Frjáls verslun - 01.09.2006, Side 78
78 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6
V
ið viljum ekki lengur kalla okkur ritara, enda nær starfs-
svið okkar yfir ansi margt annað en að skrifa bréf fyrir
forstjórann. Raunar má segja að slík bréfaskrif séu nær
aflögð því flestir skrifa orðið sín bréf sjálfir,“ segir Björg
Jóhannesdóttir, nýkjörinn gjaldkeri Evrópusamtaka aðstoðarmanna
yfirmanna, EUMA - European Management Assistants.
Samtökin voru stofnuð af breskri konu árið 1972 og hafa því slitið
barnsskónum. Helstu markmið samtakanna eru að efla tengslanet
aðstoðarfólks yfirmanna, efla sjálfstraust þeirra og faglega nálgun.
Samtökin starfa í 20 löndum og hafa fulltrúa í enn fleiri löndum.
Hér á Íslandi eru enn sem komið er eingöngu konur í samtök-
unum en Björg segist vita um a.m.k. tvo karla erlendis. „Það eru fleiri
konur í þessum störfum sem mörg hver hafa væntanlega þróast úr því
að vera ritara- eða einkaritarastörf í annað og meira,“ segir hún.
Gjaldkeri í aðalstjórn EUMA
Björg gekk í EUMA haustið 2002 og hafði ekki verið lengi starfandi
í samtökunum þegar stungið var upp á því við hana að hún gæfi kost
á sér í stjórn samtakanna. Hún sló til og var kosin í stjórn árin 2004-
2006. En þá var skorað á hana að bjóða sig fram í aðalstjórn EUMA
í Evrópu og þá í samkeppni við annan erlendan frambjóðanda. Björg
vann kosningarnar sem fram fóru á aðalfundi EUMA í Malmö sl.
september með yfirburðum.
„Mér finnst mikill heiður að því að hafa verið treyst til þess að
gegna þessu starfi. Tryggingamiðstöðin hefur sýnt mér mikinn skiln-
ing en ég lét strax vita af því að þetta stæði til og að ég myndi þurfa
að fara fjórar ferðir á fundi erlendis á ári ef ég yrði kosin. Það var
samþykkt og ekki aðeins samþykkt heldur hefur fyrirtækið sýnt mér
alveg frábæran stuðning og styrkt mig til ferðanna á ýmsa vegu. Ég
er enn þá bara að fylgjast með starfinu í gegnum tölvupóstsamskipti
því að endanleg stjórnarskipti verða ekki fyrr en fyrstu helgina í des-
ember og þá í Amsterdam.“
Í EUMA eru rúmlega 1.300 félagar og í hverju landi er hópur sem
hefur sína stjórn, formann, kynningarfulltrúa og gjaldkera. Félags-
menn greiða félagsgjald sem að hluta rennur til heimafélags hvers og
eins og að hluta til EUMA höfuðstöðvanna.
„Það er hverju landi í sjálfsvald sett í hvað félagið notar þá peninga
sem til eru,“ segir Björg. „Við notum okkar sjóð einkum til að efla
fræðslu meðal félagsmanna og nú síðast vorum við með ráðstefnuna
„vinna – virkni – velgengni“ á Grand hóteli þar sem við fengum ýmsa
þekkta fyrirlesara. Á þessa ráðstefnu komu 84 konur og einn karl.“
Áhugavert fundarefni
Hér á landi eru 45 meðlimir í EUMA sem hittast mánaðarlega en
taka sér þó frí yfir sumartímann. Tvisvar á ári eru fundir þar sem
stjórnir allra landanna hittast. Á haustfundunum er einnig haldinn
Björg Jóhannesdóttir, ritari á rekstrarsviði TM, er nýkjör-
inn gjaldkeri Evrópusamtaka aðstoðarmanna yfirmanna,
EUMA. Þetta eru athyglisverð samtök en starfsheiti félags-
manna eru misjöfn, eins og ritari, einkaritari, persónulegur
aðstoðarmaður, deildarstjóri, svo að eitthvað sé nefnt.
Í STJÓRN EUMA:
DRAUMURINN
SEM RÆTTIST
TEXTI: VIGDÍS STEFÁNSDÓTTIR
MYND: GEIR ÓLAFSSON
E V R Ó P U S A M T Ö K I N E U M A