Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 55
FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 55
Vulcanol
Koltvísýringur til framleiðslunnar
er endurunninn úr útblæstri orku
versins í Svartsengi. Með því að
nýta endurnýjanlega orku til þess
að framleiða vetni sem hvarfað
er við koltvísýringinn verður
til fljótandi bílaeldsneyti. Þegar
horft er á lífsferil elds neytis ins frá
upphafi til enda dregur það úr
losun gróðurhúsalofttegunda um
90% samanborið við sama magn
orku úr bensíni. Eldsneytið er
kallað Vulcanol til aðgreiningar frá
hefðbundnu metanóli sem unnið
er úr jarðgasi eða kolum. Það er
hægt að nota til að knýja bíla með
sprengihreyfli, en einnig efnarafala
sem og til framleiðslu á efnavöru
svo sem plasti og gervi efnum eins
og akrýl, næloni o.s.frv.
Kostir Vulcanols eru þeir að
það breytir rafmagni í fljótandi
eldsneyti fyrir bíla, dregur úr
losun koltvísýrings um 90%
saman borið við bensín og dísilolíu.
Vulcanol er samkeppnisfært við
lífelds neyti, því má blanda við
bensín eða nýta til framleiðslu
á öðru eldsneyti í samræmi við
evrópska eldsneytisstaðla. Þá
er metanól eldsneyti með háa
oktantölu, sem gefur bæði hraða
og snerpu.
Verksmiðja fyrirtækisins í
Svarts engi á að geta framleitt
um fimm milljónir lítra af endur
nýjanlegu metanóli á ári. Nú er
framleiðslugetan um 1,7 milljónir
lítra á ári sem ræðst af getu til
fram leiðslu á vetni.
Fyrirtækið selur framleiðslu
sína hér á landi og á meginlandi
Evrópu en í vor flutti það út fyrsta
gáminn af Vulcanoli til Hollands.
Með framleiðslu á grænu elds neyti
úr koltvísýringi og endurnýjan
legum orkugjöfum sem eru ekki af
líf rænum uppruna er stigið mikil
vægt skref í framþróun á grænni
elds neytisframleiðslu.
Fleiri verksmiðjur áformaðar
Fastir starfsmenn fyrirtækisins eru
25. Á sumrin fjölgar þeim umtals
vert en fjöldi starfsnema sækir um
sumarvinnu hjá Carbon Recycling
International og koma þeir frá
ýmsum bestu háskólum í heimi
svo sem MIT, Harvard og Stanford
í Bandaríkjunum og Oxford og
Cambridge á Englandi.
Í vor bættist við nýr hluthafi,
kana díska orkufyrirtækið Metha
nex, sem lagði til hlutafé að
verð mæti fimm milljónir banda
ríkja dala, eða 600 milljónir króna.
Auk þess boðaði fyrirtækið frekari
fjárfestingu til að styðja við vöxt
Carbon Recycling Inter national.
Með þessu varð Methanex í hópi
stærri hluthafa í fyrirtækinu.
„Methanex er stærsta fyrirtæki
í heimi í framleiðslu, dreifingu og
viðskiptum með metanól. Með því
að fá þá í hóp hluthafa höfum við
öðlast sterkan samstarfsaðila við
að auka hlut Vulcanols á markaði
fyrir endurnýjanlegt eldsneyti. Við
getum lagt meiri áherslu á að vaxa
og verða leiðandi á þessu sviði.“
KC Tran er bjartsýnn og eru
áform um að byggja stærri verk
smiðjur í framtíðinni, bæði hér á
landi og erlendis, til að framleiða
endur nýjanlegt metanól. Meðal
annars hefur fyrirtækið kynnt Orku
veitu Reykavíkur þá hug mynd
að reisa verksmiðju sem myndi
fram leiða verðmætar vörur úr kol
tvísýrings og brenni steins vetnis
mengun frá Hellis heiðar virkjun.
Gert er ráð fyrir að útflutnings verð
mæti Vulcanols og brenni steinssýru
frá slíkri verk smiðju yrði um fjórir
milljarðar króna á ári.
„Carbon Recycling
International er fyrsta
fyrirtækið sinn
ar tegundar en það
fram leiðir endur
nýjanlegt metanól
úr útblæstri, vatni og
raforku í verksmiðju
sinni í Svartsengi.“
kC tran flutti til Íslands árið 2006 og er einn af upphafsmönnum Carbon Recycling international.
KC Tran