Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 74

Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 74
74 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir að starfsmenn þar hafi undanfarin misseri verið í töluverðum samskiptum við smærri fyrirtæki, Klak og fleiri, sem koma að sprotafyrirtækjum. „Skoðun okkar er að litlu félögin hafi meira og minna litið framhjá fjármögnun á markaði. Við rekum markað bæði hér á landi og í systurkauphöllunum á Norðurlöndum, First North, ætl­ aðan litlum félögum. Þarna eru mörg félög af stærðargráðunni 18­20 starfsmenn og 400­500 milljónir króna í árstekjur. Þessi markaður gerir vægari kröfur en Aðalmarkaðurinn og við teljum að það séu mikil tækifæri fyrir íslensku sprotafyrirtækin að líta á þennan vettvang. Auðvitað hentar þetta ekki öllum en við sjáum fjölmörg fyrirtæki sem ættu fljótlega að líta á þennan möguleika.“ Páll segir að Kauphöllin sé æski­ legur vettvangur fyrir félög sem eru komin af örstiginu og þarfn ast stökkpalls til að fara á næsta stig, sem er erfitt að kom ast á nema geta fjármagnað sig með sæmi­ lega myndarlegum hætti. Þarf lagabreytingu Kauphöllin hefur verið í ágætu samstarfi við Klak Innovit en markmið þess er m.a. að vera farvegur nýrra sprotafyrirtækja. „Við komum m.a. að Gullegginu – samkeppni sprotafyrirtækja – og höfum stutt við það og haft mikinn áhuga á því. Við höfum reynt að stuðla að því með sam tölum okkar við stjórnvöld og samtök sprotafyrirtækja og fleiri að lífeyrissjóðunum yrði gert auðveldara að fjárfesta í sprotafyrirtækjum í gegnum First North­markaðinn. Það hefur verið mikill einhugur með okkur og sprotasamfélaginu um að greiða þeim þessa leið að fjármagni. Við höfum heimsótt fjölmörg sprota fyrirtæki undanfarna mánuði og fengið þau í heim sókn, einfaldlega til þess að reyna að komast að því hvernig við gætum sem best aðstoðað þau, og erum að velta fyrir okkur ýms um leiðum í þeim efnum.“ Páll bendir á að lífeyrissjóðirnir hafi takmarkaðar heimildir til fjár­ festinga á First North­markaðn um en fjárfestingar þar eru skráðar í bókum lífeyrissjóðanna sem óskráð bréf. „Þetta hamlar getu sjóðanna til þátttöku á þessum vettvangi þrátt fyrir að hann í raun og veru uppfylli allar helstu kröfur um fjárfestavernd. Að okkar mati þarf að koma á lagabreytingu. Ef okkur tækist að byggja upp þennan vettvang gæti að okkar mati verið þarna gríðarlega mikil breyting fyrir fjármögnunarumhverfi sprota­ fyrirtækja.“ Skapa stóran hluta nýrra starfa Páll segir að sér finnist vera óvenju mikill kraftur í sprotasamfé­ laginu á Íslandi og mörg spenn­ andi verkefni í far vatninu. „Við sáum það síðast í tengslum við Gulleggið og Startup Reykjavík þegar mörg öflug fyrirtæki kynntu hugmyndir sínar. Aðalhættan er að margar gjald gengar hugmyndir nái ekki fram að ganga vegna þess að fjármögnun skilar sér ekki. Auð­ vitað leysir markaðurinn ekki allan vanda í þeim efnum en hann getur greitt aðgang að fjár magni. Ég held að þarna séu mikil tækifæri fyrir íslenskt efnahagslíf því smá vaxtarfyrirtæki erlendis eru að skapa hlutfallslega mjög stóran hluta nýrra starfa og ég sé enga ástæðu til annars en að það eigi eftir að verða raunin líka hér á landi.“ Þegar Páll er spurður hvort hann telji að gjaldeyrishöftin séu ungum sprotafyrirtækjum til traf ala segir hann engan vafa leika á því. Höftin flæki mjög sókn á erlenda markaði og fjölþjóðlega starfsemi. „Slíkt vefst fyrir stærri fyrirtækjum, hvað þá fyrirtækjum á sprotastigi. Sumir flýja einfaldl ega höftin og koma sér fyrir erl endis með þeim afleiðingum að aldrei verða úr starfseminni verðmæti fyrir íslenskt þjóðarbú.“ „Óvenjumikill kraftur er í sprotasamfélagi­ nu á íslandi og mörg spennandi verkefni í farvatninu.“ „við höfum reynt að stuðla að því með samtölum okkar við stjórnvöld ásamt samtökum sprotafyrirtækja og fleirum að lífeyrissjóðunum yrði gert auðveldara að fjárfesta í sprota­ fyrirtækjum í gegnum First north­markaðinn. Það hefur verið mikill einhugur með okkur og sprotasamfélaginu um að greiða þeim þessa leið að fjármagni,“ segir Páll Harðarson, forstjóri kauphallarinnar. Texti: Svava Jónsdóttir Mynd: Geir Ólafsson páll harðarson. „aðalhættan er að margar gjaldgengar hugmyndir nái ekki fram að ganga vegna þess að fjármögnun skilar sér ekki.“ First North-markaðurinn ætlaður litlum félögum K a u p h ö l l i n ( N A S D A Q O M X I c e l a n d )
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.