Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2006, Page 24

Frjáls verslun - 01.09.2006, Page 24
24 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6 FORSÍÐUGREIN innihalda allar okkar vörur virk hráefni Bláa Lónsins sem við höfum einkarétt á,“ segir Grímur. Ný Blue Lagoon vörulína, sem vinnur gegn öldrun húðarinnar og styrkir varnarlag hennar, er væntanleg á markað fyrir jólin. Vörur sem vinna gegn öldrun húðarinnar eru vinsælastar og mest seldar á markaðinum í dag. Sterkt vörumerki – grunnur að alþjóðavæðingu Hinn alþjóðlegi spa-geiri fer ört vaxandi og samkeppnin er mikil. Grímur segir sérstöðu Bláa Lónsins innan þessa heims vera mikla og felast fyrst og fremst í sterku vörumerki og einkarétti á jarðhita- vökvanum sem inniheldur virk hráefni, steinefni, kísil og þörunga. Efnin eru einstök og finnast hvergi annars staðar. Vörumerkið Blue Lagoon Iceland er langverðmætasti hluti fyrir- tækisins. Samkvæmt könnun, sem Bláa Lónið lét gera í nokkrum löndum, þekkja ótrúlega margir vörumerkið. Útrás húðvaranna er komin á gott skrið en vörurnar verða fáanlegar í hinni þekktu stór- verslun Selfridges við Oxfordstræti í London um mitt næsta ár. Innan snyrtivöruheimsins ríkir einnig mikil samkeppni og því er það mjög sterkur vitnisburður um styrkleika vörumerkisins að Selfridges skuli ætla að setja vörurnar á besta stað í versluninni. „Það óvenjulega gerð- ist að forsvarsmenn Selfridges buðu okkur 20 fermetra verslunarbás sem er afar óvenjulegt því að mikil samkeppni ríkir meðal snyrtivöru- fyrirtækja um gólfpláss í versluninni.“ Vörurnar verða einnig fáanlegar í vöruhúsum í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn eftir næstu áramót. „Við höfum unnið mikla stefnumótunarvinnu og markað skýra stefnu varðandi markaðssetningu Blue Lagoon húðvaranna innan- lands og erlendis. Við höfum fengið fjölda fyrirspurna erlendis frá um samstarf. Nú þegar erum við í samstarfi við dreifingarfyrirtæki í Þýskalandi, á Norðurlöndum og í Bretlandi. Dreifing okkar á alþjóð- legum vettvangi hefur þó til þessa verið um netverslun okkar, þannig þjónum við viðskiptavinum um allan heim,“ segir Grímur. Eins og fram hefur komið eru jákvæð teikn á lofti varðandi útrás- ina. „Við erum samt alveg á jörðinni varðandi útrásina því að hún er kostnaðarsöm og ég lít á þetta sem sérstakt verkefni innan félagsins sem verður bæði dýrt og erfitt.“ Grímur stjórnar sjálfur útrásinni en hefur falið öðrum lykilstarfsmönnum að sinna daglegum rekstri innanlands. „Við höfum unnið mikla stefnumótunarvinnu og markað skýra stefnu varðandi markaðssetningu Blue Lagoon húðvaranna innanlands og erlendis. Við höfum fengið fjölda fyrirspurna erlendis frá um samstarf. Þessi mynd verður notuð til kynningar á Blue Lagoon húðvörum erlendis og er táknræn fyrir uppruna þeirra. Verslun Bláa Lónsins við Laugaveg 15. Þar eru eingöngu á boð- stólum Blue Lagoon vörur.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.