Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 62
62 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6
H
andbók athafnamannsins er titill bókar sem
Páll Kr. Pálsson, verkfræðingur og ráðgjafi,
sendi frá sér á dögunum. Bókin er 127
blaðsíður og þar má finna ýmis hagnýt ráð
fyrir fólk í atvinnulífinu um stefnumótun, markmið-
asetningu, stjórnun, starfsmannamál og fleira. Bókin
er gefin út af Skyggni, fyrirtæki Páls, í samvinnu
við SPRON, sem leggur sérstaka áherslu á að þjóna
litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Í bókinni fer
höfundurinn yfir ýmis ráð sem viðurkennd eru í
fræðunum og sömuleiðis þau sem honum sjálfum
hafa reynst vel á löngum ferli sem stjórnanda, fjár-
festi og nú seinni árin sem ráðgjafa.
Bjó til eigið ráðgjafakerfi
„Á þeim 25 árum sem ég hef starfað í atvinnu-
lífinu, einkum við stjórnun, hef ég öðlast mikla
reynslu, eins og gefur að skilja. Oft hefur mér
tekist ágætlega til, en ég hef líka gert fjölmörg
mistök. Í bókinni reyni ég að koma þessari
reynslu til skila,“ segir Páll Kr. Pálsson, sem
á fjölbreyttan starfsferil að baki. Hann hefur
meðal annars verið forstjóri Iðntæknistofnunar, fram-
kvæmdastjóri Vífilfells og Sólar og er þá fátt eitt
nefnt. Síðustu ár hefur hann hins vegar einbeitt sér
að ráðgjafastörfum auk fjárfestinga undir merkjum
Tvídranga ehf., sem er fjárfestingafélag í hans eigu.
„Handbók athafnamannsins er ekki fræðirit, enda
er ekki lagt upp með það. Minn tilgangur er sá, að
þarna geti frumkvöðlar og stjórnendur fyrirtækja
fengið góð ráð og nýjar hugmyndir varðandi stjórn-
unaraðferðir, stefnumótun og starfsmannamál.“
Sem framkvæmdastjóri Vífilfells segist Páll hafa
öðlast mikla reynslu, enda starfi fyrirtækið í alþjóð-
legu umhverfi innan samsteypu Coca Cola. Eldskírn
sína sem stjórnandi segist hann þó hafa fengið þegar
hann ásamt fleirum keypti rekstur Sólar hf. árið
1994. „Við fórum með Sól í gegnum alla aðferða-
fræði stjórnunar hvað varðar endurmótun rekstrar.
Það var mikill skóli. Þegar ég ákvað síðan að fara út í
sjálfstæða ráðgjöf ákvað ég að byggja á reynslu fyrri
ára, náði í allar gömlu möppurnar mínar frá Sólarár-
unum og bjó til eigið kerfi sem ég kalla Nýsköpun í
starfandi fyrirtækjum.“
Mikilvægustu atriðin í stjórnun
Á síðastliðnum fjórum árum hefur Páll Kr. Pálsson
komið sem ráðgjafi inn í nær fimmtíu fyrirtæki.
Flest þeirra eru það sem kalla má lítil og meðalstór
og felst starf ráðgjafans í því að fara með stjórn-
endum yfir þá þætti rekstrarins þar sem úrbóta virðist
þörf, til dæmis; útgjöld, tekjumyndun, markaðsmál,
stjórnun, skipulag, efnahagsreikninginn og fleira.
Öllum steinum er velt við og þegar myndin er orðin
PÁLL KR. PÁLSSON GEFUR ÚT HANDBÓK ATHAFNAMANNSINS
MEÐ GÓÐUM RÁÐUM ÚR FRÆÐUNUM OG FRÁ LÖNGUM FERLI SEM STJÓRNANDI:
AÐ KOMA
REYNSLUNNI
TIL SKILA
B Ó K U M S T J Ó R N U N
TEXTI: SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON • MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON