslandssíma og Arctic Ventures.
Skúli situr einnig í stjórn Redline
Communications í Kanada.
Seldi OZ til Nokia á metfé
Í ítarlegu viðtali við Frjálsa verslun
í byrjun árins 2012 var rifjað upp
að Skúli hefði horfið með eftir
hreytur ævintýrafyrirtækisins Oz
úr landi eftir að það var lagt niður
árið 2002 eftir að Landsbankinn
hafði tekið starfsemi þess yfir.
Nokkrum árum síðar var félagið
komið í hagnað í Kanada og síðan
selt fyrir metfé til Nokia árið 2008.
Hin mikla breyting sem varð á
Oz skýrist hugsanlega best á því
að árið 2002 voru starfsmenn
félagsins komnir niður í 20 og
veltan aðeins um hálf milljón
Banda ríkjadala. Þegar félagið
var selt sex árum síðar til Nokia
störfuðu rúmlega 200 manns
hjá því og veltan komin yfir 35
milljónir dala. Jafnframt hafði
Oz tekist að fá inn rúmlega 60
milljónir dala í áhættufjármögnun
frá stórum áhættusjóðum (e.
venture capital) í NorðurAmeríku
og víðar. Þar má nefna Vantage
Pointsjóðinn í Bandaríkjunum,
kanadíska fjárfesta eins og CDP
og evrópska eins og TMobile
Ventures. Fram kom hjá Skúla að
án þessa áhættufjármagns hefði
félaginu aldrei tekist að snúa við
blaðinu eins og raunin varð.
En um leið og salan var um garð
gengin hóf Skúli að skipuleggja
endurkomu sína inn í íslenskt
viðskiptalíf og hóf undirbúning
að stofnun fjárfestingafélags
sem fékk nafnið Títan, sem er
reyndar ekki ókunnugt í íslenskri
viðskiptasögu. Stórskáldið Einar
Benediktsson skírði fossafélag sitt
þessu nafni og svo má geta þess
að tunglið Títan, sem sveimar
um Satúrnus, er draumastaður
TexTi: jón G. HauKson / Mynd: Geir ólafsson
Skúli Mogensen, eigandi og forstjóri Wow air, er einn umsvifa mesti fjárfestir landsins
í gegnum Títan, fjárfestingafélag sitt. Hann og fyrrverandi kona hans, Margrét Ásgeirsdóttir
læknir, eru gott dæmi um innflæði frumkvöðla til landsins. Þau komu eins og stormsveipur
inn í íslenskt atvinnu líf á árinu 2009. Sagt var frá því í fjölmiðlum í fyrrasumar eftir að skatt
skráin kom út að hrein eigna Skúla og Margrétar næmi 7,5 milljörðum króna og voru þau
efst á lista Viðskiptablaðsins yfir 170 íslenska auðmenn.
Skúli Mogensen