Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 106

Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 106
106 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 Þeir eru líklega fáir sem tengja saman nýsköpun og hug­myndafræði straum­línustjórnunar (Lean). Frumkvöðlar og sprotafyrirtæki hafa almennt ímynd óreiðu, sveigj anleika og krafts sem gerir það að verkum að oft komast ótrúlegir hlutir í verk. Sömu orsakir gera hins vegar oft að verkum að frábærar hugmyndir ná ekki flugi og þeim árangri sem spáð hafði verið. Höfundur bókarinnar The Lean Startup vill með kenningum sín­ um um að blanda saman hug­ myndafræði straumlínustjórn­ unar og frumkvöðlakraftinum auka líkur á því að nýjar hug­ myndir fái brautargengi og nái flugi, gjarnan með minni sóun en alla jafna. Bókin The Lean Startup fékk strax við útgáfu mikla athygli og stökk hratt upp metsölulista. Skýringar vinsældanna má m.a. finna í því að höfundurinn Eric Ries hafði um árabil haldið úti vinsælu bloggi þar sem hann fjallaði um kenningar sínar og hafði jafnframt unnið með mörg um stærstu fyrirtækjum og opinberum stofnunum í Banda­ ríkjunum. Í bókinni dregur hann saman lærdóm sinn af þeirri vinnu ásamt eigin reynslu sem frum­ kvöðull á tæknisviðinu. Markmið hans er einfaldlega að draga úr þeirri sóun sem gjarnan fylgir nýsköpun og frumkvöðlastarfi til að auka megi líkur á árangri nýrra vara og verkefna. Með sóun á hann við þann tíma, þá peninga og þær auðlindir sem fara í vinnu við verkefnin. Bókin hefur átt fastan sess á metsölulistum og var í hópi bestu viðskiptabók­ anna á Amazon árið 2013. Minni líkur en meiri á árangri Allar rannsóknir sýna að þegar farið er út í ný verkefni, vara sett á markað eða ný þjónusta markaðssett eru í raun minni líkur en meiri á því að árangur náist. Samkvæmt Harvard Busi­ ness Review munu 75% allra fyrirtækja sem stofnuð eru ekki ná fótfestu. Þau sprotafyrirtæki sem ná raunverulegum árangri eru því örfá. Þegar höfundur hafði sjálfur rekið sig á veggi í frumkvöðlastarfi sínu fór hann að skoða kenningar fyrir utan þau fræði sem ná yfir frumkvöðla og rakst á hugmyndafræði straum­ línustjórnunar í framleiðslu sem upprunnin er hjá Toyota í Japan. Hann heillaðist af hugmynda­ fræðinni og fór að beita hlutum hennar sem hann lagaði að heimi frumkvöðulsins og úr varð The Lean Startup, eða straum­ línulagaða sprotafyrirtækið. Í grunninn gengur það út á að beita hugmyndafræði straumlínu­ stjórnunar á nýsköpun og frumkvöðlastarf. Nokkuð sem mörgum finnst langsótt tenging í ljósi ólíkrar ímyndar hvors póls um sig. Hvað klikkar? En hvað er það sem klikkar hjá frumkvöðlunum og sprotunum? Af hverju ná svo fáir árangri? Höfundur heldur því fram að orsakirnar séu nokkrar, eins og ofurtrú á áætlunum, niður­ njörvaðar leiðir að markmiðum og ítarlegar markaðsrannsóknir. Þessi atriði eru vissulega nauðsynleg í almennum rekstri og því freistandi að ætla að þau séu sprotafyrirtækinu og frumkvöðlinum nauðsynleg líka. En það er ekki svo samkvæmt kenningum Ries. Óvissan sem þessir aðilar búa Höfundur bókarinnar The Lean Startup vill með kenningum sínum um að blanda saman hugmyndafræði straumlínustjórnunar og frumkvöðla- kraftinum auka líkur á því að nýjar hugmyndir fái brautargengi og nái flugi, gjarnan með minni sóun en alla jafna. TexTi: unnur valBorG HilMarsdóTTir Myndir: Geir ólafsson Unnur Valborg Hilmarsdóttir stjórnendaþjálfari hjá vendum „Lean startup­hug­ myndafræðin er þróuð til að kenna hvernig á að drífa sprotafyrirtæki áfram. bÆkUR Straumlínulagaða nýsköpunarfyrirtækið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.