Frjáls verslun - 01.07.2013, Síða 57
FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 57
Fjárfestirinn bala kamallakharan, eigandi greenQloud: kínverskur málsháttur segir: besti tíminn til að planta tré
var fyrir fjórum árum, næstbesti tíminn er í dag.
Bala Kamallakharan
um hjá frumkvöðlunum hugsa
þeir sem svo að það sé ekki þeirra
vandamál. Þetta er röng nálgun.“
Hann bendir á að hann hafi verið
þátttakandi í öllum ákvörðunum
er vörðuðu uppbyggingu og
þróun Clöru um leið og hann
hafi setið í stjórn félagsins. Vegna
ungs aldurs frumkvöðlanna
hafi verið nauðsynlegt að vinna
sérstaklega náið með þeim, sem
hafi verið mjög gefandi. Hann
hafi að hluta til verið í hlutverki
læriföður. Það sé áhugavert hlut
verk þar sem lærifaðirinn læri
jafnóðum og nemandinn. Hann
segist reyndar vera aðdáandi
þeirrar hugmyndarfræði sem
segi að þeir sem vilji vera góðir
nemendur þurfi einnig að vera
góðir kennarar. Með það í huga
hafi hann ákveðið að læra frum
kvöðlafræði með því einfald lega
að kenna þau!
Bala segist ekki hafa haft úr
miklum fjármunum að moða í
upp hafi en sér hafi tekist að fá
fjölskyldu sína til að fjárfesta
með sér. Fyrsta fjárfesting hans
og fjölskyldunnar var í Clöru en
hann hafði þá unnið með þeim
í þrjá mánuði við að undirbúa
viðskiptaáætlun fyrir tækisins.
Fjárfestingin hafi þannig verið
eðli legt framhald af undir bún
in gn um sem hafi gert alla sam
stiga, bæði frumkvöðla og fjárfesta.
„Menn verða að hafa hugfast
að þegar fjárfest er í nýsköpunar
fyrirtæki er oft á litlu að byggja
í upphafi. Ómögulegt er að vita
hvað er framundan, hvort hug
myndin eða mennirnir sem eiga
að framkvæma hana endast. Hvað
þá hvort markaður sé fyrir hendi
fyrir það sem á að framleiða.
Menn verða einfaldlega að vera
tilbúnir að leggja upp í þessa ferð
og treysta á að þeir geti leyst þau
vandamál sem verða á leiðinni
og að málum þoki fram. Ég sé
því miður ekki mikið af þessu
á Íslandi. Oft er farið af stað og
treyst á guð og lukkuna. Ég hef
ekki trú á slíkum vinnubrögðum.
Það sem skiptir mestu er að finna
rétta fólkið og hjálpa því að þróast,
skapa því rétt umhverfi til að
þrífast í.“
Bala segir að það sé mikil vægt að byggja upp liðs anda innan fyrirtækja og
fá menn til að læra að þróast
saman. Einstaklingshyggja sé
rík í Íslendingum, sem sé mikil
vægur kostur en til að skapa
sam starfsanda innan nýsköp
unar fyrirtækisins þurfi að horfa
á margt annað. „Mitt hlutverk
er að fá menn til að vinna saman
þannig að styrkleikar og veikleikar
þeirra einstaklinga sem vinna að
verkefninu tvinnist saman og úr
verði góð liðsheild. Að því leyti er
ég eins og knattspyrnuþjálfari,“
segir Bala sem játar að hann hafi
meiri áhuga á liðsskipulagi og
strategíu liða en beinlínis leiknum
sjálfum. Bala er einnig í forsvari
fyrir hóp fjárfesta sem hefur áhuga
á að byggja lúxushótel við Hörpu,
en samningaviðræður standa yfir
um þau mál. Sami hópur hefur
verið að skoða ferða þjón ustuupp
byggingu á Skála brekku við
Þingvelli.
Að sögn Bala saman stendur
þessi hópur af fimm ein stakl ing um
sem hafi mikla reynslu af hótel fjár
festingu, bæði í Bandaríkjunum
og á Indlandi. Bala segir að það
sé áhugavert að tengjast þeim
tveimur geirum sem hafi mesta
möguleika til vaxtar á Íslandi;
hátækni og ferðaþjónustu.
„Ég hef mikla trú á
Íslandi sem heppi
legum stað til fjár
festinga.“