Tímarit Máls og menningar - 01.07.1946, Blaðsíða 131
Undur veraldar
segir frá heillandi hlutum
Gófuðustu vísindamennirnir fjalla þar um ólíkustu
efni: um menn og himintungl, jurtir og dýr, lögmál
veðurfarsins, landskjálfta, aldur og framtíð jarðar,
röntgengeisla, kenningu Einsteins um rúm og tíma,
hugarstarf mannsins, lífsskilyrði á öðrum hnöttum,
kjarnorkuna, leyndardóma líffrumunnar, upptök lífs-
ins og kerfi stjarnanna.
Bókin gefur mönnum sýn inn í dýrlegasta ævintýraheim, sem
þó er sjálfur heimur veruleikans.
Vndur veraldar er auðskilin bók og skemmtileg aflestrar.
Hún á brýnt erindi til hvers alþýðumanns.
Berið verðið á Undrurn veraldar saman við verð á hvaða
annarri bók sem er, útgefinni á árinu 1945, og þér hljótið að
undrast mismuninn. — Mál og menning selur Undur verald-
aar svo ódýrt í trausti þess, að allir félagsmenn kaupi hana.
Hún er prentuð í næstum jafnháu upplagi og félagsbækurn-
ar, og hefði ekki getað orðið öllu ódýrari sem félagsbók.
Meginhluti félagsmanna í Máli og menningu hefur þegar
gerzt kaupandi að Undrum veraldar. Bókin er uppseld í
rexínbandi, og aðeins nokkur eintök eftir í skinnbandi.
Þeir félagsmenn, sem enn hafa ekki eignazt bókina, ættu að
útvega sér hana strax.
MÁL OG MENNING
Laugavegi 19 . Sími 5055