Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 67
FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 67
Öflugt nýsköpunarumhverfi þrífst á þátt töku margra, t.d. fræði manna, frum
kvöðla og stjórnenda fyrirtækja,“
segir Margrét Ormslev Ás geirs
dóttir sérfræðingur ný sköp unar
þjónustu Lands bank ans.
„Við vildum tefla þessum
hóp um saman og gerðum það
haustið 2012 á ráðstefnunni Ice
land Innovation UnConference
í samstarfi við Háskóla Íslands
og Massachusetts Technology
Leadership Council. Þar tókst
að leiða saman um 200 manns,
fólk sem ekki á alla jafna kost á
að ræða saman um hugmyndir
sem orðið geta kveikja að nýjum
fyrirtækj um í framtíðinni.
Við vorum mjög ánægð með
hvernig til tókst á síðasta ári og
ætlum að endurtaka leikinn 9.
nóvember. Á ráðstefnunni ráða
þátt takendur sjálfir umræðuefn
unum og allir sem mæta eiga
þess kost að fá svör við þeim
spurningum sem helst brenna
á þeim, hvort sem er í umræðu
hópum eða einkaviðtölum við
sérfræðinga. Í ár verður að auki
hægt að hefja umræðuna og
kynnast öðrum þátttakendum
eða leiðbeinend um á Facebook
áður en að viðburðinum sjálfum
kemur.“
Gerum „eitthvað annað“
Þetta er eitthvað annað er
verðlaunasamkeppni Matís og
Lands bankans á sviði matvæla
og líft0ækni sem haldin er í fyrsta
sinn í haust. Aðstandendur binda
miklar vonir við þessa keppni,“
segir Margrét. Höfundar bestu
hugmyndanna fá fjölbreytta
fræðslu og þjálfun í áætlana
gerð og innsýn í þróunar og
framleiðsluferla í matvæla og
líf tækniiðnaði. Sigurvegarinn fær
síðan vegleg peningaverðlaun
auk aðstoðar frá Matís við
áfram haldandi þróunar sinnar
hug myndar.
Þróunarsjóður í
ferðaþjón ustu
Margrét bendir einnig á að
Lands bankinn og atvinnuvega
og nýsköpunarráðuneyti standi
saman að Þróunarsjóði til að
hvetja og styrkja ný verkefni
og fyrirtæki í ferðaþjónustu.
Til gangurinn sé að auka við
af þreyingu um allt land og á
öll um árstímum þannig að arð
semi ferðaþjónustunnar aukist.
Þróunarsjóðurinn hefur þegar
styrkt 32 verkefni um 70 milljónir
króna og næst verður úthlutað
35 milljónum króna úr sjóðn
um. Umsóknarfrestur er til 23.
október.
Fjölbreyttur stuðningur
„Við leggjum áherslu á fjölbreytni,
á grasrótina og fræðslu,“ segir
Margrét. „Við teljum að þessi
hug myndafræði okkar hafi þegar
skilað árangri og það hefur
verið virkilega ánægjulegt að
sjá hugmyndir, sem eiga upphaf
sitt í viðburðum eða styrkjum á
vegum bankans, eflast og verða
að veruleika.“
Önnur stór verkefni:
Samfélagssjóður hefur á síð ustu
tveimur árum veitt 30 millj ónir
króna í nýsköpunarstyrki til
53 verkefna. Í nóvember verður
úthlutað 15 milljónum til viðbótar.
Landsbankinn styrkir ÚTÓN og
tekur þátt í nokkrum verkefnum
til að styðja útflutning á íslenskri
tónlist.
Lánatryggingasjóðurinn
Svanni, sem ætlað er að styðja
við hugmyndir kvenna, var endur
reistur í samstarfi við Landsbank
ann. Lánað hefur verið í tíu
verkefni. Umsóknarfrestur rennur
út í byrjun október.
Landsbankinn hélt, ásamt
Klak Innovit, Atvinnu og ný
sköp unarhelgar um allt land
á árunum 20112013. Hundruð
einstaklinga og fyrirtækja tóku
þátt í þeim og tæplega 200 nýjar
hugmyndir litu dagsins ljós.
Framhaldsverkefni eru stærri
vinnusmiðjur sem bera nafnið
Startup Weekend, sú næsta í
október.
Landsbankinn er meðal bak
hjarla Nýsköpunarkeppni
grunn skólanna og býður fram
halds skólum upp á frumkvöðla
fræðslu.
Landsbankinn hefur frá árinu
2008 verið einn aðalbakhjarl
Gulleggsins – frumkvöðla keppni
KlaksInnovit.
Landsbankinn heldur úti
fræðslu vef og nýsköpunar
þjón ustu. Hátt í hundrað
frum kvöðl ar hafa notið beinnar
að stoðar sérfræðings nýsköp
unar þjón ustu og enn fleiri fengið
aðstoð í gegnum netfangið
nyskopun@landsbank inn.is eða
á vefnum. Yfir 5.000 heimsóknir
eru skráðar frá opnun.
Landsbankinn styrkir fram úr
skar andi frumkvæði á þessu
sviði, t.d. gerð heimilda myndar
innar The Startup Kids.
„við teljum að þessi
hugmyndafræði okk
ar hafi þegar skilað
árangri.“
Stuðningur við
nýsköpun hefur stóraukist
stuðningur við nýjar hugmyndir og þróun þeirra er hluti af stefnu landsbankans. Ákveðið var árið 2010
að styðja sérstaklega við bakið á frumkvöðlum og nýsköpun í takt við nýja stefnu og frá þeim tíma hefur
stuðningur við nýsköpun verið stóraukinn.
L a n d s b a n k i n n
Texti: Svava Jónsdóttir Mynd: Geir Ólafsson
Leggjum áherslu á fjölbreytni,
segir margrét ormslev Ásgeirs-
dóttir.