Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 23

Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 23
FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 23 Valdimar Sigurðsson segir að sér finnist fyrirtæki oft vera of upptekin við að ná í nýja neytendur í stað þess að reyna að halda í þá sem fyrir eru. „Fyrirtækin vita yfirleitt ekki varðveisluna; hve margir halda áfram yfir á næsta tímabil eða ár. Í stað þess að reyna að skófla enda­ laust inn nýjum neytendum með dýrum auglýsingum og annarri kynn ingarstarfsemi ættu fleiri að huga að svokölluðum upplif­ unarhring neytenda, þ.e.a.s. að skipuleggja vel hvað eigi að gerast í fyrsta skipti sem neytandi verslar – það ætti t.d. að kynna alla þjónustu vel í byrjun; hvernig eigi að fylgja viðskiptunum eftir, minna t.d. á sig með lítilli afmælisgjöf – fyrir bæði endur­ og kross­ sölu. Fyrirtæki þurfa að hafa mark mið in og aferðafræðina á hreinu. Þegar neytendur eru komn ir inn er markmiðið að halda þeim ánægðum og reikna út svo kall aða líftímavirðiskúrfu fyrir þá, sem felst í því að framreikna væntanlegan ábata viðskipt­ anna. Maður sér það sjaldan gert. Ef fyrirtæki gera þetta og vita að þau geta haldið kannski 70­80% af neytendum sínum á milli ára geta þau alveg eins gefið þjónustuna í fyrsta skiptið því að neytendur koma aftur og aftur. Þannig er mögulegt fyrir sum fyrirtæki að ná fram frekari vexti neytendahópsins og fyrirtækisins – t.d. hárgreiðslu­ stofur, veitingahús eða hótel – með markvissri þjónustu­ stjórnun.“ dR. valdimaR siguRðsson – dósent við við skiptadeild HR MARKAÐS- HERFERÐIN Hver getur gefið þjónustuna? CIPA, samtök mynda ­vélafram leið enda, sendu ný lega frá sér tölur um sölu á mynda vélum fyrstu sex mánuði ársins. Það er enginn skemmti ­ lestur. Salan hefur hrunið. Hún dróst saman um 43% frá fyrra tímabili og endaði í 29,7 milljón­ um seldra myndavéla. Mest dróst salan saman í litlum myndavélum en um helmingi færri vélar seldust af þeim, eða um 22,2 milljónir. Salan á stærri myndavélum, með skiptanlegum linsum, dróst mun minna saman, eða um 18%, en alls seldust 7,6 milljónir slíkra myndavéla. Hvað veldur? Svarið er einfalt. Snjallsímar hafa tekið við sem tækisfærismyndavélar. Enda eru margir þeirra eins góðir – ef ekki betri – og ódýrustu myndavélarn­ ar. Síðan er mun einfaldara að senda, geyma og nota myndir úr snjallsímunum. Það liggur við að myndirnar séu komnar á netið á sama augnabliki og þær eru teknar. iPhone hefur undanfarin misseri verið sá sími – eða á maður að segja myndavél – sem á flestar myndir inni á myndavefjum eins og Instagram og Flickr. En þar er að verða breyting á. Margir símaframleið­ endur eru komnir langt fram úr Apple í myndgæðum, eins og toppsímarnir frá HTC, Sony og Samsung Galaxy III og IV. Svo maður tali nú ekki um Nokia, sem var að kynna Lumina 1020­ofur­ myndavélarsímann um daginn. Þetta er sími sem tekur 41 mill­ jónar pixla myndir; myndir sem standast samanburð við góðar, dýrar myndavélar og tekur upp myndbönd í HD­gæð um með hristivörn og hljóði í Dolby­steríó. Það er engin furða þótt mynda ­ vélabransinn viti ekki sitt rjúkandi ráð. Það eru erfiðir tímar fram­ undan hjá þeim framleiðendum sem hafa einbeitt sér að ódýrum og litlum myndavélum. Dýrari vélarnar munu lifa af, ekki hinar, það er deginum ljósara. PÁll stefÁnsson – ljósmyndari GRÆJUR Veit ekki sitt rjúkandi ráð Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta Jó úin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.