Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 56

Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 56
56 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 TexTi: siGurður Már jónsson / Myndir: Geir ólafsson Óhætt er að segja að fjárfestirinn Bala Kam allakharan hafi tekið íslenskan ný ­ sköpunarmarkað með trompi. Hann hefur nú um nokkurt skeið byggt upp samstarfsvettvanginn Startup Iceland og hyggst breyta honum í fjárfestingasjóð innan skamms. Um leið hefur hann fjár ­ fest í tæknifyrirtækjum og náði athyglisverðri útgöngu úr tækni ­ fyrirtækinu Clöru sem selt var erlendum fjárfestum fyrr á ár inu eftir stuttan upp bygg ingar tíma. Blaðamaður hittir hann í hús ­ næði GreenQloud­fyrirtækisins sem hefur hreiðrað um sig á 6. hæð í Borgartúni 25. Það hefur verið kallað Græna skýið í netheiminum og býður upp á „ský“ fyrir t.d. netþjóna og geymslu gagna. Straum ur fjárfestingarbanki var upphaflega með húsnæðið en Bala vann einmitt í íslenska banka kerfinu fyrir hrun. Nú er Bala búinn að koma sér þar fyrir ásamt 22 öðrum starfsmönnum GreenQloud en félagið stækkar nokkuð hratt þessi misserin. Mikið stendur til og eftirvænting í loftinu þegar Bala gefur sér tíma til að setjast niður með blaða ­ manni. Eldmóðurinn skín af honum og síminn hringir stöðugt, meira að segja indverski sendi ­ herrann þarf að fá ráð. Bala er af indverskum ættum, kvæntur íslenskri konu og hann segir að börn hans séu íslensk þótt hann líti á sig sem alþjóðlegan fjárfesti. Bala segist þó hvergi vilja vera annars staðar en á Íslandi, hér séu tækifærin segir hann og brosir. Hann segist ekki hafa trú á fjár ­ festum sem komi eingöngu til að fjárfesta, þeir verði að hafa einhver tengsl við Ísland til þess að hlut ­ irnir gangi upp. Hann segist hins vegar hafa gríðarlega trú á Íslandi sem heppilegum stað til fjárfestinga. Hér séu tækifæri til að byggja upp nýsköpunarumhverfi sem geti jafnast á við það fremsta í heiminum, jafnvel Kísildalinn í Kaliforníu. Til að það geti orðið þurfi að stefna eins mörgum sprota fjárfestum til landsins og unnt er. Hann segir að þyngdarafl fjár ­ festinganna skipti miklu máli, nýjar fjárfestingar kalli á fleiri fjárfestingar. Það eigi sérstaklega við um tæknifyrirtæki eins og hann hefur mestan áhuga á. Vita­ skuld séu hindranir og þar eru gjaldeyrishöftin fyrirferðarmest. „Þau eru mikil hindrun og hafa fælt marga fjárfesta frá. Gallinn er að gjaldeyrishöftin eru eins fyrir alla, sem er röng hugsun. Þau ættu að vera meira klæðskerasaumuð utan um stærð og umfang fjárfest­ inga.“ Þegar Bala rifjar upp fjárfesting­ una í Clöru, sem átti sér stað 2010, bendir hann á að tvennt skipti höfuðmáli við fjárfestingar; tími og peningar. „Ég geri mikið af því að stúdera aðra fjárfesta. Það má hafa í huga kínverska málsháttinn sem segir; besti tíminn til að planta tré var fyrir fjórum árum, næstbesti tíminn er í dag. Fjárfestar verða að læra að tíminn skiptir máli. Ekki bara stundin þegar fjárfest er heldur einnig sá tími sem varið er í fjárfestinguna.“ Bala segist ekki hafa nokkurn áhuga á hlutabréfamarkaði, alvörufjárfestar hugsi á öðr um nótum. Þeir fjárfesti í tíma, vinnu og samstarfi við frum ­ kvöðla. Hann segist hafa áhyggjur af því hve fjárfestar horfi mikið til hlutabréfamarkaðar en lítið til nýsköpunar. Þar séu ákveðnar hindranir í fjárfestingar stefnu lífeyrissjóðanna sem verði að taka á. Mikilvægt sé að beina fjár­ festingu þangað sem ódýrast er að skapa ný og áhugaverð störf. Það verði Íslendingar að hafa í huga. Þótt fjármagn sé mikilvægt sé stundum mikilvægast að verja tíma með frumkvöðlunum til að hjálpa þeim að þróast og þroskast. „Það er erfiðara og tímafrekara en að leggja bara til fjármuni en ég held ég geti fullyrt að umbunin sé mun meiri. Niðurstaðan er þannig oftar en ekki ofin inn í ferlið sjálft. Ég held að fjárfestingar mistakist oft vegna þess að fjárfestarnir hugsa sem svo; hér eru pening­ arnir og nú verður þú að standa þig. Og svo þegar harðnar á daln­ „Þyngdarafl fjár­ festinganna skiptir miklu máli. Nýjar fjárfestingar kalla á fleiri fjárfestingar. Það á sérstaklega við um tæknifyrirtæki.“ Fjárfestirinn Bala Kamallakharan hefur látið til sín taka í heimi ný sköp - unar á Íslandi. Hann rekur fyrirtækið GreenQloud við Borgartún 25 en fyrir - tækið hefur verið kallað Græna skýið í netheiminum. Af fjárfestingum Bala má nefna kaup hans í Clöru 2010, en fyrirtækið var nýlega selt fyrir 1 milljarð króna til bandarískra fjárfesta. iNNFLÆði FRUmkVöðLa Bala Kamallakharan
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.