Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 47

Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 47
FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 47 Ég er fyrst og fremst að hjálpa, annað býr ekki að baki. Það er engin kvöð á að ég komi inn í þau fyrirtæki sem hér munu starfa. Ég rek þetta ekki með fjár hagslegan ágóða í huga. Hugs un mín er að bjóða ódýrt, skapandi umhverfi fyrir sprota ­ fyrir tæki svo þau fái notið sín; bjóða aðstöðu sem einkennist af orku, samheldni, sköpunarkrafti og dýnamík,“ segir Jón von Tetzchner þegar hann sýnir nýtt frumkvöðlasetur sem hann opnar á næstunni í 800 fer metra húsnæði á Eiðistorgi á Seltjarnar ­ nesi. Hugmyndin er að sprotafyrir ­ tækin á Eiðistorgi geti nýtt sér tengsla net Jóns við frumkvöðla­ setur í Noregi, Berlín, Boston og Kísildalnum – og komist þannig í stærra umhverfi þótt aðstaðan sé á Íslandi. Frumkvöðlasetur Jóns á Eiðis­ torgi og fyrirhugað setur hans í Boston munu bæði bera nafnið Innovation house. Á Eiðistorgi eru tvær álmur með tólf vel útbúnum skrifstof­ um hvor. Öll tækniaðstaða er fyrsta flokks. Þarna verður því rými fyrir allt að 24 fyrirtæki og auk þess sameiginleg aðstaða, eins og tvö fundarherbergi, stórt eldhús og salur sem tekur yfir hundrað manns. Klak Innovit er eitt þeirra fyrir ­ tækja sem flytjast á Eiðistorgið en þessi tvö frumkvöðlasetur, Klak og Innovit, sameinuðust sl. vor. Jón er Seltirningur, alinn upp á Nesinu, en fluttist til Noregs eftir stúdentspróf og stofnaði þar síðar hið kunna fyrirtækið Opera. Opera framleiðir samnef­ ndan vafra sem er m.a. vinsæll í farsímum vegna þess hve hrað­ virkur og fyrirferðarlítill hann er. Hann trúir á átthagana á Nes­ inu. „Hér er afar gott útsýni yfir sjóinn og Snæfellsjökull blasir við í góðu veðri. Það er auðvelt að finna orkuna og kraftinn hér fyrir utan. Þá er lítið mál að ganga niður að sjónum og slaka á, jafnvel fara í gönguferð út í Gróttu. Þetta er hvetjandi um­ hverfi – og setrið getur raunar orðið svolítil lyftistöng í leiðinni fyrir Eiðistorgið.“ Jón hefur um áraraðir verið með kunnustu mönnum í við ­ skipta lífi Noregs. Opera var í fyrra metið á um 75 milljarða króna og hlutur Jóns, um 10%, þar af leiðandi um 7,5 milljarðar króna. Opera er núna metið á um 150 milljarða króna. Hann fluttist á síðasta ári til Boston og hefur minnkað hlut sinn í Operu og fjárfest þess í stað í nýjum verkefnum víða, t.d. í Bandaríkjunum og Ís landi. Hann hefur komið með um 2,7 milljarða króna til Íslands og fjárfest fyrir um tvo milljarða í fasteignum og atvinnuhúsnæði og sett um 300 milljónir í minni fyrirtæki, eins og nýsköpunarfyrirtæki. Af fyrirtækj­ um sem hann hefur fjár fest í má t.d. nefna OZ.com, Spyr.is, Hringdu.is, SmartMedia.is og Budin.is. Þegar hann kynnti frumkvöðla­ setrið á Eiðistorgi voru tveir af fyrrverandi samstarfsmönnum hans hjá Operu á staðnum. Annar þeirra er Rolf Assev, fyrrverandi sölu­ og markaðs­ stjóri Operu, sem stýrir núna frumkvöðlasetrinu StartupLab í Noregi sem hýsir 55 sprota­ fyrirtæki. Tor Bækkelund var líka á staðnum, en hann vinnur með Rolf í StartupLab. „Hugmyndin er sú að það verði formleg samskipti héðan við frumkvöðlasetur Rolfs í Nor egi en það hefur aftur sterk tengsl við svipuð setur í Berlín og Kísildaln­ um í Kaliforníu,“ segir Jón. Hann bætir því við að Rolf sé hugmyndaríkasti maður sem hann þekki, snjall að kynna vörur og koma þeim á fram færi. „Hann er einstakur markaðs ­ mað ur. Það er ekki nóg að vara sé góð, það þarf líka að koma henni á framfæri.“ Þá er í bígerð hjá Jóni að stofna frumkvöðlasetur í Gloucester sem er í um klukkutíma aksturs­ fjarlægð norður af Boston í Banda ríkjunum – en Jón býr einmitt í Gloucester – og jafnvel að þar bjóðist frumkvöðlum héðan ódýr gistiaðstaða þann tíma sem þeir dvelja ytra. „Hugsunin er að fyrirtæki hér í frumkvöðlasetrinu á Eiðis­ torgi og þau fyrirtæki sem ég vinn með hér á landi geti tengst fyrirtækjum og fjárfestum úti í Boston. Það getur verið kostnaðar samt fyrir forráðamenn sprotafyrirtækja að fara til útlanda og kynnast umhverfinu með því að dvelja þar um tíma. En tengsl­ in við fyrirhugað frumkvöðlasetur munu gefa færi á þessu.“ Annar fyrrverandi starfsmaður Jóns hjá Operu, Anne Stavnes, hefur haft veg og vanda af breytingum á húsnæðinu á Eiðistorgi, sem hafði staðið autt í þrjú ár áður en Jón keypti það, en Lyfjastofnun var þar áður til húsa. Húsnæðið hefur fengið mikla andlitslyftingu. „Anna er mjög skapandi og sem starfsmannastjóri í Operu byggði hún upp skemmtilega starfsaðstöðu. Hún mun einnig undirbúa frumkvöðlasetrið fyrir mig í Boston eftir nokkra mán­ uði.“ Jón trúir á sprota og nýsköpun eftir að hann byggði upp Operu í Noregi og heldur ótrauður áfram að takast á við tæknibylting una um leið og hann styður og vill koma íslenskum sprotafyrirtækj­ um á framfæri. Hann segist una sér vel í tækniumhverfinu. „Forritun og tækni, ég kann á það,“ segir hann sposkur á svip þegar við kveðjum Eiðistorg. Jón opnar frum kvöðla setur á Eiðistorgi Jón von Tetzchner opnar á næstunni 800 fer- metra frumkvöðlasetur á Eiðistorgi. Hugmynd in er að sprota fyrir tækin á Eiðistorgi geti nýtt sér tengsla net Jóns við frumkvöðlasetur í Noregi, Berlín, Boston og Kísildalnum – og komist þannig í stærra umhverfi þótt aðstaðan sé á Íslandi. „Hér er afar gott útsýni yfir sjóinn og Snæfellsjökull blasir við í góðu veðri. Það er auðvelt að finna orkuna og kraftinn hér fyrir utan.“ Rolf assev, fyrrverandi sölu- og markaðs stjóri operu, stýrir frumkvöðlasetrinu StartupLab í Noregi. anne Stavnes, fyrrverandi starfs mannastjóri operu, annaðist uppbygginguna á Eiðistorgi. TexTi: jón G. HauKsson / Myndir: Geir ólafsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.